Setja upp internet í nýju húsi...


Höfundur
Offroad
Nýliði
Póstar: 6
Skráði sig: Mið 18. Mar 2015 10:16
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Setja upp internet í nýju húsi...

Pósturaf Offroad » Mið 18. Mar 2015 10:52

Daginn spjallverjar,

Ég hef nokkrar spurningar varðandi uppsetningu á neti í nýju húsi sem ég er að fara að klára. Þetta er 220fm endaraðhús á 2 hæðum í Úlfarsárdalum (væntanlega kominn ljósleiðari þar?!). Inntakið er í bílskúrnum niðri og þar hafði ég hugsað mér að hafa routerinn staðsettann. Ég er hjá Símanum núna en ætla að skipta yfir til 365 með áskriftina þegar ég flyt.

Er ekki líklegt að wifi merkið uppi verði frekar veikt frá routernum niðri í bílskúr (með eldvarnarvegg á milli og nokkuð stór efri hæð)?
Mér finnst wifi signalið á mörkunum í húsinu sem ég er í í dag og það er minna og allt á einni hæð...
Hvað er best að gera til að fá gott merki uppi, setja upp access point kannski?
Mér langar líka til að vera með minn eigin router eftir að skipta um þjónustuaðila, og einhvern frekar öflugan. Hverju mæla menn með í dag?
Einnig, hvernig er að configura portin á þessum routerum sjálfur, þeas. td. 2 port fyrir sjónvarp og hin fyrir net eins og þetta kemur default á leigurouternum sem ég hef núna?

Geri ráð fyrir 4 myndlyklum í húsinu, eina fasttengda turntölvu og sjálfsagt 5-6 tæki á þráðlausa netinu og vil endilega setja þetta vel upp strax...

Með von um góð svör úr þessum viskubrunni sem hér er að finna! :-)

Kv. Sigurþór




berteh
has spoken...
Póstar: 172
Skráði sig: Fim 06. Maí 2010 15:21
Reputation: 6
Staða: Ótengdur

Re: Setja upp internet í nýju húsi...

Pósturaf berteh » Mið 18. Mar 2015 11:07

Ef þú færð alvöru ljósleiðara frá GR er best að hafa hann staðsettan hjá smáspennu töflu í húsinu. Þá gætir þú haft routerinn inni í húsinu ekkert mál :)

Myndlyklarnir myndu að sama skapi tengjast frá smáspennutöflu í boxið frá gagnaveitunni en ekki í router eins og þekkt er á DSL netum



Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3101
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 448
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Setja upp internet í nýju húsi...

Pósturaf hagur » Mið 18. Mar 2015 11:19

Ef þú ert með ljósnet, þá er ekki hlaupið að því að nota sinn eigin router. Bæði er erfitt að finna vDSL routera til sölu í verslunum, því þeir eru jú router og modem. Ljósleiðari GR er allt annað mál, þá þarftu bara venjulegan WAN router sem er talsvert úrval af.

Best er að gera eins og berteh stingur uppá, þ.e ef það er séns. Hafa inntakið fyrir ljósleiðarann þannig að routerinn/telsey boxið séu í eða við smáspennutöfluna og þaðan ertu væntanlega með lagnaleiðir útum allt hús. Persónulega myndi ég bara hafa WAN routerinn staðsettan við smáspennutöfluna og staðsetja svo góðan Access point uppá efri hæðinni.

Ég er í jafn stóru húsi og þú ert með, líka á tveim hæðum og ég setti upp svona aðgangspunkt um daginn: http://www.start.is/index.php?route=pro ... uct_id=669 og hann er algjörlega æðislegur. Drægnin og stability frábær og management tólið til að stýra honum á fáa sinn líka. Svo tekur hann straum yfir ethernet þannig að það er hægt að staðsetja hann bara hvar sem er, svo framarlega sem þú ert með CAT5 lögn á staðnum.




benediktkr
Ofur-Nörd
Póstar: 279
Skráði sig: Fim 16. Feb 2012 20:41
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Setja upp internet í nýju húsi...

Pósturaf benediktkr » Mið 18. Mar 2015 11:47

Thread jacking: ef maður er ekki með smáspennutöflu, hvernig er gafulegast að draga CAT?



Skjámynd

KermitTheFrog
Kóngur
Póstar: 4273
Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Re: Setja upp internet í nýju húsi...

Pósturaf KermitTheFrog » Mið 18. Mar 2015 12:04

Offroad skrifaði:Einnig, hvernig er að configura portin á þessum routerum sjálfur, þeas. td. 2 port fyrir sjónvarp og hin fyrir net eins og þetta kemur default á leigurouternum sem ég hef núna?


Það er vesen. En ef það er ljósleiðari þarna, þá fara myndlyklarnir í ljósleiðaraboxið en ekki í routerinn svo þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því. Hins vegar þyrftir þú switch fyrir myndlyklana þar sem það eru bara 1-2 TV port á ljósleiðaraboxunum.



Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3101
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 448
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Setja upp internet í nýju húsi...

Pósturaf hagur » Mið 18. Mar 2015 13:14

benediktkr skrifaði:Thread jacking: ef maður er ekki með smáspennutöflu, hvernig er gafulegast að draga CAT?


Hvernig húsnæði er þetta? Það er oft hægt að draga CAT5 kapla í coax rörin sem eru nú oftast til staðar. Það má ekki draga CAT5 með raflögnum í sömu rörum.



Skjámynd

Klaufi
Stjórnandi
Póstar: 2349
Skráði sig: Mán 28. Des 2009 04:44
Reputation: 53
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: Setja upp internet í nýju húsi...

Pósturaf Klaufi » Mið 18. Mar 2015 13:22

hagur skrifaði:Ég er í jafn stóru húsi og þú ert með, líka á tveim hæðum og ég setti upp svona aðgangspunkt um daginn: http://www.start.is/index.php?route=pro ... uct_id=669 og hann er algjörlega æðislegur. Drægnin og stability frábær og management tólið til að stýra honum á fáa sinn líka. Svo tekur hann straum yfir ethernet þannig að það er hægt að staðsetja hann bara hvar sem er, svo framarlega sem þú ert með CAT5 lögn á staðnum.


Á hvaða land stilltirðu í uppsetningunni?
Minnir að það sé Taiwan sem gefur mesta sendistyrkinn ;)

Þessir eru alveg frábærir, og ég mæli klárlega með þeim í þessa lausn!
Þeir fást líka oft fyrir klink á ebay ;)


Mynd

Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3101
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 448
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Setja upp internet í nýju húsi...

Pósturaf hagur » Mið 18. Mar 2015 14:40

Klaufi skrifaði:
hagur skrifaði:Ég er í jafn stóru húsi og þú ert með, líka á tveim hæðum og ég setti upp svona aðgangspunkt um daginn: http://www.start.is/index.php?route=pro ... uct_id=669 og hann er algjörlega æðislegur. Drægnin og stability frábær og management tólið til að stýra honum á fáa sinn líka. Svo tekur hann straum yfir ethernet þannig að það er hægt að staðsetja hann bara hvar sem er, svo framarlega sem þú ert með CAT5 lögn á staðnum.


Á hvaða land stilltirðu í uppsetningunni?
Minnir að það sé Taiwan sem gefur mesta sendistyrkinn ;)

Þessir eru alveg frábærir, og ég mæli klárlega með þeim í þessa lausn!
Þeir fást líka oft fyrir klink á ebay ;)


Man það ekki alveg ..... þarf að kanna það :happy



Skjámynd

BugsyB
1+1=10
Póstar: 1104
Skráði sig: Mán 19. Nóv 2007 22:51
Reputation: 16
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Setja upp internet í nýju húsi...

Pósturaf BugsyB » Mið 18. Mar 2015 15:51

hagur skrifaði:
Klaufi skrifaði:
hagur skrifaði:Ég er í jafn stóru húsi og þú ert með, líka á tveim hæðum og ég setti upp svona aðgangspunkt um daginn: http://www.start.is/index.php?route=pro ... uct_id=669 og hann er algjörlega æðislegur. Drægnin og stability frábær og management tólið til að stýra honum á fáa sinn líka. Svo tekur hann straum yfir ethernet þannig að það er hægt að staðsetja hann bara hvar sem er, svo framarlega sem þú ert með CAT5 lögn á staðnum.


Á hvaða land stilltirðu í uppsetningunni?
Minnir að það sé Taiwan sem gefur mesta sendistyrkinn ;)

Þessir eru alveg frábærir, og ég mæli klárlega með þeim í þessa lausn!
Þeir fást líka oft fyrir klink á ebay ;)


Man það ekki alveg ..... þarf að kanna það :happy


Það skiptir engu máli hvaða land þú setur - ef búnaðurinn er verslaður á íslandi með CE merkingu þá uppfyllir hann skilirði og sendir evrópskt þráðlaust merki - afturámóti ef þú verslar þér sendi í USA eða kannski tawain þá er það allt annað mál. það er ekki það sama að kaupa allveg eins sendi í usa eða evrópu. þessir frá usa eru bara betri.


Símvirki.


Icarus
vélbúnaðarpervert
Póstar: 960
Skráði sig: Mán 08. Des 2003 23:53
Reputation: 25
Staðsetning: Hafnarfjörður
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Setja upp internet í nýju húsi...

Pósturaf Icarus » Fim 19. Mar 2015 21:08

Það er GPON þarna ekki frá GVR.

Ethernet router en bölvað vesen að stilla VLAN.




benediktkr
Ofur-Nörd
Póstar: 279
Skráði sig: Fim 16. Feb 2012 20:41
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Setja upp internet í nýju húsi...

Pósturaf benediktkr » Fös 20. Mar 2015 15:00

hagur skrifaði:
benediktkr skrifaði:Thread jacking: ef maður er ekki með smáspennutöflu, hvernig er gafulegast að draga CAT?


Hvernig húsnæði er þetta? Það er oft hægt að draga CAT5 kapla í coax rörin sem eru nú oftast til staðar. Það má ekki draga CAT5 með raflögnum í sömu rörum.


Ég er íbúðarblokk, 2. hæð af 3. Það er bara eitt coax tengi í íbúðinni, coaxinn kemur neðan úr íbúðinni fyrir neðan og upp í íbúðina fyrir ofan. Sama saman með símatengilin.

Ég braut veggin í skrifstofuni minni og lagði kapla þannig þegar ég flutti inn.

Ljósleiðarinn liggur með raflögnum, má það?



Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6774
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 935
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Setja upp internet í nýju húsi...

Pósturaf Viktor » Fös 20. Mar 2015 15:49

benediktkr skrifaði:Ljósleiðarinn liggur með raflögnum, má það?


Já, hann leiðir ekki rafmagn.

Það má hins vegar ekki leggja saman lágspennu(230V) og smáspennu(5V) eins og CAT5 eða símavíra.


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 5017
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 892
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Setja upp internet í nýju húsi...

Pósturaf jonsig » Fös 20. Mar 2015 17:48

Ég lenti í algeru pain in the ass í þessum twisted peer kapla málum heima .

Við hjónarúmið er ljósleiðaraboxið. Og sjónvarpið mitt er á "eyju" í miðri stofunni ,og eina smáspennudósin þar er fyrir coax skratta sem fer milli hæða :(

Ég er með þetta mixað þannig núna að ég hef deilt pörunum á einum svona tp kapli í TV og internet. Frá ljósleiðaraboxinu lagði ég kapal meðfram öllum veggjum og náði að koma kaplinum á eyjuna í stofunni , boraði gat að aftanverðri loftnetsdósinn og lét coax samtengi svo kellingin á hæðinni fyrir ofan gæti haldið áfram að horfa á rúv. Og í staðin fyrir loftnetstengilinn er kominn 2xcat5e innstunga.

persónulega hefði ég viljað hafa allt í köplum , en svona er lífið stundum .