Síða 1 af 1

GR - það styttist í að gatan þín verði ein hraðasta gata í heimi?

Sent: Sun 01. Feb 2015 00:37
af ASUSit
Sælir allir saman!

Eftir marg-ítrekaðar uppflettingar á því hvort von sé á lagningu ljósleiðara í götunni hjá mér, þá fæ ég nú, mér til mikillar gleði, upp eftirfarandi þegar ég slæ inn götuheiti og númer auk póstnúmers:

"Það styttist í að gatan þín verði ein hraðasta gata í heimi. Við verðum í bandi þegar að því kemur. "

Ég veit að ég ætti að sjálfsögðu að hafa samband beint við GR til að fá nánari upplýsingar, en þar sem að þjónustuver þeirra verður ekki opið fyrr en eftir gríðarlega langan tíma - eða á mánudaginn ( :oops: ), þá langaði mig að forvitnast um hvort einhver gæti sagt mér hvað þetta þýðir í grófum dráttum. Þ.e.a.s. einkum og sér í lagi hversu langri bið ætti að vera við að búast?

Ef einhver ykkar snúllanna minna getur eitthvað uppfrætt mig, þá væri það virkilega vel þegið!

Með fyrirfram þökkum,
- ASUSit

Re: GR - það styttist í að gatan þín verði ein hraðasta gata í heimi?

Sent: Sun 01. Feb 2015 08:58
af ASUSit
[-o<

Re: GR - það styttist í að gatan þín verði ein hraðasta gata í heimi?

Sent: Sun 01. Feb 2015 10:13
af lukkuláki
Ég myndi ekki gera mér allt of miklar vonir það eru líklega einhverjir mánuðir í þetta ennþá

Re: GR - það styttist í að gatan þín verði ein hraðasta gata í heimi?

Sent: Sun 01. Feb 2015 11:00
af ZoRzEr
Sömu skilaboð koma upp hjá mér. Ég er búinn að bíða í 3 ár. Er þetta ekki bara hluti af áramótaræðu Sigmunds, að ljósleiðararvæða allt landið?

Sent: Sun 01. Feb 2015 12:21
af einarth
Eru þið að leita á síðunni okkar?

Hvaða götur eða hverfi eru þetta?

Kv, Einar.

Re: GR - það styttist í að gatan þín verði ein hraðasta gata í heimi?

Sent: Sun 01. Feb 2015 12:48
af ASUSit
Sæll einarth og takk fyrir svarið!
Í mínu tilviki er staðurinn Sæbólsbraut í Kópavogi. Vona að þú hafir einhverjar jákvæðar upplýsingar handa mér ;)

Fyrirfram þakkir!
- ASUSit

Re: GR - það styttist í að gatan þín verði ein hraðasta gata í heimi?

Sent: Sun 01. Feb 2015 14:30
af ZoRzEr
Sæll einarth,

Mín er Ástún 8, 200 Kópavogi. Verður gaman að fá að vita meira :D

Takk.

Re: GR - það styttist í að gatan þín verði ein hraðasta gata í heimi?

Sent: Sun 01. Feb 2015 15:04
af kazgalor
Ljósleiðarinn er á kársnesbraut svo það er ekki langt fyrir þá að fara. Eftir að tilkynningin kom inn um luguna hjá mér liðu ca 5 mánuðir

Re: GR - það styttist í að gatan þín verði ein hraðasta gata í heimi?

Sent: Sun 01. Feb 2015 16:26
af einarth
Mér sýnist að leitarvélin sé ekkert að ljúga að ykkur :)

Þið ættuð að fá tengingu 2015 - það liggur ekki fyrir í hvaða röð verkefni ársins verða unnin.

Kv, Einar.

Re: GR - það styttist í að gatan þín verði ein hraðasta gata í heimi?

Sent: Sun 01. Feb 2015 16:41
af GuðjónR
Ég fékk tilkynningu í apríl í fyrra, ekkert ljós ennþá. :uhh1

Re: GR - það styttist í að gatan þín verði ein hraðasta gata í heimi?

Sent: Sun 01. Feb 2015 17:59
af ZoRzEr
einarth skrifaði:Mér sýnist að leitarvélin sé ekkert að ljúga að ykkur :)

Þið ættuð að fá tengingu 2015 - það liggur ekki fyrir í hvaða röð verkefni ársins verða unnin.

Kv, Einar.


Glory glory! Bíð spenntur \:D/

Re: GR - það styttist í að gatan þín verði ein hraðasta gata í heimi?

Sent: Sun 01. Feb 2015 20:33
af Tiger
Hvern þarf að kjósa í bæjarstórn svo Hafnarfjörður komist á kortið....

Re: GR - það styttist í að gatan þín verði ein hraðasta gata í heimi?

Sent: Mán 02. Feb 2015 03:53
af suxxass
Tiger skrifaði:Hvern þarf að kjósa í bæjarstórn svo Hafnarfjörður komist á kortið....



Það var eitthvað hverfi á höfuðborgarsvæðinu (man ekki hvar í augnablikinu) sem bjó til undirskriftarlista um þá í hverfinu sem myndu nýta sér þjónustu GR væri hún til staðar og sendu það beint á Gagnaveituna. Þau voru komin með ljósleiðara í götuna og flest heimilin á innan við ári.

Gagnaveita Reykavíkur er fyrirtæki sem reynt er að reka með gróða, því fer framboð eftir fyrirspurn.