Síða 1 af 1
þráðlaust net.. er alveg clueless...
Sent: Þri 16. Nóv 2004 23:44
af DaRKSTaR
málið er nokkuð snúið að mér finnst.
það er tölva á heimilinu tengd við þráðlausann router og virkar það allt flott, svo bættist við fartölva sem er með þráðlausu korti, hún finnur routerinn og nær að tengjast við hann, kemur í statusinn að hún sé tengd.
hinsvegar er vandamálið það að ég kemst ekki á netið þó svo að hún segist vera tengd, notaði sömu stillingar í tcp/ip og var í hinni vélinni nema notturlega notaði aðra ip á hana, en ekkert virkar.
þarf eitthvað svaka trix til að koma henni á netið í gegnum þetta?
alveg grænn í þessu þráðlausa dóti.
Sent: Mið 17. Nóv 2004 01:09
af gnarr
Sent: Mið 17. Nóv 2004 11:55
af DaRKSTaR
gnarr skrifaði:http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?t=4536
tölva til tölvu :Þ
Sent: Mið 17. Nóv 2004 12:48
af bizz
hmm byrjaðu á því að setja ip stillingarnar á auto, ekki festa ip á þráðlausa netkortinu.
athugaðu svo hvort að routerinn úthlutar þér ip tölu.
ef ekki þá er annaðhvort wep læsing eða mac-adressu læsing á þ´ráðlausa netinu (eða að það er ekki DHCP í gangi á routernum).
þú getur fundið wep læsinguna með því að fara inn á routerinn.
einnig geturu þá opnað fyrir mac-addressu nýju tölvunnar.
Sent: Mið 17. Nóv 2004 12:51
af einarsig
til að byrja með.... hvernig router er þetta ? mér heyrist samt að þetta sé wep læsing sé að bögga þig. mæli með að RTFM

Sent: Mið 17. Nóv 2004 12:57
af jericho
Ertu með Win XP og Service Pack 2? Ég var í svipuðum vandræðum, en þegar ég setti upp Service Pack 2, þá small allt saman og ég hef ekki lent í vandræðum síðan.
Vonandi að þetta gangi hjá þér
Sent: Mið 17. Nóv 2004 16:58
af MezzUp
Held að hann næði ekki að tengjast ef að þetta væri WEP vandamál?
Nærðu sambandi á milli tölvnanna? (t.d. ping)
Sent: Mið 17. Nóv 2004 21:47
af w.rooney
þegar að maður tengist í fyrsta skipti , biður routerinn þá ekki um WEP kóðann , þannig að ef að hann er tengdur þá hlýtur hann að vera búinn að slá i wep lykilinn..
þótt hún sjái routerinn .. þá þarf hann ekkert að vera tengdur..
En annars hef ég ekki hugmynd..
En ein spurning.. hvað er málið með íslensku sérfræðingana hérna.. tölva tölva .. who gives..

Sent: Mið 17. Nóv 2004 23:36
af hubcaps
Ef þetta er Speedtouch router, þá lenti ég í þessu nákvæmlega sama og var búinn að reyna að lesa mér til um þetta allstaðar en ekkert gekk.
Endaði á því að slökkva bara á WEP og allt svínvirkaði.
Er náttúrulega opið inná netið, en það næst ekkert samband hérna fyrir utan.
Sent: Fim 18. Nóv 2004 09:00
af einarsig
hubcaps skrifaði:Ef þetta er Speedtouch router, þá lenti ég í þessu nákvæmlega sama og var búinn að reyna að lesa mér til um þetta allstaðar en ekkert gekk.
Endaði á því að slökkva bara á WEP og allt svínvirkaði.
Er náttúrulega opið inná netið, en það næst ekkert samband hérna fyrir utan.
Ég myndi svo aldrei taka sjénsinn á þessu.....
annars með wep þá er hægt að sjá netið og tengjast því en þú færð ekkert net í vélina, þá þarftu að fara í view availble networks í wlan connection slá inn network key (wep)
Sent: Fim 18. Nóv 2004 09:15
af gnarr
er ekki bara málið að þú hefur slegið wep inn í hex á routernum en í ascii á tölvunni?
Sent: Fim 18. Nóv 2004 22:40
af DaRKSTaR
gnarr skrifaði:er ekki bara málið að þú hefur slegið wep inn í hex á routernum en í ascii á tölvunni?
wep er í lagi, ég fæ connection, kemur iconið og segir að ég sé tengdur, hinsvegar er málið að ég kann ekkert á svona routera, hef bara aldrei verið með router.
hvernig accessa ég routerinn í heimilistölvunni?,, forrit í henni eða hvað?..
tek það framm að þetta er ekkert sem ég á.. bara vinnufélagi í basli, ég hef alltaf notað tölvu sem router, öll adsl modem sem ég hef notað annaðhvort innbygð eða usb..
já þetta er speedtouch router frá símanum, þessi svarti, hugsa að þeir hafi bara eina gerð.
Sent: Fim 18. Nóv 2004 23:25
af MezzUp
Sstillir svona routera oftast með web interface'i í dag(og margir bjóða líka uppá telnet)
Ættir að sjá default IP töluna, user name og password í bæklingnum sem fylgdi með.
Sent: Fös 19. Nóv 2004 14:36
af bizz
þú sérð default ip á routernum líka bara í ipconfig.
semsagt gateway ip
Sent: Fös 19. Nóv 2004 15:16
af gnarr
DaRKSTaR skrifaði:gnarr skrifaði:er ekki bara málið að þú hefur slegið wep inn í hex á routernum en í ascii á tölvunni?
wep er í lagi, ég fæ connection, kemur iconið og segir að ég sé tengdur, hinsvegar er málið að ég kann ekkert á svona routera, hef bara aldrei verið með router.
hvernig accessa ég routerinn í heimilistölvunni?,, forrit í henni eða hvað?..
tek það framm að þetta er ekkert sem ég á.. bara vinnufélagi í basli, ég hef alltaf notað tölvu sem router, öll adsl modem sem ég hef notað annaðhvort innbygð eða usb..
já þetta er speedtouch router frá símanum, þessi svarti, hugsa að þeir hafi bara eina gerð.
ég hef "fengið connection" á nákvmælega eins router þar sem að wep var vitlaust. athugaðu líka mac filterinn. hann virkar eitthvað í þessa áttina að mig minnir.
Sent: Þri 30. Nóv 2004 17:09
af mbh