Síða 1 af 1
Erlend download - mikið
Sent: Þri 16. Nóv 2004 20:04
af noizer
Núna í síðasta mánuði (okt.

) var ég með 900 mb download en með 250 mb gagnamagn og pabbi varð ekki glaður.
Nú er ég ekkert að downloada mjög mikið af erlendum síðum en ég fer samt alveg á erlendar síður en trúi varla að það hafi verið þessi 900 mb.
Það er eigilega alltaf kveikt á tölvunni minni og þegar ég er ekki í tölvunni er það bara netið og MSN sem kveikt er á.
Eru einhver svona forrit sem eru að fá eitthvað af erlendum síðum?
Sent: Þri 16. Nóv 2004 20:09
af Pandemic
Antivirus forrit - Msn tekur vissulega einhvað - Allt sem heitir automatic update nema windows update - virusar geta verið að gera þetta - ef þú skoðar heimasíður með mikið af myndum svo margt annað sem spilar inní
Sent: Þri 16. Nóv 2004 20:18
af MezzUp
Panademic summaði þetta nokkuð vel upp.
Geturðu ekki fengið sundurliðun á því hvenær þú sóttir mest af gögnum? (einsog ÞínarSíður hjá Símanum)
Sent: Þri 16. Nóv 2004 22:36
af dabb
finnst þér 900mb mikið?
Ég er í 2,5-3gb alltaf.
Fínt að borga það ekki sjálfur.
Sent: Þri 16. Nóv 2004 22:57
af MezzUp
dabbtech skrifaði:Ég er í 2,5-3gb alltaf.
Fínt að borga það ekki sjálfur.
Þetta er rétta viðhorfið, skítt með peningana hjá mömmu og pabba! Þau hafa ekkert betra við þá að gera.....
En það er annar þráður hérna um gagnamagn, skulum halda óskyldum umræðum á honum.
Sent: Þri 16. Nóv 2004 23:31
af Manager1
dabbtech skrifaði:Ég er í 2,5-3gb alltaf.
Fínt að borga það ekki sjálfur.
Myndirðu downloada 2.5-3gb ef þú þyrftir að borga þetta sjálfur?
Kannski munar foreldra þína ekkert um þetta, gæti verið að mamma þín sé tannlæknir og pabbi þinn lögfræðingur... hver veit
Þegar ég var ekki með frítt erlend download :mrgreen: passaði ég mig alltaf á því að fara ekki yfir svona 500-600mb því ég vissi vel að mamma og pabbi höfðu ekki efni á því að vera að borga morðfjár fyrir internetnotkun mína.
Núna má ég ekki fara yfir 2.2gb á sólarhring og tekst yfirleitt ágætlega að halda mig undir því

Sent: Mið 17. Nóv 2004 18:03
af dabb
Manager1 skrifaði:dabbtech skrifaði:Ég er í 2,5-3gb alltaf.
Fínt að borga það ekki sjálfur.
Myndirðu downloada 2.5-3gb ef þú þyrftir að borga þetta sjálfur?

Kannski munar foreldra þína ekkert um þetta, gæti verið að mamma þín sé tannlæknir og pabbi þinn lögfræðingur... hver veit
Þegar ég var ekki með frítt erlend download :mrgreen: passaði ég mig alltaf á því að fara ekki yfir svona 500-600mb því ég vissi vel að mamma og pabbi höfðu ekki efni á því að vera að borga morðfjár fyrir internetnotkun mína.
Núna má ég ekki fara yfir 2.2gb á sólarhring og tekst yfirleitt ágætlega að halda mig undir því

Well efa ég mundi vera að vinna mundi það kannski ekki vera mikið álag, bara matur og internetið sem er að kosta einhvað hjá mér.
Sent: Fim 18. Nóv 2004 08:54
af Stutturdreki
Ertu nokkuð með þráðlaust?
Vinur minn sem býr í stórri blokk var að fá sér þráðlaust fyrir (vinnu) fartölvuna sína, hann var með allt opið meðan hann var að skoða stillingarnar í routernum. Það var einhver búinn að tengja sig inn á netið hjá honum innann klukkutíma..
Sent: Fim 18. Nóv 2004 14:34
af noizer
Neibb er ekki með þráðlaust og bý ekki í blokk
Sent: Fim 18. Nóv 2004 15:42
af MezzUp
Geturrðu ekki fengið tíma-sundurliðun einsog á ,,Þínum síðum" hjá Símanum?