Mig langaði að forvitnast með þessar þjónustur eins og OpenVPN og HideMyAss og svona þjónustur sem fela IP slóðina þina.
Nú er ég ekki alveg nógu fróður um hvað þessar þjónustur gera annað, getið þið frætt mig um það, eru einhverjir gallar á því að nota þetta.
Er bara með 1 tölvu.
Heyrði að maður tengist t.d. þjóni í Svíþjóð með OpenVPN, er þá einhver möguleiki að þeir sem sjá um þetta í Svíþjóð séu að safna einhverjum upplýsingum eins og t.d. ef maður notar heimabankann eða loggar sig inn á Facebook eða eitthvað.
Einn ekki alveg nógu fróður um þessi mál
