Síða 1 af 1

Online Backup Service

Sent: Þri 23. Sep 2014 20:45
af nidur
Hæ,

Er einhver að nota Online Backup Services hérna

Crashplan, Carbonite, Backblaze, ... með hverju mælið þið?

Re: Online Backup Service

Sent: Þri 23. Sep 2014 21:16
af rapport
Er með Backblaze... virkar og hefur reynst vel...

Það var ódýrara en flest þegar ég byrjaði með það, veit ekki hvernig það hefur þróast.

Re: Online Backup Service

Sent: Þri 23. Sep 2014 21:46
af hagur
Ég er með Crashplan. Borga einhverja 5 dollara á mánuði fyrir ótakmarkað pláss ef ég man rétt. Virkar smooth.

Re: Online Backup Service

Sent: Þri 23. Sep 2014 22:55
af Frantic
GoogleDrive 100GB kostar $2 á mánuði.
Fíla að það er ekkert mál að share-a myndamöppu eða einhverju álíka mjög auðveldlega.

Storage Monthly Rate
100 GB $1.99
1 TB $9.99
10 TB $99.99
20 TB $199.99
30 TB $299.99

Re: Online Backup Service

Sent: Þri 23. Sep 2014 23:13
af wicket
Hef bara notað Crashplan, aldrei séð ástæðu til að skipta. Virkar bara og verðið er sanngjarnt.

Re: Online Backup Service

Sent: Þri 23. Sep 2014 23:16
af nidur
Já, Crashplan virðist vera vinsælast.

Ég gleymdi kannski að minnast á það að ég var að hugsa um Online backup á 1TB+

Re: Online Backup Service

Sent: Mið 24. Sep 2014 02:03
af Tiger
wicket skrifaði:Hef bara notað Crashplan, aldrei séð ástæðu til að skipta. Virkar bara og verðið er sanngjarnt.


What he said

Re: Online Backup Service

Sent: Mið 24. Sep 2014 07:56
af B0b4F3tt
Sammála nokkrum ræðumönnum. Er að nota Crashplan til þess að bakka upp tæp 200gíg heima hjá mér. Þar sem ég er með fjölskylduáskrift þá setti ég þetta líka upp hjá foreldrunum og bróður mínum. Ótakmarkað pláss fyrir skitna 10-12$ á mánuði :)

Re: Online Backup Service

Sent: Mið 24. Sep 2014 09:38
af Frantic
Hvað ætliði svo að gera ef þið missið allt dótið sem þið eruð að backuppa?
Sérstaklega ef þið eruð með 1TB+.
Þurfiði ekki að kaupa aðgang að VPN til að sækja þetta aftur?

Ég er með allt á Google Drive, svo einu sinni í viku keyrir batch script sem zippar allt draslið og setur í möppu sem er sync-uð(Bittorrent Sync) á server heima.
Batch scriptan eyðir svo gömlum zip skrám svo ég eigi bara 2 zip skrár með öllu dótinu.
Þannig get ég sótt 99% hérlendis og svo rest frá Google ef harði diskurinn crashar.

Re: Online Backup Service

Sent: Mið 24. Sep 2014 09:42
af AntiTrust
Frantic skrifaði:Hvað ætliði svo að gera ef þið missið allt dótið sem þið eruð að backuppa?
Sérstaklega ef þið eruð með 1TB+.
Þurfiði ekki að kaupa aðgang að VPN til að sækja þetta aftur?

Ég er með allt á Google Drive, svo einu sinni í viku keyrir batch script sem zippar allt draslið og setur í möppu sem er sync-uð(Bittorrent Sync) á server heima.
Batch scriptan eyðir svo gömlum zip skrám svo ég eigi bara 2 zip skrár með öllu dótinu.
Þannig get ég sótt 99% hérlendis og svo rest frá Google ef harði diskurinn crashar.


Lang sniðugasta leiðin finnst mér að láta Crashplan synca efnið þitt yfir á server hjá félaga innanlands á góðri tengingu, ásamt því að henda yfir í skýið. Öll gögn á þrem stöðum og aðgengileg innan sem utanlands í worst case.

Re: Online Backup Service

Sent: Mið 24. Sep 2014 10:47
af B0b4F3tt
Crashplan býður upp á senda gögnin til þín á hörðum disk. Þarft að sjálfsögðu að borga fyrir það. En ef það skyldi vera brotist inn hjá mér eða kvikna í húsinu þá er það ekki ofarlega á mínum áhyggjulista hvort gögnin séu hýst á Íslandi eða úti í hinum stóra heimi. Bara að þau séu til einhversstaðar :)

Re: Online Backup Service

Sent: Mið 24. Sep 2014 15:32
af nidur
Enginn lent í veseni með þessa þjónustur, einhver þurft að ná í gögnin sín til þeirra eftir crash?

Re: Online Backup Service

Sent: Mið 01. Okt 2014 08:44
af slapi
hvaða hraða eruð þið að ná að uploada til crashplan ? Ég er ekki að fá mikið meiri hraða en þetta
Mynd

Re: Online Backup Service

Sent: Mið 01. Okt 2014 13:54
af fedora1
Hvernig tengingu ertu með ? Hvað ertu að fá í speedtest í upload ?

Re: Online Backup Service

Sent: Mið 01. Okt 2014 14:44
af slapi
Hefur ekkert með tenginguna að gera
Mynd

Re: Online Backup Service

Sent: Lau 12. Mar 2016 03:08
af rapport
Langar að lífga þetta upp aðeins...

Er kominn með leið á backblaze tók mig heilan dag að sækja 300Gb backup og annan dag að unzippa því og koma inn á nýjan disk.

Borgaði sig að hafa backup, ekki spurning...

En ég er eitthvað betra þarna úti?