Síða 1 af 1
Router og switch
Sent: Mið 03. Nóv 2004 12:04
af Andri Fannar
Ég og 2 vinir mínir erum að spá í að lana um helgina, einn galli samt, í herberginu sem við ætlum að vera í er búið að draga lansnúru (cat5?) í vegginn, og ég var að spá hvort ég gæti ekki notað routerinn minn , tengt hann í vegginn og látið snúruna bara í port 1 og svo tengjumst við routernum, hann myndi ekki verea með símasnúru?
Er það ekki hægt? er með netopia cayman router
Sent: Mið 03. Nóv 2004 12:45
af hagur
Ég er 99.9999% viss að routernum sé slétt sama hvort að símasnúran sé tengd eða ekki. Ef hún er ekki tengd, þá fáið þið vissulega ekkert internet-samband en þið fáið samt sem áður samband ykkar á milli, bara eins og um venjulegan switch væri að ræða.
Sent: Mið 03. Nóv 2004 13:54
af Andri Fannar
Já ég veit, en NETIÐ er tengt í annan router frammi sem er búið að draga svo snúru frá í dósina í herberginu.. ég er að tala um að tengja minn router við dósina og svo fara á netið ? það virkar er það ekki?
Sent: Mið 03. Nóv 2004 13:56
af gnarr
það ætti pottþétt að virka ef þið takið hinn routerinn úr sambandi á meðan. það getur bara verið eitt adsl á hverri línu. en afhverju notið þið ekki routerinn sem er á staðnum?
Sent: Mið 03. Nóv 2004 14:04
af Andri Fannar
dudes þið fattið ekki.. skal gera mynd af þessu
Sent: Mið 03. Nóv 2004 14:18
af Andri Fannar
hérna , *vonaaðþiðskiljiðþetta*
Sent: Mið 03. Nóv 2004 14:54
af gumol
Þetta er örugglega hægt ef þetta er þannig router. Hver er eginlega tilgangurinn? Er ekki alveg eins gott að nota bara switch?
Sent: Mið 03. Nóv 2004 14:58
af Andri Fannar
Jú bara eigum ekki SWITCH, hlýtur að virka

Sent: Mið 03. Nóv 2004 15:44
af gnarr
ahh... þú meinar semsagt að þðú ætlar að nota báða routerana.
jú, þetta virkar. þú verður bar að slökkva á DHCP í öðrum routernum. þú verður ða hafa annann routerinn á 192.168.*.254 og hinn á 192.168.*.1 eða álíka neti.