Síða 1 af 1

Utanlands download frítt?

Sent: Lau 30. Okt 2004 02:01
af Snorrmund
http://www.koddinn.com/spjall/viewtopic ... highlight= ? ég sá þetta spammað á deili, er eithvað til í þessu?

Sent: Lau 30. Okt 2004 02:04
af dabb
Treysti ekki náunga sem kann ekki að stafsetja, enn allaveganna efa þetta mundi gerast í raun og veru mundi það breytast í að það væri rukkað fyrir alla um ferð

Sent: Lau 30. Okt 2004 02:33
af BlitZ3r
svolið óljóst þótt að þessi maður eigi heima hinumeigin við götunna mína :)

Sent: Lau 30. Okt 2004 05:53
af GoDzMacK
Gæti varla verið, en ég trúi þessu þegar ég sé það gerast.

Sent: Lau 30. Okt 2004 10:55
af MezzUp
Jamm, stórefa þetta, en ef þetta gerist þá ,,schibby"

Sent: Lau 30. Okt 2004 15:01
af Andri Fannar
aha , bara bíða og vona :P

Sent: Sun 31. Okt 2004 00:10
af gumol
Ég, ólíkt ykkur, trúi vel að þetta geti gerst þegar farice fer loksins að hafa áhrif. Engin ástæða til að rukka fyrir gagnamagn ef það þarf ekki að takmarka utanlandsumferð. Svo er samkeppnin orðin það mikil á milli þessara fyrirtækja að ég held (eða vona) að þetta gerist á næstunni.

Sent: Sun 31. Okt 2004 00:26
af llMasterlBll
miðað við þróunina í þesu í dag þá er ekkert langt í að utanlands dl verði frítt... getur þegar keipt stóra línu með ótakmörkuðu... sem er þá líka notuð á fullu vegna þess í flestum tilfellum..svo lækkar verið á MB utanlands reglulega um fáeina aura og svo núna síðast mirrorar bæði hjá símanum og ogvodafone sem skila ókeipis ýmsu efni og eða bara frítt í gegnum ýmis forrit...

Sent: Sun 31. Okt 2004 00:39
af Pandemic
Þeir virðast vera að taka þetta í skrefum taka útvarpið frítt í gegn og 500mb á sunnudögum þannig það er einhvað að gerast.

Sent: Sun 31. Okt 2004 00:48
af llMasterlBll
akkurat það sem ég var að meina...og lokaskrefið (sem ég persónulega að verði búið að taka fyrir 2006) verður bara einfaldlega frítt utanlands dl!

Sent: Sun 31. Okt 2004 11:41
af MezzUp
ég hefði haldið að næsta skref væri frekar að auka gagnamagn allaverulega, eitthvað svona einsog Símnet hefur gert með hraðan, hækka uppí næsta flokk þ.e. eða minnka umframgagnsmagnskostnaðinn

Sent: Sun 31. Okt 2004 12:21
af Voffinn
gumol skrifaði:Ég, ólíkt ykkur, trúi vel að þetta geti gerst þegar farice fer loksins að hafa áhrif. Engin ástæða til að rukka fyrir gagnamagn ef það þarf ekki að takmarka utanlandsumferð. Svo er samkeppnin orðin það mikil á milli þessara fyrirtækja að ég held (eða vona) að þetta gerist á næstunni.


Ég, ólíkt ykkur, trúi vel að þetta gæti gerst en að þá myndi fara að rukka fyrir allt niðurhal.

Sent: Sun 31. Okt 2004 12:46
af Pandemic
Staðreyndin er sú að þegar maður er með frítt utanlands er ekkert spennandi lengur að downloada erlendis frá.
Kannski fyrstu dagana var maður alveg óður en síðan nennir maður þessi bara ekki.

Sent: Sun 31. Okt 2004 13:25
af MezzUp
ég myndi nú kannski ekkert vera mikið að download utanlands, en maður þyrfti þá allavega ekki að passa uppá hvert MB, t.d. þegar maður fer á myndafreka síðu.

Sent: Sun 31. Okt 2004 13:33
af gumol
Voffinn skrifaði:Ég, ólíkt ykkur, trúi vel að þetta gæti gerst en að þá myndi fara að rukka fyrir allt niðurhal.

Afhverju ættu þeir að fara að gera það?

Sent: Sun 31. Okt 2004 15:06
af tms
Ég vona að ef þetta skeður, að það fari nú enginn að hanga á erlendum höbbum til að ná í allt sem þeir hefðu annars geta náð í frá næsta húsi á íslandi.

Sent: Sun 31. Okt 2004 15:35
af BlitZ3r
ef their gera þetta þá hækkka þeir bara mánaðargjaldið á móti

Sent: Sun 31. Okt 2004 16:08
af MezzUp
Ithmos skrifaði:Ég vona að ef þetta skeður, að það fari nú enginn að hanga á erlendum höbbum til að ná í allt sem þeir hefðu annars geta náð í frá næsta húsi á íslandi.

Ágætt að dreifa þessu svo að löggan taki okkur ekki ;)
BlitZ3r skrifaði:ef their gera þetta þá hækkka þeir bara mánaðargjaldið á móti

Líklega, en ég held að flestir væru til í að borga soldið meira fyrir ómælt utanlandsdownload

Sent: Mán 01. Nóv 2004 08:45
af gnarr
mér þykir þetta ólíklegt.. intís/isnic og ÖLL síðuhýsingafyrirtæki á ísland myndu fara á hausinn á fyrsta degi! allaveganna ef þau lækka ekki verðin sín um að minnstakosti 90%. tildæmis kostar umþaðbil 3$ á mánuði að geyma 100MB af gögnum á erlendum serverum meðan það kostar 4-5.000kr hérna.

Sent: Mán 01. Nóv 2004 08:48
af tms
gnarr skrifaði:mér þykir þetta ólíklegt.. intís/isnic og ÖLL síðuhýsingafyrirtæki á ísland myndu fara á hausinn á fyrsta degi! allaveganna ef þau lækka ekki verðin sín um að minnstakosti 90%. tildæmis kostar umþaðbil 3$ á mánuði að geyma 100MB af gögnum á erlendum serverum meðan það kostar 4-5.000kr hérna.

Besta leiðin til að hafa gögn á hraðri tenginu hér til lands er að finna gömlu tölvuna niðrí kjallara, kaupa eins mikið diskpláss og manni vantar og setja hana í serverkompu hjá þessum LAN klúbbum niðrí bæ. Þá geturu alveg eins verið með 250GB fyrir 5000kr á mánuði.

Sent: Mán 01. Nóv 2004 08:54
af gnarr
ég stóóórlega efast um að öll fyrirtæki á íslandi séu að fara að troða tölvum í serverkompuna á k-laninu ;) það eru líka ekki næstum allir jafn miklir nördar og við að eiga 3 tölvur niðrí geymslu :?