Síða 1 af 2
Spyware/Adaware/Trojans
Sent: Fim 28. Okt 2004 18:33
af elv
Er að verða geðveikur á þessu dóti, og ekkert eitt forrit virðist ráða við þetta, er með Ad-aware,SpywareGuard, Spywareblaster og Spywareflush....
Hvað eru menn að nota hérna og mæla með
Sent: Fim 28. Okt 2004 18:59
af gnarr
ég nota BARA spybot og gerði imunize. virkar 100%

Sent: Fim 28. Okt 2004 19:31
af elv
gnarr skrifaði:ég nota BARA spybot og gerði imunize. virkar 100%

Þú mátt vona það

Sent: Fim 28. Okt 2004 19:32
af zaiLex
Ertu ekki að nota firefox? Eða kemur þetta bara samt eða?
Sent: Fim 28. Okt 2004 19:34
af noizer
Ég er að nota SpyBot, Ad-aware og SpySweeper og ég næ að losna við alla spyware (og hit stuffið)
Sent: Fim 28. Okt 2004 19:39
af Andri Fannar
já spysweeper er góður

Sent: Fim 28. Okt 2004 19:42
af MezzUp
Nota og mæli með Ad-aware og Spybot m/ immunize, hef ekkert prófað neitt annað. Annar keyrir maður öllu jafnan á Firefox.
Og einsog ég hef alltaf sagt gætu menn þurft að starta í safe-mode til þess að hreinsa út allra leiðinlegustu forritin
Sent: Fim 28. Okt 2004 19:57
af Voffinn
Ha.. spyware, hvað er það? Kannast ekki við svoleiðis... he he he.

Sent: Fim 28. Okt 2004 20:03
af ICM
Fólk verður að fara að gera sér grein fyrir því að spyware kemur ekki bara með Internet Explorer heldur kemur það oft með forritum í staðin fyrir borgun og þá er eina leiðin að lesa alla skilmála áður en sett er upp eitthvað nútt forrit. Almenn skinsemi eins og að forðast glæpamennina hjá TGT Soft / themexp.org er það eina sem þarf.
Ég er blessunarlega laus við allt spyware og eina sem kemur á mína vél er svokölluð "tracking cookies" sem fólk með ofsóknaræði er búið að gera stórmál úr að ástæðulausu.
Sent: Fim 28. Okt 2004 20:55
af elv
Og hvað er MS kóngurinn hér að nota ?
Sent: Fös 29. Okt 2004 09:22
af Stutturdreki
Nota Ad-aware og Spybot.. en þau finna yfirleitt bara cookies hvort eð er.
Einu sinni lent í því að fá eitthvað svona drasl sem hijackaði IE, breytti startpage, search page og hleypti mér yfirleitt ekkert nema á eina síðu.. þurfti að nota HijackThis til að losna endanlega við það.
Sent: Fös 29. Okt 2004 11:25
af CraZy
spysweeper er málið

Sent: Fös 29. Okt 2004 11:48
af Pandemic
Ég var svona að pæla ætti ég að reporta til mozilla að ég hafi fundið stóran galla sem hleypti næstum vírus inná kerfið. Ég var að browsa síðu og allt í einu fer bara sírenna í gang og sagði mér að mozilla firefox hefði downloadað einhverju í temp files sem var vírus.
Sent: Fös 29. Okt 2004 12:52
af gnarr
ég myndi hafa samband við þá. þetta er stór galli!
Sent: Fös 29. Okt 2004 13:01
af ICM
Pandemic ég hef lent í því líka en vírusvörnin tók það strax.
Sent: Fös 29. Okt 2004 19:43
af hubcaps
Ég hlýt að vera svona brjálæðislega heppinn.
Hef hvorki fengið vírus né nokkuð spyware á lappann né borðtölvna í þetta eitt og hálft ár (ADSL) sem þær hafa legið á netinu heilu og hálfu dagana. (einu sinni fengið vírus á vél á þessum 13 árum sem ég hef notað tölvur)
Keyri Mcafee(og einhverja online scanners) svona mánaðarlega og spybot, adaware og hijackthis á sama tíma... aldrei neitt að sjá.
Aldrei skilið hvar fólk nær alltaf þessu spyware og rusli, en séð margar vélar yfirfullar af þessu.
Sent: Fös 29. Okt 2004 20:10
af elv
hubcaps skrifaði:Ég hlýt að vera svona brjálæðislega heppinn.
Hef hvorki fengið vírus né nokkuð spyware á lappann né borðtölvna í þetta eitt og hálft ár (ADSL) sem þær hafa legið á netinu heilu og hálfu dagana. (einu sinni fengið vírus á vél á þessum 13 árum sem ég hef notað tölvur)
Keyri Mcafee(og einhverja online scanners) svona mánaðarlega og spybot, adaware og hijackthis á sama tíma... aldrei neitt að sjá.
Aldrei skilið hvar fólk nær alltaf þessu spyware og rusli, en séð margar vélar yfirfullar af þessu.
Pornið

Sent: Fös 29. Okt 2004 21:38
af hubcaps
elv skrifaði:Pornið

Oftast nær er það málið, já..

Sent: Lau 30. Okt 2004 00:22
af ICM
Ég fer nú mikið á porn síður og ekki fæ ég spyware!
Sent: Lau 30. Okt 2004 00:25
af hubcaps
IceCaveman skrifaði:Ég fer nú mikið á porn síður og ekki fæ ég spyware!
Líklega vegna þess að þú veist sjálfur hvaða porn síður eru safe og hverjar ekki.

Sent: Lau 30. Okt 2004 06:58
af ICM
þið eruð kanski að sækja eitthvað eins og virtual girl 2 eða eitthvað sem er auglýst spyware/adware free en virkar svo ekki, ég prófaði að keyra það í sýndar vél og það gerir ekki það sem það á að gera.
Sent: Lau 30. Okt 2004 08:47
af elv
Jæjs pungaði út fyrir Spyware Doctor, kannski ekki það lang besta (Giant Antispyware virðist vera nokkuð gott) en Spyware Doctor scannar alveg ótrulega hratt, og mér líður aðeins betur
Sent: Sun 31. Okt 2004 12:15
af Zaphod
Langbesta forritið er Ad-aware SE professional (sem þarf að kaupa ) þegar Adaware(sumsé fría útgáfan fann ekkert hjá mér ) fann SE professional 150 stk inná tölvunni . Spyware Doctor fann 80 stk ...
Svo ég mæli með því

Sent: Sun 31. Okt 2004 17:21
af ICM
elv af öllum að kaupa sér spyware removal, hélt hann teldist vera advanced notandi.
Annars ótrúlegt en satt þá hef ég prófað að setja upp demo af norton antivirus á nokkrum tölvum með mikið spyware sem Adaware og önnur forrit réðu ekki við, Norton tók það eins og ekkert væri.
Sent: Sun 31. Okt 2004 18:41
af elv
IceCaveman skrifaði:elv af öllum að kaupa sér spyware removal, hélt hann teldist vera advanced notandi.
lol segjir M$ kóngurinn með keypta "quick launch-ið" sitt.
Verð nú samt að viðurkenna að ég hálfsé eftir þessu.
Var að prófa
Yahoo Tool bar með Antispyware
og scannerin hjá þeim er bara nokkuð fínn