Síða 1 af 1
OgVodafone eða Síminn?
Sent: Fim 28. Okt 2004 16:55
af Stebbi_Johannsson
Jæja, núna þegar ofurvélinn fer að renna í hlað er ég ekki frá því að ég fái mér ADSL um mánaðarmótin...
Og þá spyr ég, Hvar er best að fá sér ADSL? og hversu mikinn hraða?
Sent: Fim 28. Okt 2004 16:55
af fallen
Síminn pottþétt, 2mb ættu að vera nóg.
Sent: Fim 28. Okt 2004 17:02
af elv
Fannst 500meg frí á hverju sunnudegi hjá Og of freistandi þannig að ég skipti yfir, og er mjög sáttur....veit ekki hvort það er ég en mér hefur líka alltaf fundist teljarinn hjá Símanum aðeins of aktívur

Sent: Fim 28. Okt 2004 17:17
af gumol
OgVodafone eða Margmiðlun.
Ég er sjálfur hjá OgVodafone og í þau örfáu skipti sem ég fer í CS eða aðra leiki er ég með einn besta svartíman á servernum, sama þótt þetta sé Simnet server. Ég man ekki eftir að netið hafi dottið út hjá mér, amk. ekki síðasta árið.
Sent: Fim 28. Okt 2004 17:31
af viddi
Ég segi síminn
Sent: Fim 28. Okt 2004 20:37
af Stebbi_Johannsson
Ég hugsa að ég fái mér tengingu hjá Símanum... tvær ástæður:
1. Það er útibú á Selfossi (Þar sem ég bý)
2. Líst vel á að þurfa ekki að borga neitt fyrir Steam
En þið Vodafone menn. Af hverju ætti ég að taka tengingu hjá Vodafone? Hvað hafa þeir fram yfir Símann?

Sent: Fim 28. Okt 2004 20:52
af einarsig
Síminn mar

mér finnst ég allavega vera með þokkalegt ping á serverum sjaldan yfir 20 ef það er ekki almennt lagg á servernum.
Sent: Fim 28. Okt 2004 20:58
af elv
Stebbi_Johannsson skrifaði:En þið Vodafone menn. Af hverju ætti ég að taka tengingu hjá Vodafone? Hvað hafa þeir fram yfir Símann?

elv skrifaði:Fannst 500meg frí á hverju sunnudegi hjá Og of freistandi þannig að ég skipti yfir, og er mjög sáttur....veit ekki hvort það er ég en mér hefur líka alltaf fundist teljarinn hjá Símanum aðeins of aktívur

Svarar þetta þér

Sent: Fim 28. Okt 2004 21:50
af gumol
Stebbi_Johannsson skrifaði:En þið Vodafone menn. Af hverju ætti ég að taka tengingu hjá Vodafone? Hvað hafa þeir fram yfir Símann?

Er Vodafone með ADSL kerfi á Selfossi?
Anyway það sem ég sé betra við OgVodafone: 500 mb frítt á sunnudögum, hraðari "upload bandvídd" (skiptir ekki máli ef þú ert bara að nota þetta fyrir netvafur), stöðug tenging og ókeypis föst ip-tala. Ég held það séu líka einhver tilboð fyrir þá sem eru með gsm + adsl hjá þeim
Getur sammt verið að ef þú sért með heimasíma eða gsm hjá Símanum þá fáiru afslátt hjá þeim, veit það bara ekki. Svo eins og þú sagðir þá er Síminn að fara að setja up Steam server og þeir eru þegar með spegil fyrir windows update.
Sent: Fim 28. Okt 2004 22:30
af Andri Fannar
Ég mæli hiklaust með OgVodafone. Stöðugt, frí ip tala, 500mb utanlands á sunnudögum , sounds nice

Sent: Fös 29. Okt 2004 10:20
af hahallur
Ég mindi segja síminn þeir eru ríkisfyrirtæki og alltaf pottþéttir en okurbúlla.
2mb/s er pshyco hratt.
Annars veit ég ekkert hvernig málum er háttað hjá OgVodafone.
Menn virðast vera sáttir þar.
Sent: Fös 29. Okt 2004 11:51
af Icarus
ég hef nú verið að pæla um að skipta yfir til ogvodafone... netið mitt er bara alltof óstöðugt.. það hrynur allaveganna einu sinni á hverjum degi og bara allskonar leiðindi, eina ástæðan fyrir því að ég helst online á ircinu og svona er af því að ég er með bouncer hjá ithmos en hann er hjá vodafone.
Sent: Fös 29. Okt 2004 12:22
af hahallur
Er þá bara ekki eitthvað að tölvunni þinni.
Sent: Fös 29. Okt 2004 14:17
af Icarus
hahallur skrifaði:Er þá bara ekki eitthvað að tölvunni þinni.
sko... routerinn hrynur út og þá náttúrulega fara allar tölvurnar en þetta er eins ef ég nota modem...
Sent: Fös 29. Okt 2004 14:41
af jericho
án þess að hafa reynslu af símanum, þá er ég mjög sáttur við OgVodafone. Ég veit ekki hvort þetta er bara ég sem er heppinn, en ég var að skoða netnotkun mína fyrir síðastliðna mánuði og er yfirleitt með ca.1GB í utanlands download. Ég hef bara 100MB gagnamagn en þeir hafa sjaldnast rukkað mig fyrir þessi umfram MB, þá í mesta lagi fyrir 200MB umfram.
Hraðinn er fínn, verðið er fínt og 500MB á sunnudögum er fínt.
Ég hef bara góða reynslu (eiginlega) af OgVodafone
Sent: Fös 29. Okt 2004 16:01
af BlitZ3r
ogvodafone hér 1mb drullunóg og er mjög ánægður. svo geturru natlega dlað 500mb á sunnudögum. svo þær sögur að ogvodafone fái lélegt ping í cs ofL. er bara rugl. ég pinga í um 20-30
Sent: Fös 29. Okt 2004 16:14
af Amything
Voda er líka með frítt proxy fyrir útvarpsstream, fíla það vel plús 500 megginn á sunnudögum.
Sent: Fös 29. Okt 2004 16:25
af MezzUp
Ég er hjá Símanum og er nokkuð sáttur, sérstaklega við undanfarnar hraðahækkanir og Windows Update, og er nokkuð spenntur fyrir Steam Content server. Var með frábært ping alltaf og þónokkuð stöðuga tengingu.
En samt er ég nú að flytja öll mín e-mail á gmail accountin, ef að maður skyldi skipta einhverntímann, þar sem að 500mb á sunnd. hljómar spennandi

Sent: Fös 29. Okt 2004 16:28
af BlitZ3r
Sent: Fös 29. Okt 2004 16:32
af Pandemic
Ég var hjá vodafone ég var yfirleitt með 10-30 í ping á simnet en svona á nokkra mín fresti eða svona 10 sec fresti hoppaði pingið í 600-900 og allt laggaði til helvítis. Hraðin á kvöldin var vægast sagt hræðilegur 10kb/s og ég borgandi fyrir 2mb tengingu. Annars þarf það ekki að vera að þetta hafi verið vodafone að kenna þar sem ég nátturulega nota bara ADSL línuna frá þeim ekkert annað ég er samt ekki búinn að lenda í þessu með slow tengingu hjá símanum en pingið hoppar miklu minna núna. Annars er upload hraðin hjá símanum alveg hræðilegur.
Edit: Ekki má gleyma að þeir deletuðu 3 active email accountum sem fjölskyldan notaði og við fengum aldrei emailin til bara né útskýringu á lokuninni
Sent: Fös 29. Okt 2004 16:34
af BlitZ3r
var það ekki þegar og vodafone var að byrja þá var allt í fokki allir með 60+ í ping og lagg
Sent: Fös 29. Okt 2004 16:38
af gnarr
kanski frekar þegar íslandssími var að byrja.. eða eitthvað að fyrirtækjunum sem að það sameinaðist.. en ég er ´buinn aðv era emð tengingar hja´íslandssíma/vodafone í mörg ár.. og alltaf gott ping. 60-80 í ping er heldur ekkert læmt.
Sent: Fös 29. Okt 2004 16:53
af Phanto
ég er með hjá vodafone og ég missi alltaf adsl signalið kl 1:30 á hverjum degi. Hef ekki hugmynd um afhverju
Sent: Fös 29. Okt 2004 17:27
af hahallur
Ég er með ADSL 2000 og pingið hefur aldrei farið í 999 þó marr sjái það oft á server-um hjá gaurum ég er svona á milli 0-40 aldrei meira en það.
Sammt er allveg fáránlegt að það sé bara hægt að vera með
100mb og svo 750mb sem er alltof dýrt.
300mb er allveg nóg ef maður er bara að hanga á netinu og 500 allveg nóg til að gera það og sækja nokkur lög.
Helv.... peningaplokk.
Sent: Fös 29. Okt 2004 17:58
af BlitZ3r
í sumun tölvum er 60+ í ping svona leiðinda hökt sem gwtur verið allveg ótrúlega pirrandi í cs srcimmi ofl. álíka