Síða 1 af 1
Reynsla af netáskrift 365
Sent: Mið 11. Jún 2014 00:21
af Hargo
Er að skoða möguleikann á að láta gamla settið færa sig frá Símanum.
Ég hef verið að skoða 365.is en langaði að vita hvort einhver hér inni er með netáskrift hjá þeim og hvernig þjónustan er almennt?
Þau þurfa ekki mikið, venjulegt ADSL dugar, þau eru með myndlykil frá Símanum sem mér skilst að þau myndu nota áfram með áskrift hjá 365. Ég fór helst að skoða 365 fyrir þau þar sem þau geta þá fengið sjónvarpsáskrift með.
Re: Reynsla af netáskrift 365
Sent: Fim 12. Jún 2014 18:33
af Hargo
Enginn?
Re: Reynsla af netáskrift 365
Sent: Fim 12. Jún 2014 19:28
af Krissinn
Hugsa að 365 bjóði bara uppá þjónustu yfir ljósnet og ljósleiðara. Ég ætlaði að færa mig yfir til þeirra en hætti við vegna þess að þeir rukka sama gjald fyrir leigu á línu, skiptir ekki máli hvort þú sért á kopar eða ljósleiðara sem er soldið skrítið, Ég ætlaði að fá ljósnet. Svo er þjónustan hjá þeim alls ekki góð.... Eftir að ég dró umsóknina mína tilbaka þá fékk ég samt sem áður reikning uppá um 6 þúsund kr og þessar ,,grunnskólastelpur" í þjónustuverinu voru bara með kjaft og vissu ekki neitt.... Þessi reikningur var ekki tekinn burt fyrr en ég talaði við tæknilega aðstoð sem er frekar skrítið því ég hélt að þjónustuverið/reikningaþjónustan ættu nú að geta reddað þessu :/ Þannig að ég er enn hjá Vodafone bara og líkar mjög vel

Góð þjónusta og svona

Re: Reynsla af netáskrift 365
Sent: Mán 18. Ágú 2014 20:02
af btw
Ákvað að bumpa þennan póst í staðin fyrir að gera nýjan.
En er einhver kominn með reynslu af 365 ljósleiðara? Er að velta fyrir mér hvort ég eigi að taka enska boltann+ljósleiðara hjá þeim.
Re: Reynsla af netáskrift 365
Sent: Þri 19. Ágú 2014 08:42
af lukkuláki
Þetta er allt annað líf eftir að ég fékk mér áskrift hjá þeim. (konan vill stöð 2 :/ og því ekki þá að sameina þetta bara?)
þeir eru með fínan router og stabílasta netsamband sem ég hef nokkurntíman haft en ég hef verið hjá Símanum og Vodafone. (Síðast hjá Vodafone)
Ég er mikið VPN tengdur vegna vinnunnar og sambandið var að slitna mjög oft á hverjum einasta sólarhring þrátt fyrir nokkur útskipti á routerum sem Vodafone bjóða en núna er netið alltaf uppi og hefur aldrei rofnað í nokkra mánuði.
Mæli hiklaust með netáskrift 365
Re: Reynsla af netáskrift 365
Sent: Þri 02. Sep 2014 18:01
af HoBKa-
Sælir... enn og aftur að bumpa upp þessum þræði, þar sem ég vil ekki gera nýjan.
En veit einhver hvernig þetta er með auka 40GB á 1.000 kr. virkar?
Er hægt að kaupa 80GB fyrir 2.000 kr. og 120GB fyrir 3.000 kr. aukalega?
Re: Reynsla af netáskrift 365
Sent: Þri 02. Sep 2014 18:39
af Hargo
Ég er búinn að skipta yfir til þeirra og verð að segja að þjónustan og umskiptin voru til fyrirmyndar. Virkilega smooth og engin vandræði. Fínasti router og góður stabíll hraði.
Það fylgir 10GB erlent gagnamagn en ef þú ferð fram yfir þá bætast við önnur 40GB og 1.000kr bætast við áskriftina og svona gengur það áfram. Veit ekki hvort það sé hægt að kaupa stærri pakka.
Re: Reynsla af netáskrift 365
Sent: Þri 02. Sep 2014 20:12
af Cikster
Ég skipti yfir til þeirra fyrir 2 mánuðum og er með minn eigin router. Fínasti hraði sem ég hef verið að fá og downloadið er að teljast nokkuð rétt sýnist mér. Sé ekki eftir (allavegana ekki ennþá) að hafa skipt frá símanum.
Re: Reynsla af netáskrift 365
Sent: Þri 02. Sep 2014 20:38
af HoBKa-
Hargo skrifaði:Það fylgir 10GB erlent gagnamagn en ef þú ferð fram yfir þá bætast við önnur 40GB og 1.000kr bætast við áskriftina og svona gengur það áfram. Veit ekki hvort það sé hægt að kaupa stærri pakka.
Já ég vissi að eftir að maður er búin með fyrstu 10GB þá bætist við 40GB fyrir 1.000 kr.
En bætist þá auka 40GB eftir fyrstu 40GB ?
Semsagt þá yrði það 2.000 kr. í heildina.
Re: Reynsla af netáskrift 365
Sent: Þri 02. Sep 2014 20:57
af Hargo
HoBKa- skrifaði:Hargo skrifaði:Það fylgir 10GB erlent gagnamagn en ef þú ferð fram yfir þá bætast við önnur 40GB og 1.000kr bætast við áskriftina og svona gengur það áfram. Veit ekki hvort það sé hægt að kaupa stærri pakka.
Já ég vissi að eftir að maður er búin með fyrstu 10GB þá bætist við 40GB fyrir 1.000 kr.
En bætist þá auka 40GB eftir fyrstu 40GB ?
Semsagt þá yrði það 2.000 kr. í heildina.
Já, eða allavega eins og ég skildi það þegar sölumaðurinn var að útskýra þetta fyrir mér.
Re: Reynsla af netáskrift 365
Sent: Þri 02. Sep 2014 22:15
af HoBKa-
Takk fyrir svörin...
Þá held ég skelli mér á sportpakkann með vini mínum...
Enski boltinn og net saman í pakka, flott verð 11.990 kr. + 2.000 fyrir auka 80GB

Re: Reynsla af netáskrift 365
Sent: Mið 03. Sep 2014 16:26
af Icarus
HoBKa- skrifaði:Takk fyrir svörin...
Þá held ég skelli mér á sportpakkann með vini mínum...
Enski boltinn og net saman í pakka, flott verð 11.990 kr. + 2.000 fyrir auka 80GB

https://365.is/tilbodspakkar/sportpakkinn-plusBættu við 2.550 í línugjald.
Bættu við 590 í routerleigu.
Bættu svo við 1.320 - 1.690 fyrir leigu á myndlykli.
Re: Reynsla af netáskrift 365
Sent: Mið 03. Sep 2014 16:31
af GuðjónR
Icarus skrifaði:HoBKa- skrifaði:Takk fyrir svörin...
Þá held ég skelli mér á sportpakkann með vini mínum...
Enski boltinn og net saman í pakka, flott verð 11.990 kr. + 2.000 fyrir auka 80GB

https://365.is/tilbodspakkar/sportpakkinn-plusBættu við 2.550 í línugjald.
Bættu við 590 í routerleigu.
Bættu svo við 1.320 - 1.690 fyrir leigu á myndlykli.
Þá ertu kominn í 200k á ári, er það svona frábær díll?
Re: Reynsla af netáskrift 365
Sent: Mið 03. Sep 2014 16:42
af Perks
Gagnaveitan rukkar 2610kr í línugjaldið (ekki 2.550) skiptir engu hjá hvaða ispa þú ert.
Router 550kr en getur notað þinn eigin router.
þarf að leigja myndlykil frá vodafone 1.320 kr.. fyrir "háskerpumyndlykil". Leigir myndlykil sama hvaða ispa þú ert hjá.
Gætir verið með netið frá voda/hringdu/etc og borgað líka fyrir sjónvarpsáskritir = verri díll.
eða gætir verið með netið frá voda/hringdu/etc og streamað fótboltann = betri díll en meira umstang.
edit var með vitlaust verð á myndlykli.
Re: Reynsla af netáskrift 365
Sent: Mið 03. Sep 2014 17:02
af Icarus
Allt satt og rétt, sama hvaða ISPa maður velur er mikilvægt að taka tillit til alls kostnaðar.
Re: Reynsla af netáskrift 365
Sent: Mið 03. Sep 2014 18:34
af HoBKa-
Ætla nú að taka fram að þetta er samt betri díll,
Þar sem bara:
Stöð 2 Sport
Stöð 2 Sport 2
Er á 15.382 kr. sem vinur minn er að greiða fyrir og einnig samkvæmt vefsíðunni.
Hér vantar inn í net og heimasíma, einnig LFC TV, MUTV, ChelseaTV.
Á meðan sportpakkinn inniheldur allt þetta á 11.990 kr.
Og þá er ég að tala um fyrir utan línugjald etc....
Re: Reynsla af netáskrift 365
Sent: Mið 03. Sep 2014 21:03
af depill
ehh þú getur alveg keypt sport pakkan án netsins. Ég er með Sportpakkan en netið hjá Símanum ( vinnan ) og það gengur ágætlega ( borga 11.990 kr, sem er auðvita blóðugt ).
Þetta með 365 snýst mjög mikið um bara hversu mikið gagnamagn þú þarft. Það er skurðpunktur þar sem hinir ISParnir verða ódýrari miðað við magn sem þú notar jafnvel þó þú sért með sjónvarpsáskrift hjá 365.