Síða 1 af 1

Switchar og lan

Sent: Fös 22. Okt 2004 00:10
af Pandemic
Ég er að halda lan á morgun oft gert það reyndar en fyrsta skipti sem ég þarf að tengja 2 8 porta switcha saman hvernig virkar það ég man t.d á Hub sem ég notaði einu sinni tengdi ég annan hub í sérstakt uplink port en svo er ekki á þessum Micronet switch.
Pæla í að nota bara port nr.8 á hvorum switch til að tengja þá saman ef hægt er að nota hvaða port sem er til að tengja saman switchana.

Smá svona aukaspurning.
Hvaða switchum mæliði með t.d fyrir lanparty og svona. Ég hef notað 16 porta NETGEAR hub helvíti lengi hann er rosalega vel byggður allur úr járni og góður í alla staði. Ég er að pæla í góðum switch fyrir 5þús frá 8 portum.
Hvernig eru þessir Micronet switchar sem start.is og aðrar verslanir selja?

Sent: Fös 22. Okt 2004 00:23
af gumol
Muna FAQ borðið :) http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?t=4557

Þú tengir bara venjulega netsnúru td. úr porti 1 í port 1 (skiptir ekki máli hvaða port svo lengi sem það er ekki þetta sér uplink port)

Sent: Fös 22. Okt 2004 00:41
af Pandemic
ég var búinn að kíkja á þetta fannst þetta bara frekar óskýrt
*ekkert disrespect ég er bara tregur* :lol:

Annars hvað segiði með switcha hvað er best og mest fyrir money

Sent: Fös 22. Okt 2004 00:44
af gumol

Sent: Fös 22. Okt 2004 07:30
af gnarr
nei gumol. þetta er akkúrat öfugt.

til að tengja tvo switcha saman. þá á að tengja annaðhvort með crosswired úr venjulegu porti yfir í annað venjulegt, eða með straight-through úr venjulegu porti yfir í uplink.

eina sem upplink gerir er að það breytir pinnaröðinni þannig að það notar snúruna eins og crosswired.

Sent: Fös 22. Okt 2004 13:35
af MezzUp
Pandemic skrifaði:ég var búinn að kíkja á þetta fannst þetta bara frekar óskýrt

hmm, þetta datt mér ekki í hug, er einhver á sömu skoðun og hann?

switchar

Sent: Fös 22. Okt 2004 14:35
af Major Bummer
nú.. venjuleg snura fra venjulegu porti i annad venjulegt virkar hja mer.switch i þráðlausum router yfir i annan switch.

Sent: Fös 22. Okt 2004 14:47
af Pandemic
Eitt enn ég er sko með 1 switchin tengdan í Netgear hub og annan switch fer það ekki allt í fuck? Það virkar sko að tengja hubinn með venjulegum kapall í switchin þá fæ ég netið allt virkar fínt en hvernig er það ef ég ætla að tengja switchin sem er tengdur við hubinn við hinn switchin.
kannski get ég betur skýrt þetta svona.
Svörtu kassarnir=tölvur

Sent: Fös 22. Okt 2004 15:01
af gnarr
það gerist ekkert. þú getur tengt þetta endalaust.

ástæðan fyrir því að það virkar hjá þér að tengja með venjulegri snúru á milli er líkegast að switchinn sé með auto sense á það hvort þetta er crosswired eða straight through snúra.

ég var að tengja router og switch saman um daginn, og ég þurfti að tengja í uplink á switchinum.

Sent: Fös 22. Okt 2004 17:05
af Pandemic
Þetta reddaðist allt :)

Sent: Fös 22. Okt 2004 20:51
af Pandemic
Eitt sem er frekar furðulegt er það þegar ég er t.d tengdur við switch 1 og annars við switch 2 þá fæ ég frekar lélegan hraða á milli en ef við erum báðir á switch 1 þá fæ ég fullan hraða :S

Sent: Fös 22. Okt 2004 23:59
af MezzUp
áttir þig náttúrulega á því að tengið á milli switch'ana er orðinn að flöskuhálsi ef allir eru t.d. á DC í einu að sækja stuff. Þá deilist þessi 100Mbps(in theory þ.e.) á alla sem eru að reyna að nota hana.

Sent: Lau 23. Okt 2004 01:36
af Snorrmund
Vá ég er heimskur :? (eða?) en hver er munurinn á hub og switch?

Sent: Lau 23. Okt 2004 01:43
af Mysingur
Snorrmund skrifaði:Vá ég er heimskur :? (eða?) en hver er munurinn á hub og switch?

lesa faq [-X

Sent: Lau 23. Okt 2004 01:51
af MezzUp
Mysingur skrifaði:
Snorrmund skrifaði:Vá ég er heimskur :? (eða?) en hver er munurinn á hub og switch?

lesa faq [-X

jamms, ákkúrat það sem ég var að reyna að forðast með því að setja upp þetta FAQ :=/

Sent: Lau 23. Okt 2004 12:36
af Snorrmund
ahh, var búinn að lesa þetta... man það núna.. var búinn að gleyma þessu :D