Síða 1 af 1
Að breyta "Turn off computer" í XP
Sent: Fim 21. Okt 2004 10:54
af so
Sælir nú, smá vandi hér.
Systir mín sem er með laptop með XP pro hringdi í mig og spurði hvernig ætti að breyta "Turn off computer" en það breyttist "Allt í einu, var ekki að gera neitt"
Þegar hún fer í Start > Turn off computer kemur ekki hin hefðbundna Stand by - Turn off the computer - Restart valmynd heldur þessi sem er á viðhenginu hér að neðan með felliglugga til að slökkva.
Vitið þið hvers vegna þetta val kemur og hvernig ég breyti í hina valmyndina aftur?
ps. vélin er 500 km í burtu svo ég á erfitt með að fikta mig áfram.
Sent: Fim 21. Okt 2004 10:57
af viddi
er ekki hægt að velja shut down ?

Sent: Fim 21. Okt 2004 11:02
af so
jú jú, þegar smellt er í felligluggann koma upp nokkrir kostir og þar á meðal shut down svo það er allveg hægt að slökkva en hin valmyndin er betri.
Sent: Fim 21. Okt 2004 11:03
af viddi
control panel/user accounts/cange the way eitthvað users og haka við welcome screen
Sent: Fim 21. Okt 2004 11:20
af so
Það var lagið viddi3000
Takk kærlega

Sent: Fim 21. Okt 2004 22:54
af Manager1
Skrítið hvernig Windows tekur alltíeinu uppá því að breyta svona hlutum... bara svona alltíeinu þegar maður er ekki að gera neitt

Sent: Fim 21. Okt 2004 22:58
af Hawley
svona lagað breitist bara eftir insetningu á servicepack eða update
Sent: Fim 21. Okt 2004 23:17
af gnarr
eða eftir heimsókn til "kerfisfræðings" í skóla

Sent: Mán 25. Okt 2004 14:18
af so
jebb, hún fór með vélina til einhvers tölvukalls í skólanum
Og ég get ekki breytt þessu hjá henni eins og viddi3000 lagði til, virkaði fínt að breyta fram og til baka hjá mér en hennar vél neitar út af client service for network eitthvað..
Á eftir að kynna mér það betur, hef ekki haft tíma í það ennþá.
Þarf víst að vinna fyrir salti í grautinn

Sent: Mán 25. Okt 2004 14:24
af gnarr
málið er að hún þarf að logga sig inn á skólanetið í skólanum. það er ekki hægt aðnota welcome screen í það, því hún þarf að velja í svona drop down boxi (log into:) annaðhvort "this computer" eða "f**king ömurlega skólanetið"
Sent: Mán 25. Okt 2004 15:13
af so
Takk gnarr

Sent: Mán 25. Okt 2004 23:05
af viddi
kerfisstjórar í skólum eru dáldið pirrandi kerfisstjórinn í IR er búinn að loka á mig ca. 3 sinnum og 3 skiptið var í dag og þá vildi hann ekki segja mér ástæðuna fyrir því að hann lokaði á mig

Sent: Mán 25. Okt 2004 23:07
af MezzUp
viddi skrifaði:kerfisstjórar í skólum eru dáldið pirrandi kerfisstjórinn í IR er búinn að loka á mig ca. 3 sinnum og 3 skiptið var í dag og þá vildi hann ekki segja mér ástæðuna fyrir því að hann lokaði á mig

En fyrstu 2. skiptin? Ég trúi ómögulega að þetta sé bara BOFH........
Sent: Mán 25. Okt 2004 23:10
af viddi
sko fyrsta skipti var hann að saka mig um að hafa downloadað 30 gb innanlands (veit ekki hvernig það ætti að hafa gerst þar sem það er svona 5 mb free space á hdd í tölvunum þarna), og í annað skiptið var það útaf messenger service.....
Sent: Þri 26. Okt 2004 17:17
af ICM
sæktu þér bara Close Win
http://www.tsoftcentral.com/tools/index.html og ef þú vilt vera florrari á því notaðu það með FreeLaunchBar