Síða 1 af 1
Get engan vegin deletað möppu
Sent: Mán 18. Okt 2004 00:39
af Sveinn
Heyriði, það vill svo til að harði diskurinn minn datt niður fyrir stuttu og læti, og ég hafði ekkert að gera og fór því að vírusskanna tölvuna bara, þá sá ég að það var verið að vírusskanna E:\found.000, semsagt mappa sem var með eitthvað að stöffi sem ég missti(Til að geta komist í hana þarf að haka af "Hide protected operating system files" í Tools -> Folder options -> View), en vandamálið er að ég var svo heimskur að færa gögn úr þeirri möppu beint á harða diskinn þannig það yrði ekk lengur á found.000, og þegar ég reyni svo að klikka á möppuna sem ég færði þá kemur bara "Access Denied", þannig ég svona jæja ókei, ætli ég verði ekki bara að downloada öllu aftur og ætla því að reyna að henda henni, en það kemur alltaf að hún sé í notkun og get því ekki hent henni, þannig ég prufa að restarta og það fyrsta sem ég geri eftir restart er að fara og reyna að deleta möppunni, en það gengur ekki!! svo að ég spyr bara: Hvernig deleta ég þessari möppu?
Sent: Mán 18. Okt 2004 00:43
af Hawley
nota safe mode, og hugsanlega slökkva á explorer. ætti að duga
Sent: Mán 18. Okt 2004 00:47
af Sveinn
En er einhver leið að ég geti bara farið í möppuna þanig að það komi ekki "Access Denied" svo ég þurfi ekki einusinni að deleta möppunni

?
Sent: Mán 18. Okt 2004 01:34
af MezzUp
hmm, nota command prompt og drepa explorer?
Sent: Mán 18. Okt 2004 01:58
af Sveinn
Geturu leiðbeint mér það í gegnum pm eða hérna..
Btw.. ég ætlaði að reyna að downloada allri tónlistinni aftur, og ætlaði svo að rename-a möppu, og gat ekki heldur rename-að hana! :S alveg eins og allt á þessum disk er unrename-able

Sent: Mán 18. Okt 2004 02:04
af Hawley
del = eyða
* = allt sem er inni í viðkomandi möppu
cd.. = út úr möppu
cd möppu-nafn = inn í möppu
e: = skiptir yfir á e:\
c: = skiptir yfir á c:\ og svo framvegis
til dæmis ef ég vill eyða öllu inni í folder3:
del c:\porn\folder3\*
þú ætti að fatta hvernig það á að nota þetta
--
eða (auðveldara):
eftir að þú ert búinn að drepa explorer, fara í taskmanager -> file -> new task (run) -> browse
finna möppuna og eyða henni, best að gera svona lagað í safe mode
Sent: Mán 18. Okt 2004 02:09
af MezzUp
ahh, ég veit ekkert hvort að það gerir eitthvað gagn eða virki yfirhöfuð til þess að fara í möppuna, var bara að ,,útfæra" ábendingu frá Hawley betur, þ.e. hvernig þú getur reynt að henda möppunni út
Ferð bara í Start - Run og skrifar 'cmd'. Svo ferðu í task manager og gerir end task á explorer. Síðan ferðu aftur í command prompt gluggan og þá geturru notað cd, dir, copy, del, rmdir o.s.frv. til þess að reyna að henda henni út, skoða hana........ Ef að þú kannt þessar skipanir ekki skaltu Google'a þær og taka smá tíma til að læra á þær, þar sem að allir tölvunördar verða að kunna þessar basic allavega.