Vandamál með registry


Höfundur
Palm
has spoken...
Póstar: 183
Skráði sig: Þri 09. Sep 2003 21:01
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Vandamál með registry

Pósturaf Palm » Mið 13. Okt 2004 18:24

Lenti í "smá" veseni í gær og vantar hjálp hjá ykkur.

Ég lenti í veseni með að install-a smá forriti - það gat ekki skrifað í registry-ið svo ég fór á google og fann þar leiðbeiningar um að hugsanlega þyrfti að breyta permissions á ákveðnum registry keys.
Ég var loggaður inn sem notandi sem er administrator á tölvunni fór í regedit --> localmachine --> software -- permissions og reyndi að setja réttindi á alla - m.a. creator owner - gat það ekki svo ég smellti á advanced og breytti createor owner i "this key and subkeys" og ætlaði svo að haka við allow réttindi í hinum glugganum en gleymdi því og ýtti á ok.
Eftir það kemst ég ekki aftur inn í regedit og engin icon á forritum koma fram og ekki er hægt að opna nein forrit á tölvunni en hún ræsist samt upp. Get ekki farið í system restore - það forrit ræsist ekki upp og ef ég fer í good restore í gegnum f8 þegar tölvan er ræst upp kemur ekki gamla uppsetningin heldur bara þessi nýja.

Ég veit ekki adminsitrator lykilorðið á tölvunni og efast um að ég geti fengið það nein staðar.
Vitið þið um einhver tips hvað ég get gert til að laga þetta?

Ef ég er notandi á tölvunni og er með administrative réttindi er ég þá ekki með jafn mikil réttindi og ef ég logga adminstrator notandann inn á tölvuna - ég hef alltaf haldið að réttindin væru eins.

Palm



Skjámynd

Stutturdreki
Of mikill frítími
Póstar: 1704
Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
Reputation: 40
Staða: Ótengdur

Pósturaf Stutturdreki » Fim 14. Okt 2004 10:24

Ef notandinn þinn er í Administrators groupunni á hann að hafa öll réttindi til að setja upp og eyða út forritum, hvort sem þau noti registry eða ekki.. skrítið að það hafi ekki virkað.

Er engin Windows Security MCP en ég held að það sé sumt sem þú getur bara gert sem Administrator notandin..



Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Fim 14. Okt 2004 16:50

IIRC þá eru einhver verk í Windows sem að maður verður að nota built-in Administrator accountinn, ekki nóg að vera með administrator réttindi




gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf gumol » Fim 14. Okt 2004 17:24

Þú getur breytt built in Administrator passwordinu með user sem hefur Administrator réttindi. Svo ég sé ekki alveg tilganginn.




Höfundur
Palm
has spoken...
Póstar: 183
Skráði sig: Þri 09. Sep 2003 21:01
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Palm » Fim 14. Okt 2004 18:14

"Þú getur breytt built in Administrator passwordinu með user sem hefur Administrator réttindi. Svo ég sé ekki alveg "

Hvernig er það gert - þessi notandi kemur aldrei fram undir users í control panel.

Þarf maður þá ekki gamla passwordið til að geta breytt passwordinu?

Palm



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6574
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 356
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Fös 15. Okt 2004 08:12

þú getur breytt í regedit hvaða userar eru hidden og hverjir ekki. administrator er default hidden.


"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

Stutturdreki
Of mikill frítími
Póstar: 1704
Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
Reputation: 40
Staða: Ótengdur

Pósturaf Stutturdreki » Fös 15. Okt 2004 09:00

Palm skrifaði:Hvernig er það gert - þessi notandi kemur aldrei fram undir users í control panel.


Hægri smeltu á 'My Computer' og veldu 'Manage' og þar undir 'Local Users and Groups' -> 'Users' sérðu alla notendur sem eru til á tölvunni þinni. Getur hægri smellt á Administrator notandan og valið 'Set password'