Síða 1 af 1
Ekki hægt að breyta XP passwordi :(
Sent: Sun 10. Okt 2004 22:15
af mrpacman
Jæja svo er mál með vexti að vinur minn kom heim til mín og sagðist ætla að haxa mig. Og ég hélt að hann gæti það ekki og leyfði honum að fara í tölvuna. Hann fór beint í run -> cmd og gerði
Og núna er passwordið mitt 1234hestur

og ég get ekki breytt því! Ég er búinn að reyna að fara í cmd og breyta því aftur en þetta kemur
Svo er ég líka búinn að reyna að gera það í user account dótinu í control panel en það kemur eikkað svipað.
Sent: Sun 10. Okt 2004 23:25
af zaiLex
Allavegana þá sagðiru að kóðinn væri net users en þú skrifaðir net user þegar þú varst að reyna að breyta þarna, svo er þetta password sem þú prófaðir "getekki.." alltof langt, prófaðu að gera styttra ef þú ert ekki búinn að prófa það.
Sent: Sun 10. Okt 2004 23:58
af mrpacman
Ég held að það skifti ekki máli hvort það er net user eða net users :/ en ég prófaði að gera stittra password en það virkaði ekki

Sent: Mán 11. Okt 2004 07:32
af mazo
reinstalla windowsinu

Sent: Mán 11. Okt 2004 09:45
af Johnson 32
Hefurðu prufað að fara í computer management og í Local User and Groups og hægri smellt á userinn þinn og set passw?
Sent: Mán 11. Okt 2004 12:40
af mrpacman
Hvar kemst maður í computer management?
Sent: Mán 11. Okt 2004 12:43
af Emizter
*Hægri klikk* á My Computer > Manage > Local Users And Groups > Users
Sent: Mán 11. Okt 2004 13:06
af mrpacman
Hvaða information er verið að tala um?
Sent: Mán 11. Okt 2004 13:13
af Pandemic
my documents og þannig stuffs sem er encryptað með ntfs encryption
Sent: Mán 11. Okt 2004 13:31
af mrpacman
Er ekki hægt að gera þetta án þess að missa my documents og það

Sent: Mán 11. Okt 2004 13:45
af Phanto
afhverju notaru ekki bara þetta password
Sent: Mán 11. Okt 2004 13:54
af Stutturdreki
ctrl-alt-delete -> 'Change password'.
Þar slærðu inn gamla og nýja og ættir ekki að lenda í neinum vandræðum.. Hef oft fengið þessa tilkynningu í UserManager en aldrei tapað gögnum, brendu bara myDocuments á disk eða eitthvað.
Annars fara myDocuments ekkert, bara spurning um hvort notandinn þinn hafi aðgang til að lesa þau. Administrator eða notendur í Administrator grouppunni ættu að hafa aðgang að öllum skjölum, geta breytt 'owner' og öllum heimildum.
Og, ef þú villt koma í veg fyrir að þetta sé hægt þarftu að haka við 'User cannot change password' í UserManager, en þá þarftu að logga þig inn sem Administrator til að breyta password fyrir þann notenda í framtíðinni.
Og, þessi 'villa' sem kemur upp hjá þér er bara tilkynning um að password uppfyllir ekki Password Policy, það er :
- Of stutt
- Hefur verið notað áður
- Ekki nógu 'flókið'
- .. hugsanlega eitthvað meira.
Man ekki með hámarkslengd, minnir einhvern vegin að það hafi verið í NT Server en það er bara 'Minimum password length' skilgreint hjá mér í WinXP pró.
Btw.. sérð reglurnar undir : Start->All Programs->Administrative Tools->Local Securyty Settings, undir Securuty Settings->Account Policies->Password Policy
Sent: Mán 11. Okt 2004 17:04
af MezzUp
mrpacman skrifaði:Er ekki hægt að gera þetta án þess að missa my documents og það

Jú, ef að þú getur loggað þig inn á accountinn sem að þú ert að breyta passwordinu á geturðu decryptað möppurnar áður en þú breytir passwordinu. *Hægr smell* á möppuna -> properties -> advanced -> taka hakið úr "Encrypt contents to secure data"
Kannski er ekki víst að það séu einhverjar möppur protectaðar, kannski er þetta bara almenn viðvörun?
Stutturdreki skrifaði:Annars fara myDocuments ekkert, bara spurning um hvort notandinn þinn hafi aðgang til að lesa þau. Administrator eða notendur í Administrator grouppunni ættu að hafa aðgang að öllum skjölum, geta breytt 'owner' og öllum heimildum.
Rangt, EFS(encrypting file system) tengist NTFS réttindum ekki, þó að það sé partur af NTFS5. Ef að möppur eru encryptaðar og þú kemst ekki aftur í accoutinn sem mappan var encyrptuð í eru litlar líkur að þú náir aftur í göginn. Nema að þú hafir tekið backup af lyklinum þínum, eða þú brute-force crackir 128-bit'a encryption'ið.(sem að tekur víst alla eilíf)
Sent: Mán 11. Okt 2004 17:31
af Stutturdreki
Erm.. Encryption er ekki 'on' by default.. Held ég alveg örugglega..
Og er Windows password notað til að encrypta? Finnst það frekar hæpið (
Windows kemur hinsvegar stöðugt á óvart 
), hvað með notendur sem eru á Domain sem neyðir hann til að skipta um password á n-daga fresti?
Reyndar stendur á glugganum sem poppar upp:
"If you know the current password and want to change it, use User Accoutns in Control Panel."
Þar kemur væntanlega upp gluggi þar sem þú þarft að slá inn gamla password rétt til að fá að breyta, og ef Windows Encryptar með þessu password þá er það eiginlega eina leiðin til að uppfæra kóðunninna...
Sent: Mán 11. Okt 2004 17:39
af gumol
Stutturdreki skrifaði:Og er Windows password notað til að encrypta? Finnst það frekar hæpið (
Windows kemur hinsvegar stöðugt á óvart 
), hvað með notendur sem eru á Domain sem neyðir hann til að skipta um password á n-daga fresti?
Þú verður að vita passwordið til að komast í dulkóðunarlykilinn. Ef þú breytir passwordinu án þess að stimpla inn gamla passwordið fyrst þá kemstu einvaldlega ekki í þessa lykla. Þegar fólk þarf að breyta um password á X daga fresti þarf það alltaf að slá inn gamla passwordið fyrst.
Hinsvegar mæli ég alls ekki með að fólk noti þessa dulkóðun. Reyndar bara heimska í mér sem varð til þess að ég tapaði öllum gögnum sem ég átti en þetta eykur samt líkurnar á að þú tapir gögnum.
Sent: Mán 11. Okt 2004 18:02
af MezzUp
menn ættu alltaf að backa up lyklana sína ef að þeir nota encryption, fela síðan bara floppy'inn á góðum stað

Sent: Mán 11. Okt 2004 18:50
af mrpacman
ARG ég er búinn að prófa þetta eiginlega allt :/ Kemur alltaf að ég sé ekki með nógu flókið passwd eða eikkað þannig. Ég er bara að spá í að formatta, nenni essu ekki

Sent: Mán 11. Okt 2004 19:56
af MezzUp
mrpacman skrifaði:ARG ég er búinn að prófa þetta eiginlega allt :/ Kemur alltaf að ég sé ekki með nógu flókið passwd eða eikkað þannig. Ég er bara að spá í að formatta, nenni essu ekki

uss, þú ert nú litli tölvunördinn.......
ertu búinn að prufa að kíkja í security policy einsog Stutturdreki benti á?
Sent: Mán 11. Okt 2004 23:07
af mrpacman
MezzUp skrifaði:uss, þú ert nú litli tölvunördinn.......
ertu búinn að prufa að kíkja í security policy einsog Stutturdreki benti á?
Hehe.
Það er ekki administrator tools hjá mér í start menu

Sent: Þri 12. Okt 2004 00:42
af fallen
mrpacman skrifaði:MezzUp skrifaði:uss, þú ert nú litli tölvunördinn.......
ertu búinn að prufa að kíkja í security policy einsog Stutturdreki benti á?
Hehe.
Það er ekki administrator tools hjá mér í start menu

Properties á taskbar -> start menu -> customize á það sem þú ert að nota -> Stendur efst í Start Menu Options á Classic en á venjulega er það Advanced tabið og það er þar neðst þar sem þú getur scrollað niður.
Sent: Þri 12. Okt 2004 01:31
af mrpacman
Hjúkk, oki takk strákar, þetta virkaði.
Sent: Þri 12. Okt 2004 01:48
af gumol
Eða bara fara í Control Panel > Administrative Tools
Sent: Þri 12. Okt 2004 17:29
af MezzUp
gumol skrifaði:Eða bara fara í Control Panel > Administrative Tools
lol já
