Síða 1 af 1

DISK BOOT FAILURE... xp vesen :0

Sent: Sun 10. Okt 2004 19:22
af Mysingur
Ég var áðan að reyna að finna út í hverju hávaðinn í tölvunni minni væri, þannig ég tók alla diska úr sambandi og rebootaði nokkrum sinnum og svona.
En svo þegar ég er búinn að setja allt í samband aftur og ætla að kveikja á tölvunni þá fæ ég þessi skilaboð:
"DISK BOOT FAILURE, INSERT SYSTEM DISK AND PRESS ENTER"

Það koma allir HD fram í BIOS en það virðist sem að "drive letter" á windows disknum hafi breyst úr E: í F: en það hefur gerst áður sem að varð til þess að ég formattaði vitlausann disk :x

Öll hjálp væri vel þegin :)

Sent: Sun 10. Okt 2004 19:40
af MezzUp
Sýnist að þú hafir bara tengt IDE kaplana vitlaust.........

Getur tengt þá einsog þeir voru, eða breytt First boot device í BIOS :)

Sent: Sun 10. Okt 2004 19:45
af Mysingur
Nei ég tók nefnilega aldrei IDE kaplana úr sambandi, bara rafmagnið...

Sent: Sun 10. Okt 2004 20:31
af MezzUp
hmm, ertu búinn að gera einhvern diskinn ,,Dynamic"?

Sent: Sun 10. Okt 2004 23:25
af Mysingur
neibb

Sent: Mán 11. Okt 2004 01:53
af Mysingur
haha komið í lag :megasmile
Var búinn að setja nýjann boot sector á diskinn og eitthvað og svo bara kom þetta allt í einu eftir nokkur reboot
og ég sem var næstum búinn að ganga svo langt að formatta :)

Sent: Þri 12. Okt 2004 00:47
af Mysingur
arg :x þetta gerðist aftur... hún var farin að láta eitthvað illa svo ég rebootaði og þá kom þetta aftur.
Náði samt að redda því bara með að boota með XP disk í en þegar það kom "press any key to boot form cd..." þá ýtti ég ekki á neitt og hún bootaði bara venjulega :-s

En ef það er einhver sem hefur einhverja hugmynd um hvað gæti verið að þá væri smá hjálp vel þegin :)

Sent: Þri 12. Okt 2004 17:28
af MezzUp
Gæti verið að harði diskurinn sé eitthvað slappur?
Ég myndi gera fixmbr og fara svo í BIOS og læsa boot sectornum(enable virus protection eða álíka)

Sent: Þri 12. Okt 2004 17:35
af Mysingur
MezzUp skrifaði:Gæti verið að harði diskurinn sé eitthvað slappur?
Ég myndi gera fixmbr og fara svo í BIOS og læsa boot sectornum(enable virus protection eða álíka)

fixmbr? ég gerði fixboot, er það kannski það sama?
en eg prófa þetta, takk :)

Edit: það virkaði ekki að gera fixmbr en ég fann EKKERT í sambandi við boot sector eða eitthvað álíka bios :-k

Sent: Þri 12. Okt 2004 19:36
af Mysingur
ég keyrði þetta Segate SeaTools forrit og fékk "Failed with critical errors" í File structure testinu, og þetta kom á báðum partitionunum á disknum :disastreus

spurning um að henda honum bara út í Start og heimta nýjann :roll:

Edit: wtf?!? keyrði þetta test líka ´´a WD disknum og hinum Samsung-inum og þeir fengu líka "failed with..." :-s