Lokun.is

Skjámynd

Höfundur
Baldurmar
FanBoy
Póstar: 784
Skráði sig: Þri 20. Jún 2006 12:07
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

Lokun.is

Pósturaf Baldurmar » Mið 30. Okt 2013 21:02

Jæja, núna er ég kominn með nóg af Vodafone og sjálfkrafa hækkunum á niðurhalsmagni, erum 3 á heimili og notum netið mjög mikið, erum að pæla að fara í 250gb leiðina hjá þeim, en fór svo að pæla í lokun.is.

Ég var í Betunni hjá þeim og það var frekar vonlaust þá, stundum og stundum ekki sem innanlands tenging virkaði, og stundum alls enginn tenginn. Er einhver hérna að nota þetta daglega? Hvernig er þetta að reynast fólki ?
Eru þeir sem hafa notað þetta að verða varir við hraðabreytingar á tengingu á álagstímum. Í betunni fór t.d hraðinn stundum niður í 4-7MB/s úr 50MB/s


Gigabyte X570 - Ryzen 5900 @ 4.5ghz all core - 5ghz single core - 64gb TridentZ 3400mhz - GTX 1070 8gb

Skjámynd

mjámjá
Græningi
Póstar: 45
Skráði sig: Fim 17. Jan 2013 23:21
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Lokun.is

Pósturaf mjámjá » Mið 30. Okt 2013 21:47

Ég notaði lokun (beta) í smá stund en fanns VPN hjá Netsamskiptum virka betur, betri tenging, lokun.is átti til með að detta út hjá mér.
http://www.netsamskipti.is/hysingar/vpn-tengingar/



Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1548
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Reputation: 215
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: Lokun.is

Pósturaf depill » Fim 31. Okt 2013 01:16

Ég hef bara prófað HideMyAss ProVPN sem eru með punkt sem er innanlands og það virkar allavega mjög vel http://hidemyass.com



Skjámynd

chaplin
Kóngur
Póstar: 4324
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Reputation: 382
Staða: Ótengdur

Re: Lokun.is

Pósturaf chaplin » Fim 31. Okt 2013 03:42

depill skrifaði:Ég hef bara prófað HideMyAss ProVPN sem eru með punkt sem er innanlands og það virkar allavega mjög vel http://hidemyass.com

x2, mjög þæginlegt að hafa líka möguleika á að hafa þjóna um allan heim, sérstaklega USA.


youtube.com/c/nútímatækni
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS


benediktkr
Ofur-Nörd
Póstar: 279
Skráði sig: Fim 16. Feb 2012 20:41
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Lokun.is

Pósturaf benediktkr » Fim 31. Okt 2013 13:30

Baldurmar skrifaði:Eru þeir sem hafa notað þetta að verða varir við hraðabreytingar á tengingu á álagstímum. Í betunni fór t.d hraðinn stundum niður í 4-7MB/s úr 50MB/s


Hæ, ég rek Lokun.is.

Mér finnst mjög hæpið að þú hafir náð 50MB/s þar sem að 100mbit tenging er 11MB/s. En ég get ekki garanterað þér fullum hraða (stendur líka í FAQ), en ég er að keyra í dag 11 vpn nóður á 1gbps samböndum. Ef þú varst með í byrjun betunar þá voru vélarnar mikið færri og notendur ennþá fleiri. Það var nefninlega erfitt að reka fullt af netþjónum og gefa þjónustuna frítt.

Eftir að betuni lauk hef ég ekki heyrt neinn kvarta undan hraða (en ef einhver finnst það vara ábótavant með hraðan, endilega láta mig vita. Reynum allt sem hægt er til þess að þið haldið sem mestum hraða).

Eitt sem vert er að benda á er að Netsamskipti [1] hafa kennitöluna þína og contact upplýsingar. Lokun er hinsvegar privacy þjónusta. Ekkert er loggað, og ég hef ekki einu sinni tölvupóstin þinn nema þú valdir að gefa mér hann.

[1]: Ég hélt því fram að Netsamskipti logga traffík á sínu VPN því ég hélt það færi eftir fjarskiptalögum. En eftir að hafa talað við eiganda (?) Netsamskipta þá var útskýrt fyrir mér að það nær ekki yfir VPN tenginguna þeirra, sem eru góðar fréttir. Ég er ekki með neinn móral út í samkeppnisaðila Lokunar.
Síðast breytt af benediktkr á Fim 31. Okt 2013 14:35, breytt samtals 1 sinni.




benediktkr
Ofur-Nörd
Póstar: 279
Skráði sig: Fim 16. Feb 2012 20:41
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Lokun.is

Pósturaf benediktkr » Fim 31. Okt 2013 13:34

mjámjá skrifaði:Ég notaði lokun (beta) í smá stund en fanns VPN hjá Netsamskiptum virka betur, betri tenging, lokun.is átti til með að detta út hjá mér.


Rétt er að taka fram að þá var Lokun.is að gefa sína þjónustu frítt og við höfðum ekkert fjármagn inn. Það bókstaflega flykktist til okkar fullt af fólki. Nú í dag þegar við erum að fá inn peninga lýtur málið öðruvísi út og við getum stækkað eftir þörfum.
Síðast breytt af benediktkr á Fim 31. Okt 2013 14:06, breytt samtals 1 sinni.




cartman
has spoken...
Póstar: 172
Skráði sig: Sun 11. Des 2011 14:01
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Lokun.is

Pósturaf cartman » Fim 31. Okt 2013 14:02

Ég er búinn að vera að nota lokun frá því í betunni og ég hef ekki verið að lenda í vandamálum með þjónustuna eftir að hún kom úr betu.

Ég er að nota lokun bæði á Windows og Linux. Hraðinn er mjög fínn, er að ná um 5MB/sek með ljósnets tenginu og oft meira.



Skjámynd

emmi
Of mikill frítími
Póstar: 1877
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 10:15
Reputation: 63
Staðsetning: Reykjanesbær
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Lokun.is

Pósturaf emmi » Fim 31. Okt 2013 14:08

Benedikt: Hættu þessu bulli með að Netsamskipti séu að logga allt sem notandinn gerir, það er einfaldlega ekki rétt.




benediktkr
Ofur-Nörd
Póstar: 279
Skráði sig: Fim 16. Feb 2012 20:41
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Lokun.is

Pósturaf benediktkr » Fim 31. Okt 2013 14:32

emmi skrifaði:Benedikt: Hættu þessu bulli með að Netsamskipti séu að logga allt sem notandinn gerir, það er einfaldlega ekki rétt.


Sæll Emil.

Ég var að tala við Brynjar (Netsamskipti) og hann var að útskýra fyrir mér málið. Netsamskipti fylgjast semsagt ekki með umferð á sínu VPN, en eru bundir fjarskiptalögum hvað varðar þjónustur sem þeir hýsa sjálfir. Misskilingurinn stafaði af því sem þú hafðir sagt hérna að openvpn.is færi eftir lögum um fjarskiptafyrirtæki. Þú sagðir líka að Openvpn.is loggaði ekki hvað notendur gerðu, en ég taldi það vera í þversögn við það að þið farið eftir fjarskiptalögum. Núna veit ég betur og hef leiðrétt postinn fyrir ofan líka.

En lögin um fjarskiptafyrirtæki er að finna hérna: http://www.althingi.is/lagas/140b/2003081.html og hafa m.a. þetta að segja:

42. gr. 3 mgr. segir:
[Þrátt fyrir ákvæði 1. og 2. mgr. skulu fjarskiptafyrirtæki, í þágu rannsókna [sakamála]1) og almannaöryggis, varðveita lágmarksskráningu gagna um fjarskiptaumferð notenda í sex mánuði. Lágmarksskráningin skal tryggja að fjarskiptafyrirtæki geti upplýst hver af viðskiptavinum þess var notandi tiltekins símanúmers, IP-tölu eða notandanafns, jafnframt því að upplýsa um allar tengingar sem notandinn hefur gert, dagsetningar þeirra, hverjum var tengst og magn gagnaflutnings til viðkomandi notanda. Fjarskiptafyrirtæki skal tryggja vörslu framangreindra gagna og er óheimilt að nota eða afhenda umræddar upplýsingar öðrum en lögreglu eða ákæruvaldi í samræmi við ákvæði 3.


Þessi lög eru afskaplega súr og skrýtin. Mæli með fyrir áhugasama að lesa 42. gr. í heild sinni. Þau eru eitthvað sem þarf að breytast ef/þegar IMMI verður að veruleika.

Viðbót: Þessi lög ná semsagt yfir internetþjónustuveitur á Íslandi, s.s. Síminn, Vodafone, Hringdu osfrv. Þannig ef þú villt ekki vera loggaður samkvæmt þessum lögum geturðu t.d. notaði Tor eða keypt VPN, annaðhvort hjá Lokun.is eða Netsamskiptum. (Eða erlendis frá, en þá tikkar erlenda gagnamagnið)
Síðast breytt af benediktkr á Fim 31. Okt 2013 14:59, breytt samtals 2 sinnum.




blitz
Of mikill frítími
Póstar: 1753
Skráði sig: Þri 22. Jan 2008 13:36
Reputation: 140
Staða: Ótengdur

Re: Lokun.is

Pósturaf blitz » Fim 31. Okt 2013 14:53

Hef verið að nota https://www.privateinternetaccess.com/ fyrir mínar VPN þarfir, 33$ á ári, engir loggar og fínn hraði.


PS4


marijuana
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 349
Skráði sig: Fim 04. Feb 2010 15:09
Reputation: 7
Staðsetning: Seltjarnarnes
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Lokun.is

Pósturaf marijuana » Fim 31. Okt 2013 15:07

blitz skrifaði:Hef verið að nota https://www.privateinternetaccess.com/ fyrir mínar VPN þarfir, 33$ á ári, engir loggar og fínn hraði.


En þetta er erlent. Sem er auðvitað tilvalið fyrir þá sem vilja meira gagnamagn eins og þráðarhöfundur vill. Ekki rétt ? O:)




benediktkr
Ofur-Nörd
Póstar: 279
Skráði sig: Fim 16. Feb 2012 20:41
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Lokun.is

Pósturaf benediktkr » Fim 31. Okt 2013 15:11

Þá ertu að borga erlent niðurhal fyrir alla umferð sem fer yfir VPNið (nema að privateinternetaccess.com hafi servera á íslandi, ég þekki það ekki neitt). En það eru fleiri ástæður til að nota VPN en að fá meira gagnamagn til að nota.



Skjámynd

Höfundur
Baldurmar
FanBoy
Póstar: 784
Skráði sig: Þri 20. Jún 2006 12:07
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

Re: Lokun.is

Pósturaf Baldurmar » Fim 31. Okt 2013 16:00

Takk fyrir góð svör ! Ég var að sjálfsögðu að rugla með stóra og litla stafi þarna Benedikt ;)
Ég kem án efa með að prófa þetta hjá lokun.

Og já ég er mest að hugsa þetta til að draga úr gagnamagni, þó það sé að sjálfsögðu gott að vita að það þarf dómsúrskurð til að sjá hvað ég var að gera á netinu ;)


Gigabyte X570 - Ryzen 5900 @ 4.5ghz all core - 5ghz single core - 64gb TridentZ 3400mhz - GTX 1070 8gb


benediktkr
Ofur-Nörd
Póstar: 279
Skráði sig: Fim 16. Feb 2012 20:41
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Lokun.is

Pósturaf benediktkr » Fim 31. Okt 2013 16:02

Baldurmar skrifaði:Og já ég er mest að hugsa þetta til að draga úr gagnamagni, þó það sé að sjálfsögðu gott að vita að það þarf dómsúrskurð til að sjá hvað ég var að gera á netinu ;)


Jafnvel þó það kæmi einhver með dómsúrskur til Lokunar, höfum við engin gögn til að sýna, vegna þess að við söfnum þeim ekki til að byrja með. Við tökum þett privacy mjög alvarlega.

Af heimasíðuni okkar:
Hvaða notendaupplýsingar geymið þið?

Við geymum notendanafnið þitt, dulritað lykilorð, hversu langt er liðið af áskriftartímabilinu þínu, efstirstöðvar af inneign (áskriftin er fyrirframgreidd).

Þessar upplýsingar eru allar tengdar notendanafni engöngu, geymdar dulritaðar og verða ekki afhentar undir neinum kringumstæðum án dómsúrskurðar.