Síða 1 af 1
Hjálp með netkerfi
Sent: Fim 23. Sep 2004 20:40
af Le Drum
Sælir.
Nú er ég orðinn gráhærður og fara úr hárum,
málið er þannig að ég er með tvær borðtölvur, plús eina fartölvu sem ég tengi í gegnum router, Speedtouch 510.
Önnur PC tölvan er tengd í gegnum höbb (SMC-EZ 6516TX) inn á routerinn, fartölvan og hin beint inn á router.
Allar tölvurnar komast á netið, allar með Windows XP PRO, með SP2.
Vandamálið er að ekki er hægt að komast á milli þeirra á engan veg, allar harðlæstar gegn hvort annari.
Innbyggði eldveggurinn er ekki notaður (nota KERIO PERSONAL FIREWALL)
Get sent gögn milli þeirra með því að nota MSN Messenger, sé að gögnin fara beint á milli, ekkert mál og súper hratt miðað við netið allavegna.
Einhver sem getur haft einhverja hugmynd hvað er í gangi hérna ???
Sent: Fim 23. Sep 2004 20:53
af BlitZ3r
firewallin blockar að aðrar tölvur tegnist henni og hún tengist öðrum. var með norton internet security og það blockaði að ég kæmist í aðrar tölvur og öfugt. þannig að mín lausn var að slökkva á firewallinum það skiptir engu því það er firewall á routernum
Sent: Fim 23. Sep 2004 21:06
af Voffinn
BlitZ3r skrifaði:firewallin blockar að aðrar tölvur tegnist henni og hún tengist öðrum. var með norton internet security og það blockaði að ég kæmist í aðrar tölvur og öfugt. þannig að mín lausn var að slökkva á firewallinum það skiptir engu því það er firewall á routernum
Þú hefur greinilega ekki græna glóru um hvað firewall er eða hvað hann gerir. Viltu þá gjöra svo vel og sleppa því að deila þessari ótrúlegu visku þinni með öðrum, því þú endar bara með að rugla aðra.
Firewall kemur ekkert endilega í veg fyrir að tengingar fari í gegn, þetta er allt hægt að stilla til að hleypa ákveðinni gerð af traffík í gegn og blokka aðra út.
http://en.wikipedia.org/wiki/Firewall
Sent: Fim 23. Sep 2004 21:20
af Le Drum
Það er greinilega KERIO sem er að bögga.
Þarf greinilega að fara læra betur á hann

Sent: Fim 23. Sep 2004 23:37
af gumol
Geturu pingað á milli þeirra?
Það er hugsanlega Kiero Firewallinn sem er að trufla þetta. Prófaðu að slökkva á honum í báðum tölvunum og reyna. Ef það virkar ekki er þetta ekki Kiero.
Sent: Fös 24. Sep 2004 08:59
af bizz
Já geturu pingað?
Hvernig reyniru annars að tengjast öðrum tölvum?
Sent: Fös 24. Sep 2004 14:58
af Le Drum
Get pingað milli tölva, time<1ms.
Prófaði að slökkva á KERIO á þeim öllum og get farið þannig á milli.
Eins og ég sagði, þarf greinilega að fikta eitthvað í eldveggnum, ætti að geta fundið eitthvað út úr því
Málið er að þetta er í félagsmiðstöð og til þess að geta varið þessar þrjár fyrir forvitnum unglingum þegar er verið að lana, þá væri gott ef einhver gæti bent mér á sniðuga lausn

Þú átt að geta stillt firewallinn
Sent: Lau 23. Okt 2004 14:41
af Sera
Þá setur þú fastar ip tölur á tölvurnar 3 sem eiga að vera saman í workgroup, síðan áttu að geta stillt á firewallnum hvaða ip tölur ná í gegn, þar setur þú þessar föstu tölur sem eru á tölvunum þínum eða t.d. kippuna 192.168.0.2-192.168.0.4 þá eiga tölvurnar að vera með iptölurnar 192.168.0.2 /192.168.0.3 og 192.168.0.4 Þannig hleypir eldveggurinn þessum iptölum í gegn en engum öðrum, þá geta þessar 3 tölvur talað saman og sharað gögnum en hinar ekki komist inn.
Vona að þú skiljir hvað ég er að fara.