Síða 1 af 1
ADSL símans, bara 256 í upload???
Sent: Fim 23. Sep 2004 14:11
af dabbi2000
sælir stríðsfélagar
þurfti nýlega að skipta frá OgVoda yfir í Simann og er mér nú sagt að max upload hraði hjá þeim er 256kbs, hjá OgVoda gat ég valið allt upp í 1000!!!!!!!!
WTF?
Sent: Fim 23. Sep 2004 15:32
af gnarr
mesta sem adsl ræður við er 836Kbps í upload. en já. síminn er bara með 256 í upload nema á mjög dýrum tengingum.
Sent: Mán 27. Sep 2004 19:15
af Emizter
gnarr skrifaði:mesta sem adsl ræður við er 836Kbps í upload. en já. síminn er bara með 256 í upload nema á mjög dýrum tengingum.
ADSL á alveg að ráða við 1024 í upload, eða amk á PPPoE kerfinu, en það er hinsvegar ekki allur búnaður sem styður það.
Sent: Fös 15. Okt 2004 01:12
af GoDzMacK
ég er með 3Mb tengingu og er með 384

hjá símanum
Sent: Fös 15. Okt 2004 07:16
af viddi
þú ert með 768 í ul hjá þeim þeir eru nýbúnir að hækka hraðan ég var með 1500 / 256 núna er ég með 2000 / 512

Sent: Fös 15. Okt 2004 11:39
af fallen
3072 kb/s dl og 768 kb/s ul hér.

Sent: Mið 20. Okt 2004 04:38
af GoDzMacK
já er með 768 í upload en ef þú gerir 3072Kb/3,072Mb deilt í 8 færðu 384KB því tengingar eru mældar í Megabit/Kilobit(en oftast sagt 3Mb í auglýsingum) í dag útaf því þær eru svo hægar meðan við allt annað(0,384MB/384KB, hljómar það nokkuð eitthvað hratt? varla=sölutrick gæti ég haldið) og 8 Megabit eru 1 MegaByte(sama með KiloByte/bit og allt það) en gæti þá einhver útskýrt fyrir mér af hverju þeir hafa það 768 í stað 384? ef ég tel rétt.
Því ég er bara að dla á 360-384KB/sec, og finnst þá miklar líkur að ég sé að reikna þetta rétt.
Sent: Mið 20. Okt 2004 17:42
af MezzUp
díses, hvað ertu gamall maður? Maður getur ómögulega skilið sumt sem þú skrifar, betra að vanda sig aðeins og lesa yfir pósta.
GoDzMacK skrifaði:......tengingar eru mældar í Megabit/Kilobit(en oftast sagt 3Mb í auglýsingum)....
Skil þetta ekki alveg, Mb er megabit. MB er hinsvegar megabæt.
GoDzMacK skrifaði:......tengingar eru mældar í Megabit/Kilobit(en oftast sagt 3Mb í auglýsingum) í dag útaf því þær eru svo hægar meðan við allt annað(0,384MB/384KB, hljómar það nokkuð eitthvað hratt? varla=sölutrick gæti ég haldið)
úff, tengingar hafa nær alltaf í gegnum tíðina verið mældar í bitum(sbr. 10Mbps netkort, 33kbps módem....) vegna þess að þær eru serial og senda þessvegna bara einn bita í einu. (right?)
GoDzMacK skrifaði:en gæti þá einhver útskýrt fyrir mér af hverju þeir hafa það 768 í stað 384?
jájá, get kannski úskýrt þetta ef ég vissi hvað þú værir að tala um!
EDIT: hmm, ekki ertu að spyrja afhverju UPload hraðinn er gefinn upp sem 768kbitar/s þegar þú ert að DOWNloada 384kbætum/s??
í guðana bænum, sýndu smá metnað ef þú ætlar að hanga hérna.
Sent: Mið 20. Okt 2004 19:17
af Pandemic
Mezzup ertu nokkuð á túr

Sent: Mið 20. Okt 2004 20:54
af GoDzMacK
mezzup þú getur bara ekki skilið mig útaf þetta er flókið og nei ég á ekki við neitt að stríða, svona er þetta eins og ég lærði þetta komdu nú og kenndu mér þá hvernig þetta er ef þú veist það..
Sent: Mið 20. Okt 2004 20:55
af gumol
Nei, hann er að spara okkur tíma. Ef svona verður látið ganga mun það taka helmingi lengri tíma eða meira að lesa pósta hérna á vaktinni.
Það á ekki að vera þannig að maður þurfi að eyða heillöngum tíma í að reyna að skilja það sem fólk er að skrifa.
Þessir örfáu sem eru svona lesblindir verða því miður að gjalda fyrir leti og metnaðarleysi annara.
Sent: Mið 20. Okt 2004 20:55
af GoDzMacK
og já Megabit eru sögð Mb og MegaByte eru sögð MB ef þú vissir það ekki og btw google er meirisegja með sönnun ef þú trúir mér ekki
Sent: Mið 20. Okt 2004 21:00
af GoDzMacK
úps þetta með 768 upload og af hverju ég er að dla á 384 draslið var bull í mér var frekar þreyttur, en á meðan ég man er enginn fullkominn og lærir af mistökum, jæja flestir læra af þeim já.
Sent: Mið 20. Okt 2004 21:01
af gumol
Var hann ekki að segja það?
Við erum ekki að setja útá það sem þú varst að tala um. Við erum að setja útá hvernig þú sagðir það. Engir punktar, ein stór setning og farið úr einu í annað svo það er ekki mögleiki að skilja það sem þú sagðir almennilega.
Kennaraverkfallið er farið að hafa áhrif

Sent: Mið 20. Okt 2004 21:08
af GoDzMacK
og mezzup það er hægt að mæla tengingar í MB(já ég veit muninn á MB og Mb) en það er samt ekki gert, þarft ekki endilega að segja 3072Mb getur alveg sagt 384KB því það er nákvæmlega sami hraðinn, en Mb er bara vinsælara og þess vegna er það notað, og líka 3Mb hljómar betur allavega fyrir mig.
Og fyrirgefið með að þetta sé 4 pósturinn í röð en datt alltaf annað í hug þegar ég las þetta betur og var búinn að ýta á "leggja inn" takkann
[Viðbót 1]
:/ þessi msg um hitt dótið var bra til mezzup ekki til þín né annara, og þarf varla punkta né kommur í þessa setningu sem ég sagði fyrst því hún væri mjög stutt án útskýringanna sem eru inní svigunum. Bara smá útúr snúningur sem þú gætir þurft að lesa tvisvar
[Viðbót 2]
jæja seinasti pósturinn, nei hann var ekki bara að setja útá þetta með upload 768 og ég dla bara á 384 sem ég viðurkenni sem mistök að hafa ekki lesið mig nógu vel um, þar sem ég greindi ul og dl það sama. En hann var að segja að það væri ekki hægt að mæla ADSL,SHDSL tengingar og flr. í MB, sem er náttúrulega bara bull.
Ps. veit að ég get gleymt mér um !?,. og allt það en er að reyna að troða þessu inní hausinn á mér

Sent: Mið 20. Okt 2004 21:22
af gumol
Þú getur ýtt á breyta takkan áður en einhver er búnn að svara.
Sent: Mið 20. Okt 2004 21:39
af GoDzMacK
úff búinn að gleyma því en eins og ég sagði allir læra a mistökum

Sent: Mið 20. Okt 2004 22:49
af MezzUp
Pandemic skrifaði:Mezzup ertu nokkuð á túr

hehe, nei, bara drullupirraður á mönnum sem eiga það ekki skilið að vera hérna, eða sýna það allavega ekki.
GoDzMacK skrifaði:mezzup þú getur bara ekki skilið mig útaf þetta er flókið og nei ég á ekki við neitt að stríða, svona er þetta eins og ég lærði þetta komdu nú og kenndu mér þá hvernig þetta er ef þú veist það..
Ég sagði að maður gæti ekki skilið sumt sem þú skrifar, og svo virðast nú einhverjir vera sammála mér. Einsog þú viðurkennir síðan seinna þá varstu ,,frekar þreyttur", skrítið að þú skulir ekki taka það fram þarna......
MezzUp skrifaði:Mb er megabit. MB er hinsvegar megabæt
GoDzMacK skrifaði:og já Megabit eru sögð Mb og MegaByte eru sögð MB
lastu ekki bréfið mitt?MezzUp skrifaði:tengingar hafa nær alltaf í gegnum tíðina verið mældar í bitum(sbr. 10Mbps netkort, 33kbps módem....) vegna þess að þær eru serial og senda þessvegna bara einn bita í einu
GoDzMacK skrifaði:og mezzup það er hægt að mæla tengingar í MB(en það er samt ekki gert, þarft ekki endilega að segja 3072Mb getur alveg sagt 384KB því það er nákvæmlega sami hraðinn, en Mb er bara vinsælara og þess vegna er það notað, og líka 3Mb hljómar betur allavega fyrir mig......
En hann var að segja að það væri ekki hægt að mæla ADSL,SHDSL tengingar og flr. í MB, sem er náttúrulega bara bull.
ahh, aftur seturðu mér orð í munn, vinsamlegast ekki gera það. Ég sagði ekki að það væri ekki hægt að mæla ADSL í MB, ég var að benda á að það væri venjan að mæla nettengingar í Mbps, en ekki eitthvað ,,söltutrikk" einsog þú hélst
Sent: Fim 21. Okt 2004 05:11
af GoDzMacK
MezzUp skrifaði:úff, tengingar hafa nær alltaf í gegnum tíðina verið mældar í bitum(sbr. 10Mbps netkort, 33kbps módem....) vegna þess að þær eru serial og senda þessvegna bara einn bita í einu. (right?)
Myndi nú ekki segja mikið því þú hefur ekki hugmynd heldur útaf þessu í sviganum sem þú hafðir ekki í hinu, þar sem þú varst að reyna að rakka mig niður og lýta út ofsa "cool".
Og þetta með að enginn skyldi mig er bara útaf þessum svigum sem ég hafði inní til að útskýra, svo að hver sem er myndi skilja þetta og ef þú værir nógu gáfaður þá gætiru sleppt þeim, því þetta eru bara dæmi um það sem ég er að tala um í léttu formi"PUNKTUR"
Ps. átt varla meira skilið en ég að vera hérna, og með þessa rosa reiði þína prufaðu að skalla vegg gæti virkað.
Sent: Fim 21. Okt 2004 10:27
af Cary
Þó þú segist ekki vera á túr, prófaðu að fá þér súkkulaði.
og ég minni á breytatakkann þurfi að breyta eða bæta einhverju við..

Sent: Fim 21. Okt 2004 16:40
af MezzUp
GoDzMacK skrifaði:Myndi nú ekki segja mikið því þú hefur ekki hugmynd heldur útaf þessu í sviganum sem þú hafðir ekki í hinu
Hvað hafði ég ekki í hinu hverju? Ég hafði víst hugmynd, en ég var ekki 100% viss, og þá vill maður passa að einhver gleypi ekki við öllu sem maður segir.
GoDzMacK skrifaði:Og þetta með að enginn skyldi mig ......
Ha? Ég hélt að það hefði bara verið ég sem að hefði ekki skilið þig afþví að ég var svo heimskur??

GoDzMacK skrifaði:.....og ef þú værir nógu gáfaður þá gætiru sleppt þeim.....
hah, sniðugt að þú sést að ráðast í vitsmuni mína, en jæja, sleppum þá svigunum:
já er með 768 í upload en ef þú gerir 3072Kb/3,072Mb deilt í 8 færðu 384KB því tengingar eru mældar í Megabit/Kilobit í dag útaf því þær eru svo hægar meðan við allt annað og 8 Megabit eru 1 MegaByte en gæti þá einhver útskýrt fyrir mér af hverju þeir hafa það 768 í stað 384? ef ég tel rétt.
Því ég er bara að dla á 360-384KB/sec, og finnst þá miklar líkur að ég sé að reikna þetta rétt.
Sent: Fös 22. Okt 2004 01:57
af GoDzMacK
Eins og ég sagði ruglaði ég óvart ul og dl saman og sagðist fyrirgefa það, en þú heldur áfram að nudda salti í sárið, en það sem ég er að reyna að segja er að það er alveg hægt að mæla tengingar í MB, og ég er alveg viss um að fólk myndi fá sér stærri tengingar ef 3Mb tenging væri auglýst sem 384KB tenging, því ekki allir vita muninn á Mb og MB og segja "váá 3 megabæta tenging, best að fá sér hana á svona flottu verði", þannig það væri hægt að kalla þetta scam en hverjum er ekki sama, því 3Mb tenging er ekki lítið fyrir 1-3 notendum, finnst mér allavega.
Og ég var ekki að kalla þig heimskan heldur að kenna þér að nota sviga.
Ps. best að laga allt t.d. að setja stóran staf fyrst og bæta við kommum og svona, svo að ég verði ekki aðal hlátursefni gumols, og lendi í öðrum pósti sem er version 2 af mér leiðrétt af gumol.
Sent: Fös 22. Okt 2004 09:09
af gumol
GoDzMacK skrifaði:Eins og ég sagði ruglaði ég óvart ul og dl saman og sagðist fyrirgefa það...
Vars þú að fyrirgefa sjálfum fyrir að gera þetta?
Það er akkurat svona sem ég er að tala um. Kanski erfitt fyrir þig að setjast niður og reyna að læra þetta en þú lærir allavega ekkert ef enginn leyðréttir þig.
En það er mjög mikill misskilningur ef þú heldur að ég sé að gera grín að þér og að ég hlæi af þér. Ég er að reyna að benda þér á hvað má betur fara.
En er ekki komið nóg núna? Time to move on.
Sent: Fös 22. Okt 2004 13:36
af MezzUp
gumol skrifaði:En er ekki komið nóg núna? Time to move on.
I hear that

Sent: Sun 24. Okt 2004 07:46
af GoDzMacK
GoDzMacK skrifaði:Eins og ég sagði ruglaði ég óvart ul og dl saman og sagðist fyrirgefa það...
Vars þú að fyrirgefa sjálfum fyrir að gera þetta?[/quote]
Nei alls ekki, var nokkurn veginn að afsaka þetta rugl í mér,

já gæti alveg sagt að þessi broskall lýsi hvað ég er að meina.
Og þetta með leiðréttinguna, er alls ekkert reiður ef eitthvað er, er eiginlega feginn því þú fékkst mig t.d. til að nota .,!? aftur, og svona sem ég nennti eiginlega ekki að nota áður. Hef sennilega bara misskilið þetta því t.d. þú varst að auglýsa þetta á #vaktin.is og svoleiðis, og vissi ekkert hvað ég átti að halda þannig.. Þetta var eiginlega bara
STÓR misskilningur.

Ps. Verð bara að gera þetta.
gumol skrifaði:Það er akkurat svona sem ég er að tala um. Kanski erfitt fyrir þig að setjast niður og reyna að læra þetta en þú lærir allavega ekkert ef enginn leyðréttir þig.
Það er leiðréttir.
