Síða 1 af 1

2 Netkort

Sent: Mið 22. Sep 2004 13:36
af Andri Fannar
Hvað græði ég á því ?

Sent: Mið 22. Sep 2004 13:54
af Stutturdreki
Ein tölva á tveimur netum?

Td. ef þú ert með utanáliggjandi ADSL módem tengt í eitt netkort þá geturðu sharað tengingunni í gegnum hitt netkortið.

Einnig ef þú setur td. upp Linux server með firewall (og fullt að öðru skemmtilegu dóti) þá seturðu þá vél á milli netsins og tengingarinnar út úr húsi. Þannig að öll internet umferð fari í gegnum þessa einu vél.

Sent: Mið 22. Sep 2004 16:27
af Andri Fannar
hmm k , ég er sko með router og tengt í onboard lan og ég fann uppí skáp netkort sem ég gæti alveg notað en þá td gæti þetta virkað sem 5 raufin á routernum ?

Sent: Mið 22. Sep 2004 18:24
af MezzUp
SvamLi skrifaði:hmm k , ég er sko með router og tengt í onboard lan og ég fann uppí skáp netkort sem ég gæti alveg notað en þá td gæti þetta virkað sem 5 raufin á routernum ?

Ef að þú veist ekki í hvað þú þarft að nota það, þá þarftu ekki að nota það :P

En þetta gæti virkað sem fimmta raufin, í þeim skilningi að þú getir tengst netinu í henni(einsog portunum á router) ef að þú stillir ICS á í windows.
En ég veit ekki hvort að þetta virkar einsog hvað annað switch port á routernum(þ.e. sem leyfir öllum tengdum tölvum að tala sama), nema kannski með flóknari uppsetningu í PC tölvunni