Síða 1 af 1

Er Norton Systemworks það besta eða eru aðrir möguleikar?

Sent: Lau 18. Sep 2004 18:09
af Takai
Ég er núna búinn að vera að nota Norton Systemworks 2004 í nokkurn tíma og get svo sem ekki kvartað ... tölvan er vírusfrí og gengur vel.

Er bara að pæla hvort að það sé eitthvað annað/önnur forrit sem að ég ætti frekar að ná mér í til að bæta vinnsluna á tölvunni eitthvað?

Eins og er þá er ég að nota:

Norton Systemworks 2004
BlackIce
Spybot
Adaware
Diskeeper

Sem sagt er að leita eftir hvort að einhver viti um sambærilega eða betri vírusvörn sem að, eins og norton, er öflugur og stoppar vírusa og orma og annað áður en að það kemst inn á tölvuna og einnig hugsanlega eitthvað villuleitarforrit fyrir windows (xp) ef að þess er virkilega þörf í raun og veru og samanlagt myndi þá koma betur út í vinnslu en Norton.

Svo ef að það eru fleiri nauðsynlegir hlutir í Norton sem að ég er ekki að telja upp en einhver veit um góðan staðgengla þá væri fínt að heyra um þá.

Sent: Sun 19. Sep 2004 12:21
af tms
Hvað meinaru við að stoppa vírusa og orma áður en þeir komast í tölvuna?

Sent: Sun 19. Sep 2004 18:02
af gumol
Held að hann sé að meina "áður en þeir sýkja tölvuna"

Sent: Mið 22. Sep 2004 15:05
af Grobbi
SystemMechanic er snilld

Sent: Mið 22. Sep 2004 15:42
af ICM
Norton WinDoctor og flest verkfærin í þessum pakka eru betri en SystemMecanic þó sjálfsagt sé að nota þau samhliða.