Ég er núna búinn að vera að nota Norton Systemworks 2004 í nokkurn tíma og get svo sem ekki kvartað ... tölvan er vírusfrí og gengur vel.
Er bara að pæla hvort að það sé eitthvað annað/önnur forrit sem að ég ætti frekar að ná mér í til að bæta vinnsluna á tölvunni eitthvað?
Eins og er þá er ég að nota:
Norton Systemworks 2004
BlackIce
Spybot
Adaware
Diskeeper
Sem sagt er að leita eftir hvort að einhver viti um sambærilega eða betri vírusvörn sem að, eins og norton, er öflugur og stoppar vírusa og orma og annað áður en að það kemst inn á tölvuna og einnig hugsanlega eitthvað villuleitarforrit fyrir windows (xp) ef að þess er virkilega þörf í raun og veru og samanlagt myndi þá koma betur út í vinnslu en Norton.
Svo ef að það eru fleiri nauðsynlegir hlutir í Norton sem að ég er ekki að telja upp en einhver veit um góðan staðgengla þá væri fínt að heyra um þá.