Síða 1 af 1

Adobe Acrobat Reader er slooow

Sent: Mið 08. Sep 2004 10:55
af gumol
Í þessi örfáu skipti sem ég þarf að opna pdf skjöl af netinu tekur það heillangan tíma að starta Acrobat reader og enn lengri tíma að opna skjalið sjálft. IE verður not responding á meðan og ég verð pirraður.

Hafið þið einhverja sniðuga lausn við þessu eða jafnvel önnur sambærileg forrit?

Sent: Mið 08. Sep 2004 11:05
af Stutturdreki
Minnir að þú getir notað GhostView til að lesa PDF skjöl, en veit ekki hvernig það virkar varðandi hraða eða opna skrár yfir net.

Sent: Mið 08. Sep 2004 11:06
af Pandemic
Ég get notað firefox til að opna adobe acrobat reader og þá er það miklu hraðara en að starta acrobat með ie

Sent: Mið 08. Sep 2004 11:11
af Voffinn
Save'a skjölin.

Sent: Mið 08. Sep 2004 11:27
af Stutturdreki
Pandemic skrifaði:Ég get notað firefox til að opna adobe acrobat reader og þá er það miklu hraðara en að starta acrobat með ie


Hmm.. notar Firefox ekki bara Acrobat pluggin eins og IE?

Sent: Mið 08. Sep 2004 15:21
af elv
Það er til forrit(er því miður búin að gleyma hvað það heitir) sem hraðar á þessu tekur splash screen af og getur disablað plugins sem þú ert ekki að nota....skal reyna að finna það

Sent: Mið 08. Sep 2004 18:19
af gumol
Voffinn skrifaði:Save'a skjölin.

Nei, það vikar nefnilega ekki. Alveg sama hálftíma biðin eftir að skjalist opnast af harða diskinum.

elv: Takk :D

Sent: Mið 08. Sep 2004 20:03
af elv
Þettta mun taka smá tíma er með um 4gig af freeware í sömu möppunni , en er að leyta

Sent: Mið 08. Sep 2004 20:13
af elv
hehe gat nú verið, var fljótari að finna þetta með google á netinu en á disknum mínum....þarf að fara að taka til.


En alla vega hérna er þetta http://www.tnk-bootblock.co.uk/getfile.php?id=arsu

Sent: Mið 08. Sep 2004 23:06
af gumol
Frábært, kemur eins og skot núna :D