Síða 1 af 1

Smá vesen með þráðlaust net

Sent: Mán 30. Ágú 2004 18:41
af hubcaps
Sælir !

Er með þráðlaust net hérna heima og tvær vélar (eina ferða og eina borðtölvu).
Borðtölvan er alltaf í gangi og alltaf tengd en í hvert skipti sem kveikt er á fartölvuni þá slitnar sambandið á milli borðtölvunar og router-sins.

Svo virðist einnig vera að ef fartölvan er í gangi en borðtölvan ekki, þá heldur fartölvan sambandinu en borðtölvan nær ekki að tengjast þegar hún er ræst upp.


Vona að þessi póstur skiljist og að þetta sé eitthvað einfalt stillingaratriði sem ég hreinlega finn ekki.. :wink:

Sent: Mán 30. Ágú 2004 20:59
af Emizter
ekkert slæm hugmynd held ég að segja líka hvernig router þú ert með

Sent: Mán 30. Ágú 2004 23:28
af KinD^
láttu ip tölur á netkortin í sitthvorri vélinni gáðu hvort þetta gerist ennþá eftir það :)

Sent: Þri 31. Ágú 2004 10:41
af Stutturdreki
Er DHCP þjónusta í Routernum? Athugaðu hvort hún úthluti örugglega ekki fleirri en einni IP-tölu samtímis :) Ef þú ert með fastar IP-tölur athugaðu þá hvort það séu nokkuð sömu IP-tölurnar á sitthvorri vélinni.

Sent: Þri 31. Ágú 2004 11:00
af gnarr
er ekki málið bara að þú ert á 255.255.255.253 neti eða álíka? athugaðu netmaskann á routernum og settu hann í 255.255.255.0 ef hann er ekki í því.

Sent: Þri 31. Ágú 2004 15:38
af hubcaps
Netmaskinn er á 255.255.255.0.


Þetta er Speedtouch 545 router og það er einhver DHCP þjónusta í honum sem ég kann ekkert á.
(hvort hann sé að dreifa tölum, hvort eða hvernig ég setji IP tölur á sitthvort netkortið í sitthvorri vél veit ég ekki) :oops:

Sent: Þri 31. Ágú 2004 16:01
af Stutturdreki
"Network Connections" -> "Properties". Þar á "General"-flipanum velurðu "Internet Protocol [TCP/IP]" og svo "Properties" fyrir það.

Þar er yfirleitt hakað við "Optain an IP address automaticly" og "Obtain DNS server addresses automaticly". Þá eru IP-tölurnar fengnar frá DHCP þjónustunni á Routernum.

Þú getur sett fastar IP-tölur í þessari valmynd ef þú vilt. Td.:

    IP address : 192.168.1.101 / 192.168.1.102 (á sitt hvorri tölvunni)
    Subnet mask : 255.255.255.0
    Default gateway : 192.168.1.1 (eða IP-talan á routernum þínum)


Verður bara að kíkja í manualinn til að sjá hvernig á að stilla DHCP.

Ættir kannski að prófa að kveikja á borðtölvunni, fara gera "run"->"cmd", slá inn "ipconfig" og skrifa niður IP-töluna. Kveikja svo á þráðlausa netinu og endurtaka þetta á fartölvuinni. Ef þær fá báðar sömu IP-töluna þá er DHCP þjónustan í Routernum eitthvað að brillera.

Sent: Þri 31. Ágú 2004 18:22
af hubcaps
ég held að það sé nú bara RTFM á þetta... ég get ekki séð betur en að þetta sé allt rétt stillt og eigi að virka. :wink:


Takk fyrir góð svör samt sem áður ! :)