Síða 1 af 2

Tölvulistinn með nýja heimasíðu

Sent: Lau 20. Okt 2012 14:59
af GuðjónR
Hvernig líst ykkur á nýju heimasíðuna þeirra?
Mér finnst hún bara nokkuð flott, minnir svolítið á Tölvutek, þ.e. rauðu slaufurnar.

Re: Tölvulistinn með nýja heimasíðu

Sent: Lau 20. Okt 2012 15:15
af konice
Bara nokkuð vel .
Verðsláin efst flott.

Re: Tölvulistinn með nýja heimasíðu

Sent: Lau 20. Okt 2012 15:25
af GuðjónR
konice skrifaði:Bara nokkuð vel .
Verðsláin efst flott.


Já það er töff, mér finnst líka appelsínuguli liturinn í abstraktinu og "leita-netverslun og stækkungarglerinu" flott, ég hefði haft þann lit líka þar sem "verðin - innskráning og karfan" eru í stað rauða litsins...en það er bara ég :)

Re: Tölvulistinn með nýja heimasíðu

Sent: Lau 20. Okt 2012 15:42
af zetor
frískandi uppfærsla... flott

Re: Tölvulistinn með nýja heimasíðu

Sent: Lau 20. Okt 2012 15:44
af worghal
mér finnst þetta vera eitthvað svo mikið "hey, reynum að vera cool og kanski munu hinir krakkarnir líka betur við okkur" tactic, öðrum orðum "pandering to the kids" en tölvulistinn verður alltaf tölvulistinn fyrir mér :P

Re: Tölvulistinn með nýja heimasíðu

Sent: Lau 20. Okt 2012 15:50
af Arkidas
-Málningarsletturnar eru alveg úr samhengi við síðuna.
-ALLT OF mikill skuggi á wrapper kassanum.
-Of mikið af texta sem er festur á mynd (of algjörlega óþarfi í þessum tilfellum). Mjög gamaldags hönnunaraðferð.
-Græni panta takkinn er með hallærislegum glossy effect sem var vinsæll kringum 2007 þegar Windows VISTA var uppi.

Re: Tölvulistinn með nýja heimasíðu

Sent: Lau 20. Okt 2012 15:53
af worghal
að minstakosti er raðað eftir verði núna.

Re: Tölvulistinn með nýja heimasíðu

Sent: Lau 20. Okt 2012 16:36
af Moldvarpan
Loksins komnir með pöntunarkerfi á síðuna.

Hin síðan var síðan 1980 or some, gekk út á að vv. setji hluti á lista sem það hefur áhuga á, prenti listann út og komi með hann í verslunina.

Re: Tölvulistinn með nýja heimasíðu

Sent: Lau 20. Okt 2012 17:01
af CurlyWurly
Finnt þetta snilld, aðallega vegna þess að það fór svo mikið í taugarnar á mér að tölvulistinn tók aldrei neitt af netinu hjá sér þegar að þeir hættu að selja það. Vona innilega að þeir fari að gera það núna svo að maður vita c.a. hvað er til hjá þeim.

Re: Tölvulistinn með nýja heimasíðu

Sent: Lau 20. Okt 2012 17:25
af Opes
Keyrir á SmartWebber, sama kerfi og Tölvutek ;).

Re: Tölvulistinn með nýja heimasíðu

Sent: Lau 20. Okt 2012 18:04
af Akumo
Voðalega finnst mér þetta eitthvað eins og hafi komið beint úr einhverju tutoriali á netinu.

Re: Tölvulistinn með nýja heimasíðu

Sent: Lau 20. Okt 2012 18:26
af Tiger
Finnst þetta bara flott og mikil framför frá fyrri síðu. Hvort sem einhver skuggi er bla bla eða ekki.

Re: Tölvulistinn með nýja heimasíðu

Sent: Lau 20. Okt 2012 18:28
af Orri
Þessi síða hefur mikinn potential en er alls ekki nógu góð.
Skugginn á síðunni, glossy áferðin á tökkunum og þessir flipar á verðunum og körfutökkunum uppi eru gamaldags og ljótir.
Svo ofnota þeir rúnuð horn á allri síðunni og gradient-a í t.d. 'Verðbil' slidernum og á verðflipunum.

Re: Tölvulistinn með nýja heimasíðu

Sent: Lau 20. Okt 2012 18:41
af noizer
Mér finnst Panta takkinn alveg frekar hallærislegur. Fatta heldur ekki þessar málningarklessur í bakgrunninum...

Re: Tölvulistinn með nýja heimasíðu

Sent: Lau 20. Okt 2012 19:42
af Jón Ragnar
Ég veit ekki með ykkur..

En ég nota aldrei neitt annað en okkar eigin vakt til að finna parta.

:happy

Re: Tölvulistinn með nýja heimasíðu

Sent: Lau 20. Okt 2012 21:08
af MuGGz
Hvað er samt málið með að ekki er hægt að raða upp hlutum eftir STAFRÓFSRÖÐ !!

Eins og í íhlutir

Efst kemur Örgjörvar og síðan aflgjafar ?

Re: Tölvulistinn með nýja heimasíðu

Sent: Lau 20. Okt 2012 21:58
af CurlyWurly
MuGGz skrifaði:Hvað er samt málið með að ekki er hægt að raða upp hlutum eftir STAFRÓFSRÖÐ !!

Eins og í íhlutir

Efst kemur Örgjörvar og síðan aflgjafar ?


Svo sammála, mjög fáar tölvubúðir sem gera þetta og það gerir alla leit á síðunum örlítið tímafrekari. Kannski ekki mikið en það munar þó um það.

Re: Tölvulistinn með nýja heimasíðu

Sent: Mán 22. Okt 2012 13:53
af GunnarJons
Sælir Vaktarar,

Langar að byrja á að þakka fyrir umræðuna um síðuna. Mjög gagnlegt fyrir okkur að heyra skoðanir ykkar sem notenda. Bæði það sem ykkur finnst jákvætt og neikvætt. Nýja síðan sem fór í loftið fyrir helgi er í raun ekkert annað en version 1.0. Strax kominn langur listi af úrbótum og ekki hika við að benda okkur á ef það er eitthvað pirrandi sem þið rekist á eða einhverjar ábendingar sem þið viljið koma á framfæri.

Megináherslan á nýju síðunni er í raun að bæta leitina hvort sem hún fer í gegnum flokkatréð, leitina sjálfa, með því að nota sliderinn til þess að leita eftir verðbili eða eftir vörumerkjum innan flokkanna. Við erum búnir að gera gagngera breytingu á vöruflokkakerfinu hjá okkur sem mun í raun ekki sjást fyrr en eftir nokkra daga, þar sem við þurfum að færa allar vörur milli vöruflokka í sölukerfinu okkar. Það stendur því til bóta.

Endilega fylgist með og hendið áfram kommentum hér inn ef það er eitthvað sem má betur fara eða virkar ekki sem skildi.

Gunnar Jónsson
Sölu- og markaðsstjóri Tölvulistans

Re: Tölvulistinn með nýja heimasíðu

Sent: Mán 22. Okt 2012 14:10
af GuðjónR
Ég er búinn að vinna töluvert með síðuna um helgina, hef verið að laga linka á Vaktinni sem brotnuðu við uppfærsluna.
Síðan virkar mjög vel en það er einn böggur sem ég rakst á í leitinni:
Ef þú er með skástrik / á milli orða í leitinni þá færðu upp error:

Dæmi

Re: Tölvulistinn með nýja heimasíðu

Sent: Mán 22. Okt 2012 14:15
af Plushy
Er ekki réttara að segja "6 Verslanir um land allt" frekar en "6 Verslanir um allt land" ?

Annars fín síða, mun betri en gamla á samt eftir að skoða hana betur.

Re: Tölvulistinn með nýja heimasíðu

Sent: Mán 22. Okt 2012 15:41
af Daz
GuðjónR skrifaði:Ég er búinn að vinna töluvert með síðuna um helgina, hef verið að laga linka á Vaktinni sem brotnuðu við uppfærsluna.
Síðan virkar mjög vel en það er einn böggur sem ég rakst á í leitinni:
Ef þú er með skástrik / á milli orða í leitinni þá færðu upp error:

Dæmi


http://tl.is/search/intel/CPU

(Þetta er þó shitmix til að redda sér ef maður þarf nauðsynlega að nota / í leitinni).

Re: Tölvulistinn með nýja heimasíðu

Sent: Mán 22. Okt 2012 16:07
af dori
ugh, ég hata þessa hræðslu við query streng og fólk sem finnur einhverja þörf hjá sér til að fokka öllum hefðum upp.

Dæmi um það er að setja hluti eins og leitarstreng í pathname í staðin fyrir að nota query streng. Svo þótti það einhverntíma rosa móðins að nota tvípunkt í urlum (http://example.com/users:45/) einhverra hluta vegna.

Ég elska "hrein" url en það er mun hreinna að nota http://tl.is/search?q=url-encoded-string heldur en http://tl.is/search/url-encoded-string IMHO.

Re: Tölvulistinn með nýja heimasíðu

Sent: Mán 22. Okt 2012 16:18
af gRIMwORLD
GunnarJons skrifaði:Sælir Vaktarar,

Langar að byrja á að þakka fyrir umræðuna um síðuna. Mjög gagnlegt fyrir okkur að heyra skoðanir ykkar sem notenda. Bæði það sem ykkur finnst jákvætt og neikvætt. Nýja síðan sem fór í loftið fyrir helgi er í raun ekkert annað en version 1.0. Strax kominn langur listi af úrbótum og ekki hika við að benda okkur á ef það er eitthvað pirrandi sem þið rekist á eða einhverjar ábendingar sem þið viljið koma á framfæri.

Megináherslan á nýju síðunni er í raun að bæta leitina hvort sem hún fer í gegnum flokkatréð, leitina sjálfa, með því að nota sliderinn til þess að leita eftir verðbili eða eftir vörumerkjum innan flokkanna. Við erum búnir að gera gagngera breytingu á vöruflokkakerfinu hjá okkur sem mun í raun ekki sjást fyrr en eftir nokkra daga, þar sem við þurfum að færa allar vörur milli vöruflokka í sölukerfinu okkar. Það stendur því til bóta.

Endilega fylgist með og hendið áfram kommentum hér inn ef það er eitthvað sem má betur fara eða virkar ekki sem skildi.

Gunnar Jónsson
Sölu- og markaðsstjóri Tölvulistans



Vonandi innihalda úrbæturnar ykkar betri og consistant innihaldslýsingar þar sem hægt verður að filtera niður ala newegg.com
Notepad textalýsingar segja hugsanlega allt sem segja þarf en eru ekki ideal þegar þarf að bera saman vörur. Þá fer fólk út af síðunni ykkar og skoðar vörurnar annarsstaðar.

Re: Tölvulistinn með nýja heimasíðu

Sent: Mán 22. Okt 2012 17:50
af braudrist
Það væri líka flott að vera með fleiri undirflokka t.d. eins og hjá Móðurborðum að hafa socket 2011, 1366, 1155 etc. Ekki bara flokkar hjá framleiðendum

Re: Tölvulistinn með nýja heimasíðu

Sent: Mán 22. Okt 2012 18:37
af Orri
Er búinn að vera að skoða CSS kóðann ykkar og langar að benda ykkur á að það er til mun einfaldari leið til að setja þennann skugga á bakvið wrapperinn heldur en að nota .png mynd og vera með class fyrir hverja einustu hlið.

Svona er kóðinn eins og hann er hjá ykkur núna:

Kóði: Velja allt

#wrap{width:933px;margin:0 auto;position:relative;padding:0px 40px 23px 30px;}/*---*/
#wrap .wrap-bl,#wrap .wrap-br{background:url('../images/contentCorners.png') left bottom no-repeat;position:absolute;width:32px;height:39px;bottom:0px;left:0px;}
#wrap .wrap-br{left:auto;right:0px;width:40px;background-position:right bottom;}
#wrap .wrap-b{background:url('../images/contentBottom.png');position:absolute;height:39px;bottom:0px;left:32px;right:40px;}
#wrap .wrap-l,#wrap .wrap-r{background:url('../images/contentVertical.png') left top repeat-y;position:absolute;width:32px;top:0px;bottom:39px;left:0px;}
#wrap .wrap-r{background-position:-27px top;left:auto;right:0px;width:40px;}


Svona er hann eftir að ég breytti honum.. Einfaldari, fljótlegri og fallegri útkoma í leiðinni.

Kóði: Velja allt

#wrap {
width:933px; margin:0 auto; margin-bottom:30px; margin-top:-20px; position:relative; padding:20px 16px 0px 21px; background-color:#FFF; box-shadow: 0px 0px 37px rgba(0, 0, 0, 0.60); -moz-box-shadow: 0px 0px 37px rgba(0, 0, 0, 0.60); -webkit-box-shadow: 0px 0px 37px rgba(0, 0, 0, 0.60); -moz-border-radius: 10px; border-radius: 10px;
}


Prófiði að hægrismella á síðuna í Chrome (eða Firefox?) og veljið Inspect Element, farið í <head> og opnið main2012.css þar, finnið #wrap kóðann, veljið hann allann og vistið minn kóða í staðinn.
Útkoman er að mínu mati mun fallegri :)

Það eru fleiri dæmi um svipaðar óþarfa flækjur í CSS skjalinu og margt sem mætti betur fara :)