Síða 1 af 1
					
				Service pack 1 á Íslensku niðurhali
				Sent: Mið 06. Jún 2012 16:00
				af capteinninn
				Vitiði nokkuð hvar ég get náð í Win7 service pack 1 á íslensku niðurhali?
Er ekki að nenna að eyða 3 tímum í að ná í þetta í gegnum MS serverinn né Windows update
			 
			
					
				Re: Service pack 1 á Íslensku niðurhali
				Sent: Mið 06. Jún 2012 16:04
				af ponzer
				hannesstef skrifaði:Vitiði nokkuð hvar ég get náð í Win7 service pack 1 á íslensku niðurhali?
Er ekki að nenna að eyða 3 tímum í að ná í þetta í gegnum MS serverinn né Windows update
Windows Update á að vera íslenskt niðurhal, þeir eru að nota Akamai CDN þjónustu sem að nánast allir ISParnir hérna heima eru með 

 
			
					
				Re: Service pack 1 á Íslensku niðurhali
				Sent: Mið 06. Jún 2012 16:11
				af lukkuláki
				hannesstef skrifaði:Vitiði nokkuð hvar ég get náð í Win7 service pack 1 á íslensku niðurhali?
Er ekki að nenna að eyða 3 tímum í að ná í þetta í gegnum MS serverinn né Windows update
Hvaða ömurlegu tengingu ertu með ?
 
			
					
				Re: Service pack 1 á Íslensku niðurhali
				Sent: Mið 06. Jún 2012 16:13
				af capteinninn
				lukkuláki skrifaði:hannesstef skrifaði:Vitiði nokkuð hvar ég get náð í Win7 service pack 1 á íslensku niðurhali?
Er ekki að nenna að eyða 3 tímum í að ná í þetta í gegnum MS serverinn né Windows update
Hvaða ömurlegu tengingu ertu með ?
 
Er í Mosfellsdal, drasl lína frá húsinu mínu og að nálægasta netboxi, fæ aldrei góða hraða.
Verst finnst mér samt að samkvæmt mínum heimildum á að vera ljósleiðari í aðalgötunni. Ætli símafyrirtækin nenni bara ekki að leggja ljósleiðaralínur að öllum húsunum hérna enda verður það örugglega dýrt.
 
			
					
				Re: Service pack 1 á Íslensku niðurhali
				Sent: Mið 06. Jún 2012 23:12
				af capteinninn
				Ég hef ákveðið að formatta tölvuna bara og reinstalla, er samt að spá með eitt.
Ég er með Win7 á SSD disk og er svo með alla tónlist, þætti, bíómyndir og leikjainstöll á öðrum hörðum disk í tölvunni. Ef ég formatta SSD diskinn og set inn Win7 aftur fara þá nokkuð öll instöllin mín í rugl? Myndi taka backup af öllum savegames sem ég vill passa upp á úr documents möppunni