Síða 1 af 1
					
				Ljósnetið og routerar
				Sent: Þri 03. Apr 2012 21:48
				af roadwarrior
				Smá pælingar varðandi ljósnetið hjá símanum. Er möguleiki á að nota eigin router í staðinn fyrir þann sem síminn skaffar. Vil helst nota eigin búnað frekar en að leigja frá símanum.
Hringdi í þá í dag og eins og ég skildi þann sem ég talaði við væri ekki hægt að nota annað en þeirra router við ljósnetið
			 
			
					
				Re: Ljósnetið og routerar
				Sent: Þri 03. Apr 2012 22:09
				af Gunnar Andri
				Því miður virðist raunin vera sú að lítið úrval sé af routerum á íslandi fyrir ljósnetið.
			 
			
					
				Re: Ljósnetið og routerar
				Sent: Þri 03. Apr 2012 22:16
				af appel
				Það yrði ómögulegt að þjónusta viðskiptavini ef hver og einn væri með sinn eigin router. Þannig að líklegast er Síminn með þá stefnu að viðskiptavinir noti router frá Símanum.
			 
			
					
				Re: Ljósnetið og routerar
				Sent: Þri 03. Apr 2012 22:19
				af roadwarrior
				appel skrifaði:Það yrði ómögulegt að þjónusta viðskiptavini ef hver og einn væri með sinn eigin router. Þannig að líklegast er Síminn með þá stefnu að viðskiptavinir noti router frá Símanum.
Mja þetta hefur ekki verið vandamál hingað til varðandi ADSL.  Hef alltaf átt búnaðinn sjálfur. Veit einhver annars hvað ljósnet routerinn sem síminn notar heitir?
 
			
					
				Re: Ljósnetið og routerar
				Sent: Þri 03. Apr 2012 22:20
				af appel
				roadwarrior skrifaði:appel skrifaði:Það yrði ómögulegt að þjónusta viðskiptavini ef hver og einn væri með sinn eigin router. Þannig að líklegast er Síminn með þá stefnu að viðskiptavinir noti router frá Símanum.
Mja þetta hefur ekki verið vandamál hingað til varðandi ADSL.  Hef alltaf átt búnaðinn sjálfur. Veit einhver annars hvað ljósnet routerinn sem síminn notar heitir?
 
Ok 

Kannski þessi þráður hjálpar: 
viewtopic.php?f=18&t=43384&st=0&sk=t&sd=a