Síða 1 af 1

1000 / 100 / 10

Sent: Sun 16. Mar 2003 16:33
af Voffinn
Nú er mar að pæla í móbó-um....það sem ég ætla að kaupa er bæði til með 1000 netkort(innbygðu) eða ekki með því....en það er 2.000~3.000 kr dýrara...er þetta eitthvað sem mar á að eltast við ? Get ég notað 1000 í 100/10 hub ??

Sent: Sun 16. Mar 2003 17:26
af MezzUp
Jamms, þú getur notað 1000 netkort í 10/100hub.
En ég myndi frekar fá móðurborð með 10/100 netkorti og kaupa síðan 1000 netkort þegar maður hefur not fyrir það. Þegar 1Gb netkerfi fara að vera almenn þá gætu tölvur sem að keyptar eru í dag verið orðnar soldið gamlar. Svo taka líka innbyggð netkort fleiri CPU cycles heldur en venjulegt netkort.

Sent: Sun 16. Mar 2003 17:45
af Voffinn
Cpu syclle whoot ?

Sent: Sun 16. Mar 2003 19:46
af MezzUp
hehe, "CPU cycles" er bara fancy orð yfir "örgjörva vinnslu"

Sent: Sun 16. Mar 2003 20:11
af kemiztry
Hlýtur að vera einhver ár í að 1GB ethernet verði standard :roll:

Sent: Sun 16. Mar 2003 20:49
af MezzUp
1Gb (lítið b) er búið að vera standard síðan Júní 1999 :)
Annars held ég að 1Gb LAN komist í almennt gagn í seinasta lagi í lok 2005. E.t.v. í lok þessa árs *krossleggur fingur* :)

Sent: Sun 16. Mar 2003 20:52
af kemiztry
Bytes and Bits... I know :8)

Sent: Sun 16. Mar 2003 21:29
af MezzUp
Amms, bara að minna fólk á þetta :)

Sent: Sun 16. Mar 2003 22:52
af GuðjónR
Ég er með innbyggt 1Gb netkort á ASUS móbóinu mínu og það virkar fínt, en til þess að ég geti notað alla bandvíddina þá þyrfti ég að fá mér 100.000kr switch til að rengja allt draslið saman.

Switch/Hub er ennþá flöskuhálsar. Flott að vera með 100MB/sec á local neti...HDD teljast góðir að dæla 50MB/sec.

Sent: Sun 16. Mar 2003 23:01
af MezzUp
Amm, verðið á þessum switchum er það sem að er að hægja á 1Gb þróuninni :(
En síðan er hægt að kaupa crossover snúru og smella í við fellow 1Gb'ers á LANi :)

Sent: Mán 17. Mar 2003 18:19
af natti
Flestar nýjar tölvur núna koma með 10/100/1000.
Það er til þess að hraða þessu aðeins. Ef flestar tölvur eru með 10/100/1000, þá er eftirspurnin fyrir 10/100/1000 (eða jafnvel 100/1000) svissum orðin töluvert meiri, og þá kemur framboð til með að aukast og verð að lækka.
Ég held að þetta muni ganga nokkuð hratt fyrir sig ef út í það er farið.
Og nei, svissar eru engir flöskuhálsar. Harðir diskar eru það afturámóti í flestum tilfellum. Þ.e.a.s. það sem varðar bara beinan gagnaflutning á milli tveggja véla.
Flestir notendur geta náð í gögn af disknum sínum frá 12 til 20MB (note BYTE) á sek.
(Nei, heimilisnotendur/leikjafíklar eru yfirleitt EKKI með RAID eða sbr. og með meiri hraða.)

Eins og þið vonandi vitið (eða með einföldum reikning) þá er 100Mb = ca. 12.5MB þannig að þetta er svipað og hraðinn á disknum.
1000Mb er = 125MB, þannig að þú ert strax kominn með vandamál með harðadiskinn.

Bara svona bæta við mínu.. :)

Sent: Mán 17. Mar 2003 18:51
af Voffinn
ég ætla að taka móðurborð sem er ekki með 1000 lan á...sé að ég hef bara ekkert að gera við það :)