Voffinn skrifaði:djjason skrifaði:gumol skrifaði:Ég veit lítið um DNS þjóna yfir höfuð en ef þú gefst upp á þessu þá er hægt að fá DNS hýsingu fyrir .is lén hérna nokkuð ódýrt:
http://www.dnspark.com/
Einmitt. Ég er nú þegar að nota dnspark.com en er að skoða möguleikann að gera þetta sjálfur. Þess vegna var ég að pæla hvort einhver hérna lumaði á upplýsingum. Og svona þér að segja þá færðu hjá dnspark.com 3 tokena frítt. Þ.e.a.s. token fyrir hvert lén þannig að þú gætir hýst 3 lén frítt hjá þeim.
Ég hef nú enga reynslu af dns þjónum á w2k en mig langaði að spyrja þig að tvennu ef þú nennir að svara. Af hverju ertu að fara frá dnspark.com (léleg þjónusta?) og geturu útskýrt þetta 3 tokena aðeins

Ef ég er að fara hýsa 2 lén á þessu, er það frítt?

Nei sko ég hef ekkert upp á dnspark að klaga. Bara mjög ánægður með það allt saman og mæli hiklaust með þeim.
Það eina er bara að lénið er hýst hjá þeim og því er "forwardað" til mín. Það er, ég get ekki stillt hvar í heiminum síðan er heldur bara hvert það á að forvarda fyrirspurnunum þegar spurt er um .is lénið. Þar af leiðandi, þegar ég á vefnum, ætla að fá upplýsingar um gestina, td. hvaðan þeir voru að koma á síðuna mína (referring url) þá er það alltaf .is rótar lénið...því jú þeir eru að koma þaðan því þetta .is er í raun bara forward. En ef ég myndi hýsa lénið sjálfur þá væri ekkert forward í gangi og síðan þaðan sem þeir voru að koma (referring url) er hin raunverulega síða sem þeir voru að koma frá og því sú síða sem mig langar að sjá. Ég vona að þú skiljir þetta.
Varðandi þessa tokena þá var það þannig þegar ég skráði mig hjá þeim að við nýskráningu fékk ég 3 fría token. Það er einn token per lén. Þannig að ég er að hýsa eitt lén hjá þeim og hef því notað einn token og á tvo eftir þannig að ég gæti verið með tvö lén í viðbót frítt. Og nota bene þá er ég að tala um alveg frítt...engin stofnkostnaður, ekkert mánaðargjald.....allt frítt.
En ef þér er alveg sama um þetta þá mæli ég 210% með dnspark. Bara topp company.