Síða 1 af 1
Hvað er málið??
Sent: Fim 19. Feb 2004 18:30
af dabbi2000
allt í einu vill tölvan ekki finna aðrar vélar á LAN-inu...
netið samt 100% ok
er á WinXP pro
tók svo eftir að net view í dosinu segir bara "system error 1060 has occured" sem útleggst að einhver service sé ekki í gangi...
hvaða service getur það verið??
Sent: Fim 19. Feb 2004 20:17
af MezzUp
Hvað áttu við með "vill ekki finna"?
Getur ekki pingað?
Getur ekki skoðað windows share?
Hvernig ertu tengdur netinu?
Ertu búinn að setja IP tölur rétt inn?
Verður að útskýra vandamálið betur

Sent: Fim 19. Feb 2004 21:42
af dabbi2000
það er naumast!
tölva A er sú sem vill ekki finna hinar þ.e. B & C
þær eru tengdar á LANið með ethernet og sameiginlegan router.
Engir eldveggir lokalt.
vélar B & C sjá hvora aðra og A en A sér enga
A getur pingað vélarnar hvort sem er með ip tölu eða nafni tölvunnar
Á A get ég ekki lengur opnað "view workgroup computers" það gerist bara ekki neitt. Get heldur ekki fundið vélarnar með nafni í Search. Get heldur ekki farið inn á þær með því að slá nafnið beint inn í location.
Í dosinu á maður að geta gert "net view" til að sjá allar tölvurnar á þeirri workgroup sem maður er tengdur. Núna vill það ekki gerast út af þessari 1060 villu sem ef maður flettir upp virðist benda til að það sé slökkt á einhverri service í WinXP. Spurningin er því, hvaða service getur þetta verið, augljóslega eitthvað tengt WINS??!
Sent: Fim 19. Feb 2004 22:20
af MezzUp
Hvað áttu við, vill ekki finna? Getur s.s. pingað en ekki skoðað windows share?
Líklegast þykir mér að þú þurfir að setja upp NetBIOS protocol'ið á tölu A
Sent: Fim 19. Feb 2004 23:08
af gumol
Hann á við að þær koma í í View workgroup computers.
dabbi2000: Það bara skiptir engu máli hvort þær sjá hvor aðra í Workgroup. Til að komast inn á aðra tölvu á netinu skrifaru td: \\192.168.1.2 (öfug skástrik (Ctrl+Alt+ö)) í Internet Exlorer.
Sent: Fim 19. Feb 2004 23:45
af viddi
gumol skrifaði:(öfug skástrik (Ctrl+Alt+ö))
eða bara Alt+ö
Sent: Fös 20. Feb 2004 02:03
af gumol
neibb verður að gera ctrl+ALt+ö (reyndar líka hægt að gera Alt Gr+ö . Alt Gr = Ctrl+Alt
Sent: Fös 20. Feb 2004 10:56
af dabbi2000
ég held þið séuð ekki alveg að ná þessu!
ég kemst ekkert inn á tölvur B eða C hvort sem ég nota nafnið þeirra eða ip tölu
get samt pingað ip töluna