Síða 1 af 1

2 tölvur og net vantar hjálp !

Sent: Fös 13. Feb 2004 22:44
af Andri Fannar
Hei ég er með VisioNneT 100 PCI módem...er tengdur netinu hér... ( skondið ) .. get ég tengst netinu gegnum lan snúru eða venjulega símasnúru í annari tölvu hér við hliðina ? ? það eru 2 plug á módeminu og ég nota bara 1 þau erun eins ??? :? :( :shock:

Sent: Fös 13. Feb 2004 23:03
af MJJ
Þessi tvo göt eru þannig skipulögð að eitt er til að tengja síma við módemið og svo úr módeminu í vegginn, virkar sem einskonar smásía!

Ef þú þarft að hafa netið í 2 vélum skaltu setja connection upp í annari og sharea þeirri tengingu fyrir networkið, og í hinni vélinu skaltu fara í network connections og setja set a home or small office network og velja möguleikann í miðjunni "This computer connects trough a another computer or hub.....

Og þá á allt heila klabbið að virka,,

Vona að þetta hjálpi þér :)

ég er með þetta lan tengdt

Sent: Mán 16. Feb 2004 20:37
af Andri Fannar
sko þetta er lan tengt...get tekið fæla úr sitthvorri sko...

Sent: Þri 17. Feb 2004 11:20
af Icarus
tölvan sem er með ADSL módemið verður að deila internet tengingunni með hinni. Til þess að gera það ferðu í Control Panel - Network Connections og ýtir þar einu sinni á ADSL tenginguna og í menu-inu á að standa Share this internet connection eða eitthvað í þeim dúr.

Svo kemur bara wizard sem leiðir þig í gegnum allt ferlið.

Sent: Þri 17. Feb 2004 11:41
af KinD^
Jæja, Byrja skalltu á því að stilla netkortin á sitthvorri tölvuni fyrir sig. Og smá leiðbeiningar með :)
Tölva 1 = tölvan með adsl móthaldinu. Og á að deila netinu með tölvu 2

Tölva 2 = tölvan sem er ekki með móthaldinu en á að fá netið í gegnum tölvu 1


Tölva 1:
Þannig er að þú þarft að láta ip tölu á tölvu 1, t.d. 192.168.0.1
Subnet maskið skal vera 255.255.255.0 (ekkert meira sem þarf að fikta í ip tölum á tölvu 1)


Tölva 2:
Svo þarftu að fara á tölvu 2 og stilla inn ip töluna 192.168.0.X (X getur verið hvað sem er nema 0 og 1)

Svo þarftu að setja inn subnetmask sem er það sama og á tölvu 1 (255.255.255.0)

Svo er það að setja inn "Default gateway" sem er beint fyrir neðan subnetmask, þar skaltu setja inn 192.168.0.1 (sem er ip talan á tölvu 1)

Svo er það "prefered dns server" það skal vera það sama og default gateway (192.168.0.1)

stuttu máli:
Tölva 1:
ip: 192.168.0.1
subnetmask: 255.255.255.0

Tölva 2:
ip: 192.168.0.X
subnetmask: 255.255.255.0
Default Gateway: 192.168.0.1
Prefered DNS: 192.168.0.1

Ekkert þarftu að fikta meira í lankortunum á tölvu 1 og tölvu 2

(Mæli stórlega með því að fara í gegnum þetta vesen staðin fyrir að nota þetta optain ip address automatically, því það er einfaldlega rusl, og maður þarf stundum að restarta oftar en einusinni til að það virki)

Svo er það að stilla þannig að tölva 1 deili netinu með tölvu 2 og er það úskýrt hér:
(afsakið stærðina á myndunum :D kann ekki að edita svona í paint.exe)