Síða 1 af 2

restart vessin

Sent: Lau 31. Jan 2004 03:58
af uglyjoe
tölvan hjá mér restartar stundum (engin texti),oftast þegar ég smelli a stórt mpeg eða avi file,kann einhver lausn á þessu.


win2k
2200xp amd athlon
2*160gb hd samsung
1 80gb western digital
654 ddr ram
GF-FX5600 256MB

Sent: Lau 31. Jan 2004 20:12
af FrankC
til þess að sjá hvaða villa er að hrjá þig skaltu gera eftirfarandi:

Hægri smella á My computer - Properties - Advanced flipinn - Ýttu á Settings í Startup and recovery hlutanum - Taktu hakið úr Automatically restart í System failure hlutanum.

Ég lenti í því sama, reyndar ekki með AVI eða MPG skrár, bara tilefnislaust restart, hélt ég hefði fundið lausnina með því að smella á þetta en þetta stoppar ekki restartið, sýnir þér bara villuskjáinn. Reyndu að fá þetta fram eftir að þú ert búinn að þessu og postaðu villunni.

Ef það er hins vegar ekkert hak í Automatically restart get ég ekki hjálpað =)

Sent: Lau 31. Jan 2004 21:39
af ICM
Ef hún restartar sér við þetta þá er engu líkara en þú sért með lélegan codec pakka. Sumir codec pakkar eins og ACE Mega CoDecS eru vægast sagt skaðlegir.

Sent: Lau 31. Jan 2004 21:42
af FrankC
Mín reynsla af Ace er bara hin besta, hefur virkað vel fyrir mig.

Sent: Lau 31. Jan 2004 22:22
af Hlynzit
FrankC skrifaði:Mín reynsla af Ace er bara hin besta, hefur virkað vel fyrir mig.


ég uninstallaði þessum codec pakka og gat ekki hlustað á músík allir audio driverar skemmdust gat ekki installað neinum audio drivers varð að formatta

Sent: Lau 31. Jan 2004 22:50
af ICM
Þessi codec pakki inniheldur ólögleg codec, hakkaðar útgáfur af windows media t.d. eitthvað sem Microsoft væru ekki alltof ánægðir með. Einnig yfirskrifar þetta WM9 codecs og setur lélegari codecs í staðin, veldur óstöðuga í vélinni og sumir codecs sem þetta setur inn geta jafnvel orsakað það að explorer.exe hrynur bara við það eitt að maður reynir að opna folder með sumum videoum sem nota skaðleg codec með thumbnail view.

Inniheldur líka "mediaplayer classic" sem er byggður á gamla mediaplayer 6, það eitt myndi nægja til að Microsoft gætu kært þá.

Sent: Sun 01. Feb 2004 22:09
af FrankC
hverju mælirðu með í staðinn?

Sent: Sun 01. Feb 2004 22:28
af Zaphod
ég var með þennan helvítis Codec pakka á media vélinni minni , síðan byrjaði Explorer.exe að krassa og ég henti honum út ....

Setti inn klcodec220f.exe og allavega ekkert vesen enn

Sent: Sun 01. Feb 2004 22:59
af gumol
Þetta er auðvelt að misskilja :)

Sent: Sun 01. Feb 2004 23:13
af viddi
Ég mæli með Divx Total Pack og Koepi XviD
virka mjög vel saman ég get spilað allt ég er með þá báða uppsetta á vélinni minni

Sent: Sun 01. Feb 2004 23:47
af halanegri
Dudes, náið bara í réttu codecin sjálfir.

Sent: Mán 02. Feb 2004 11:17
af KinD^
halanegri: og þau eru ? :)

Sent: Mán 02. Feb 2004 11:33
af ICM
hætta bara þessari sjóræningja starfsemi, þá losniði við öll þessi codec vandamál, nota bara WMV9 og DivX.

Sent: Mán 02. Feb 2004 13:11
af Voffinn
Eina sem þið þurfið er forrit sem spilar Dvd (þau spila oftast svcd líka), divx codecin og xvid. Einstaka menn nota líka ac3 fyrir hljóð.

Sent: Mán 02. Feb 2004 13:48
af ICM
Gallin við xvid er að þeir virðast aldrei geta ákveðið sig hvaða staðal á að hafa á þessu, eins og t.d. DivX sem er nú orðið að nokkurskonar staðli sem hægt er að setja í nokkra DVD spilara.

Sent: Mán 02. Feb 2004 13:59
af Voffinn
IceCaveman skrifaði:Gallin við xvid er að þeir virðast aldrei geta ákveðið sig hvaða staðal á að hafa á þessu, eins og t.d. DivX sem er nú orðið að nokkurskonar staðli sem hægt er að setja í nokkra DVD spilara.


Back that up please.

Sent: Mán 02. Feb 2004 15:39
af halanegri
Enda ekki skrítið þar sem Xvid er ekki enn komið í version 1.0.

Sent: Mán 02. Feb 2004 15:39
af gnarr
xvid er staðall sem er í þróunn.. þetta er ekki codec pakki.. xvid er mjög gott codec. btw, þá var fyrsta non-beta relesið að koma núna 25.janúar.

Sent: Mán 02. Feb 2004 15:47
af halanegri
KinD^ skrifaði:halanegri: og þau eru ? :)


XviD
DivX
AC3 Audio codec

Það þarf nú ekki mikið meira en þetta...

Sent: Mán 02. Feb 2004 16:22
af gumol
nærð svo í þetta til að spila.

Sent: Mán 02. Feb 2004 16:42
af halanegri
Síðan má ekki gleyma þessu fyrir .rm sullið.

Sent: Mán 02. Feb 2004 16:57
af gumol
Þá þarf maður þetta líka

Sent: Mán 02. Feb 2004 17:01
af Voffinn
Var ekki til win32 port af mplayer?

Sent: Mán 02. Feb 2004 17:17
af gumol
Afhverju í f*** ætti maður að vilja nota það?

Sent: Mán 02. Feb 2004 17:22
af halanegri
Voffinn: Það er bara fyrir Cygwin eða eitthvað shit...


En ég myndi allavega vilja það, þá þarf maður ekki að setja hinn þennan #$"#$!"& RealOne player.