Síða 1 af 1
Routerinn minn
Sent: Mán 26. Jan 2004 02:01
af dabb
Jæja.. ég á thompson speedtouch 510 v4.
Í dag ætlaði ég að reyna að opna port.
Enn nei nei ég komst ekki inná hann.
Það var eins og passwordið hafi verið breytt.
Ég náttlega reyndi öll password sem ég hef notað yfir æfina.
Enn ekkert virkaði.
Svo fékk ég ráð hjá einum aðila um að finna expert password generator.
Það felst í því að logga sig inn á einhverskonar admin.
Enn allavegana virkaði það ekki.
Svo ætlaði ég að tæta upp routerinn.
Semsagt ætlaði ég að leita að batteríi sem ég gæti tekið úr og látið svo aftur í.
Enn ég fann ekkert.
Einhverjar hugmyndir hvernig ég get leyst úr þessu?
Sent: Mán 26. Jan 2004 02:06
af gumol
Íttu á reset takkann
Sent: Mán 26. Jan 2004 02:08
af dabb
Ég finn hann ekki.
Sýnist bara vera start takkinn framan á.
Sent: Mán 26. Jan 2004 09:06
af bizz
ég held að þú þurfir að fara með hann niðrí Símann og láta flasha hann.
Þetta er víst hægt með serial snúru og einhverju forriti

Sent: Mán 26. Jan 2004 11:09
af natti
Þegar þú settir routerinn upp, þá notaðiru væntanlega geisladisk til þess. Og í byrjuninni á uppsetningunni þá varstu beðinn um að skrifa inn username og password.
Fæstir gera sér grein fyrir því að um er að ræða password til að komast inn á routerinn, heldur skrifa inn
user@adslprovider.is (eða hvað sem adsl passið þitt er...) og lykilorð sem á þar við.
Ertu búinn að prufa þetta?
Hvað varðar hardware setup, þá er þetta tekið úr Thomson Speedtouch 510v4 guide.
"How to perform a hardware reset to factory defaults:
1) Make sure the SpeedTouch is powered off.
2) Press the power button once (shortly)
3) As soon as the Power/System LED is flashing green, press the power button once more (shortly).
4) The Power/System LED stops flashing to become solid green. After six seconds, it starts flashing green again. Press the power button once more (shortly).
5) All LEDs flash green once.
6) The SpeedTouch reboots and will come online with factory settings.
Sjá:
http://www.speedtouch.com/pdf/510/st510_guide_en.pdf
Þar hefuru það... skil ekki afhverju þú varst að reyna að rífa routerinn í tætlur að leita að batteríi, tók 1stk google search að finna þetta.
Sent: Mán 26. Jan 2004 13:12
af MezzUp
dude, lastu bæklingin? þar eru nákvæmar leiðbeiningar hvernig á að resetta hann sjálfur, með léttum. Ætla ekki að segja þér hvernig svo að þú kíkir í leiðbeiningarnar...........
Sent: Mán 26. Jan 2004 13:53
af elv
MezzUp skrifaði:dude, lastu bæklingin? þar eru nákvæmar leiðbeiningar hvernig á að resetta hann sjálfur, með léttum. Ætla ekki að segja þér hvernig svo að þú kíkir í leiðbeiningarnar...........
Sko, alltílagi að benda fólki á að lesa leiðbeningar, en fólk er að spyrja hér til að fá svör/hjálp ekki bara RTFM og svo framvegis, fólk getur farið á hugi.is til að fá þau svör.
Mórallin hérna er búin að vera frekar slappur uppá síðkastið , reynum betur félagar svo þessi síða fari ekki í soran líka
Edit: stafsetningar villur

Sent: Mán 26. Jan 2004 15:00
af GuðjónR
natti GJ!!

Sent: Mán 26. Jan 2004 15:03
af dabb
Það stendur ekkert í bæklingnum.
Bara hvernig maður lætur hann upp.
Ekkert meir
Sent: Mán 26. Jan 2004 15:04
af dabb
natti

Sent: Mán 26. Jan 2004 15:21
af Hlynzit
úff sko þessi router er drasl. Ég a svona ef að þú setir inn port og save-ar svo og slekkur svo á tölvunni þinni en ekki routernum og kveikir svo aftur á tölvunni þá eru öll portin dottin út

Þannig að ég breytti bara mínum svona router í módem og nota linux firewall

Sent: Mán 26. Jan 2004 15:22
af dabb
það virkar ekki nema maður noti telnet eða einhvað.
Sent: Mán 26. Jan 2004 15:23
af Hlynzit
whaaa?
Sent: Mán 26. Jan 2004 15:24
af dabb
t e l n e t
Sent: Mán 26. Jan 2004 15:39
af dabb
nibb það virkar ekki.
Verð víst að fara og láta flasha hann eða einhvað :þ
Sent: Mán 26. Jan 2004 19:05
af MezzUp
dabbtech skrifaði:nibb það virkar ekki.
Verð víst að fara og láta flasha hann eða einhvað :þ
huh? virkar ekki það sem natti sagði??
Hlynzit, huh? NAT port forwarding virkar víst þótt að þú slökkvir á tölvunni og/eða módeminu
Sent: Mán 26. Jan 2004 19:21
af dabb
Úps las ekki þetta fyrir neðan með reset. (kjáni)
Prufa það á eftir.
Þegar fíflin hætta á netinu.
Sent: Mán 26. Jan 2004 19:29
af Hlynzit
MezzUp skrifaði:huh? virkar ekki það sem natti sagði??
Hlynzit, huh? NAT port forwarding virkar víst þótt að þú slökkvir á tölvunni og/eða módeminu
Nei þetta er víst galli á þessum routerum. Gerist líka fyrir 2 aðra vini mína. Breyttu bara routernum í módem meðeinhverjum config

Sent: Mán 26. Jan 2004 20:41
af Pandemic
Er eitthver hér sem á update fyrir Cnet router?
Sent: Mán 26. Jan 2004 20:54
af MezzUp
Hlynzit skrifaði:MezzUp skrifaði:huh? virkar ekki það sem natti sagði??
Hlynzit, huh? NAT port forwarding virkar víst þótt að þú slökkvir á tölvunni og/eða módeminu
Nei þetta er víst galli á þessum routerum. Gerist líka fyrir 2 aðra vini mína. Breyttu bara routernum í módem meðeinhverjum config

ok, en værriru til í að koma með link á dchp spoof configginn
Sent: Mán 26. Jan 2004 22:20
af Hlynzit
ugh.. man ekki enn skal leita...
Sent: Þri 27. Jan 2004 00:07
af hallihg
Þetta eru hundlélegir routerar. Þegar ég ætla að uploada config sem ég á í tölvunni til að spara mér verkið með öll þessi port sem ég hef opnað crashar routerinn og ég þarf að setja hann upp aftur. Einnig hefur komið fyrir að öll sérstaklega opnuð port séu horfin bara einn góðan veðurdag þegar ég sest í tölvuna.
Sent: Þri 27. Jan 2004 00:22
af dabb
Þetta virkaði
Takk natti ;*
Sent: Þri 27. Jan 2004 08:33
af viddi
þetta virkar allt fínt hjá mér er með 2 port opin og ekkert vesen að vísu fyrstu vikuna sem ég fékk hann var hann alltaf að opna sjálfur einhver port aldrei þau sömu og þá datt netið út en nú er allt í hinu fínasta