Windows 2003 og remote desktop connection vandamál


Höfundur
Palm
has spoken...
Póstar: 175
Skráði sig: Þri 09. Sep 2003 21:01
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Windows 2003 og remote desktop connection vandamál

Pósturaf Palm » Mið 10. Des 2003 13:25

Ég er með windows 2003 server - ég er að keyra vefsíður á honum og ég get tengst honum með remote desktop connection heiman frá mér.

Það er ekkert mál að logga mig inn og vinna á vélinni en ég á í vandræðum þegar ég logga mig út (log off) - ef ég er eini notandinn á vélinni þá er tengingunni lokað um leið og save settings glugginn kemur upp það veldur því að það er ekkert hægt að tengjast vélinni eða vefsíðium fyrr en búið er að fara inn á vélina á staðnum og setja tenginguna aftur í gang.

Kannast einhver við þetta vandamál að tengingin rofni þegar notandi loggar sig út af remote desktop connection.
Ég er búinn að leita svoldið á google en finn ekkert sem getur verið ástæðan fyrir þessu, Ég er nokkuð viss um að þetta var ekki svona til að byrja með - veit ekki hvað hefur breyst síðan þá.

Getur þetta verið einhver stilling á tengingunni að hún lokist ef enginn er logggaður inn eða á notandanaum eða á remote desktop connection eða ...

Palm




Fox
Staða: Ótengdur

Pósturaf Fox » Mið 10. Des 2003 16:52

remote desktop á w2k3 virkar fínt hjá mér
ég slekk bara á remote desktop forritinu, og næst þegar ég logga mig inn held ég áfram að vinna þar sem frá var horfið.

og logout virkar líka, nota það mjög lítið...

skil ekki hvað þetta vandamál er hjá þér
ertu búinn að update-a vélina þína með nýjustu updateS?




Höfundur
Palm
has spoken...
Póstar: 175
Skráði sig: Þri 09. Sep 2003 21:01
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Palm » Mið 10. Des 2003 17:08

Það eru fleiri en ég að fara inn á þessa tölvu í gegnum remote desktop.

"ég slekk bara á remote desktop forritinu, og næst þegar ég logga mig inn held ég áfram að vinna þar sem frá var horfið. "
Verð stundum að logga mig út svo allar tenginar séu ekki uppteknar.

Var að heyra það áðan að hugsanlega myndi virka að gera disconnect í stað log off - á eftir að prófa það.
Já það er allt það nýjasta á vélinni enda er hún ný uppsett.

Palm