Síða 1 af 1
Dell OEM diskar
Sent: Fös 17. Okt 2008 23:32
af benregn
Ég er að spá... Er hægt að nota vanilla OEM disk á Dell fartölvu eða er eitthvað sem kemur í veg fyrir að það virki eðlilega? Hef fundið misjöfn
svör á google, sumir segja já og aðrir nei. Og hvaða meiningu leggið þið í það þegar sagt er að stýrikerfið sé vitlaust sett upp? Það er ekki
mikið sem getur farið úrskeiðist við uppsetningu á Vista?
Re: Dell OEM diskar
Sent: Lau 18. Okt 2008 13:23
af benregn
Er ekki einhver sem hefur pælt í þessu líka?

Síðan er líka útsendari EJS á meðal okkar, er það ekki?
Re: Dell OEM diskar
Sent: Sun 19. Okt 2008 20:18
af benregn
bump
Re: Dell OEM diskar
Sent: Sun 19. Okt 2008 21:36
af lukkuláki
Hef aldrei prófað að setja upp Vanilla OEM enda aldrei heyrt um það og veit ekki hvað það er. DAMNIT!
En í sambandi við klúður á uppsetningu á Vista og öðrum stýrikerfum þá er jú hægt að klúðra því td. með þvi að setja inn vitlausa drivera þá getur allt farið til helvítis. Svo er partition klúður ofl. maður hefur séð ýmislegt.
Re: Dell OEM diskar
Sent: Mán 20. Okt 2008 11:19
af benregn
Vanilla OEM er ekki einhver sérstök tegund af OEM heldur notaði ég "vanilla" bara til að segja það að ég væri að nota standard, óbreittan og non-branded OEM disk. Ef það eru vitlausin driverar á support síðu framleiðandans þá getur maður lítið gert annað en að segja að framleiðandinn sé bara f****** drullusokkur.
Re: Dell OEM diskar
Sent: Mán 20. Okt 2008 12:32
af lukkuláki
benregn skrifaði:Vanilla OEM er ekki einhver sérstök tegund af OEM heldur notaði ég "vanilla" bara til að segja það að ég væri að nota standard, óbreittan og non-branded OEM disk. Ef það eru vitlausin driverar á support síðu framleiðandans þá getur maður lítið gert annað en að segja að framleiðandinn sé bara f****** drullusokkur.
Það er ekkert mál að nota hvaða DELL OEM disk sem er til að setja upp stýrikerfið á DELL vélarnar en með aðra "non branded" OEM veit ég ekki en ef þú átt ekki DELL OEM diskinn þá geturðu komið í EJS og við látum þig fá hann ekkert mál.
Ég hef
aldrei lent í því að það séu vitlausir driverar á support síðunni hjá DELL en oft er um fleiri en 1 og fleiri en 2 drivera að ræða og þá þarf maður að leggjast í smá rannsóknarvinnu til að finna út hvaða driver passar fyrir íhlutinn í þessari vél sem maður er með það sinnið því það er ekki gefið að það sé td. sama tegund af þráðlausu netkorti í öllum týpunum það getur verið breytilegt milli sendinga stundum Broadcom og stundum Intel.
Mundu bara að velja hvaða stýrikerfi þú ert með áður en þú sækir driverana.
Re: Dell OEM diskar
Sent: Mán 20. Okt 2008 14:14
af benregn
En er það rétt sem ég hef lesið; að Dell OEM diskar eru með eitthvað af innbygðum Dell driverum?
Re: Dell OEM diskar
Sent: Mán 20. Okt 2008 14:18
af Minuz1
benregn skrifaði:En er það rétt sem ég hef lesið; að Dell OEM diskar eru með eitthvað af innbygðum Dell driverum?
Já, allir framleiðendur notast við svona diska..þeir uppfæra og laga driver-a að sínum þörfum og láta þá á windows diskinn.
Það er samt full windows uppsetning á þeim öllum sem ég hef reynt.
Re: Dell OEM diskar
Sent: Mán 20. Okt 2008 15:12
af lukkuláki
benregn skrifaði:En er það rétt sem ég hef lesið; að Dell OEM diskar eru með eitthvað af innbygðum Dell driverum?
Já sumir DELL OEM diskar koma með einhverjum driverum td. er windowsið á CD fyrir sumar fartölvur með uppsettum sata driverum þar sem það á við.
Annars myndi bara koma bleuscreen í uppsetningu og sumir fatta ekki að það þarf að setja sata driverinn fyrst inn í uppsetningunni en oftast þá fylgir annar diskur með sem er með alla drivera sem þarf.
Re: Dell OEM diskar
Sent: Mán 20. Okt 2008 18:09
af benregn
Oki. Takk fyrir þær upplýsingar, búinn að vera að velta þessu fyrir mér. En ég fór allavega í EJS og bað um OEM disk. Ég fékk hann eftir
smá útskýringar. Ég vona að uppsettningin gangi eitthvað betur með þessum diski.
Takk fyrir hjálpina lukkuláki
Re: Dell OEM diskar
Sent: Mán 20. Okt 2008 18:55
af lukkuláki
Ekkert að þakka.
Hvernig tölvu ertu með nákvæmlega ?
Re: Dell OEM diskar
Sent: Mán 20. Okt 2008 19:48
af benregn
Var/er að grúska í tölvu kærustunnar minnar, Dell Inspiron 1501.
Re: Dell OEM diskar
Sent: Mán 20. Okt 2008 20:00
af lukkuláki
OK gangi þér vel með þetta.
Re: Dell OEM diskar
Sent: Mán 20. Okt 2008 20:07
af benregn
Takk takk