Síða 1 af 1
10 mánaða tölva...hvaða linux?
Sent: Fös 03. Okt 2008 20:27
af coldcut
Sælt veri fólkið
Svo er mál með vexti að ég er orðinn leiður á windows og langar að prufa eitthvað linux kerfi á tölvunni borðtölvunni minni. En ég þori ekki að fara að setja linux uppá henni fyrr en ég er búinn að prufa það á annarri tölvu fyrst svo ég geti séð hvort ég fíli það. Ég er heitastur fyrir Ubuntu 8.04 en ég er ekki viss um hvort 6 ára lappi ráði við það =/
Lappinn er IBM með 733mhz örgjörva, 253 kb minni og 17,6 gb HDD.
haldiði að þessi lappi ráði við Ubuntu 8.04 (nóg til að ég geti skoðað það ágætlega) eða ætti ég að reyna eitthvað annað stýrikerfi?
með fyrirfram þökk
-spurningaupdate neðar 
Re: hvaða linuxkerfi fyrir gamlan lappa?
Sent: Fös 03. Okt 2008 21:16
af Dagur
Ef þú getur reddað meira minni þá ertu í góðum málum. Ég er með Ubuntu 8.04 á eeepc sem keyrir á svipað mörgum MHz og það gengur bara mjög vel. (hún er að vísu með hraðari hörðum diski þannig að þín yrði kannski töluvert lengur að ræsa sig)
Re: hvaða linuxkerfi fyrir gamlan lappa?
Sent: Fös 03. Okt 2008 21:21
af coldcut
æj ég nenni ekkert að fara að opna tölvuna og vesenast í að finna mér meira minni í hana...en veistu um eitthvað annað kerfi sem gæti virkað á henni?
Re: hvaða linuxkerfi fyrir gamlan lappa?
Sent: Fös 03. Okt 2008 21:22
af Bassi6
Puppy linux er málið fyrir svona vél
http://www.puppylinux.com/
Re: hvaða linuxkerfi fyrir gamlan lappa?
Sent: Fös 03. Okt 2008 21:31
af dabb
253 kb? Oo
Re: hvaða linuxkerfi fyrir gamlan lappa?
Sent: Fös 03. Okt 2008 23:31
af coldcut
en ég meina ef ubuntu 8.04 virkar á tölvum með örgjörva með svipuð mhz þá virkar það alveg er það ekki?
er alveg sama hvað hún er lengi að ræsa sig...er bara að skoða það áður en ég fer að setja það í borðtölvuna ;p
Re: hvaða linuxkerfi fyrir gamlan lappa?
Sent: Lau 04. Okt 2008 00:39
af CendenZ
coldcut skrifaði:æj ég nenni ekkert að fara að opna tölvuna og vesenast í að finna mér meira minni í hana...en veistu um eitthvað annað kerfi sem gæti virkað á henni?
settu upp ubuntu eða mint.
prufaðu það bara... finnur engan mun á milli distróa nema í einhverri þungri keyrslu.
Re: hvaða linuxkerfi fyrir gamlan lappa?
Sent: Lau 04. Okt 2008 09:52
af Bassi6
settu upp ubuntu eða mint.
prufaðu það bara... finnur engan mun á milli distróa nema í einhverri þungri keyrslu.
Ég er með tölvu með svipuðum örgjörva og minni og hún er hunleiðinleg með Ubuntu en eftir að ég setti Puppy upp er hún bara helv... snögg og fín, þú getur líka prófað Ubuntu bara beint af geisladiskinum
Annars er ég búinn að nota Ubuntu í nokkur ár og fer ALDREI aftur í Windows
Re: hvaða linuxkerfi fyrir gamlan lappa?
Sent: Lau 04. Okt 2008 12:49
af Vaski
Veldu einhvern linux sem hefur það að markmiði að vera léttur í keyrslu. Ubuntu hefur það ekki. Puppy er þannig, en ég er ekkert sérlega hrifin af honum, finnst hann eitthvað of grófur. Endilega prófaðu AntiX [url]http://antix.mepis.org/index.php/Main_Page[/url], mér finnst hann fínn. Einnig getur þú prófað Zenwalk [url]http://www.zenwalk.org/[/url] og TinyMe [url]http://tinymelinux.com/doku.php[/url]. Það er um að gera að prófa bara nokkuð kerfi á lappanum og sjá hvernig þau virka, sum gætu lent í einhverjum erfiðleikum með hardwareið í lappanum en önnur ekki og þar sem það tekur yfirleitt um 30 mín að setja upp linuxkerfi þannig að það sé nothæft (eitthvað lengur náttúrlega til að gera það eins og maður vill hafa það) erum við ekki að tala um eitthvað hrifanlega mikin tíma sem fer í að prófa sig áfram

Re: hvaða linuxkerfi fyrir gamlan lappa?
Sent: Lau 04. Okt 2008 14:19
af CendenZ
Bassi6 skrifaði:settu upp ubuntu eða mint.
prufaðu það bara... finnur engan mun á milli distróa nema í einhverri þungri keyrslu.
Ég er með tölvu með svipuðum örgjörva og minni og hún er hunleiðinleg með Ubuntu en eftir að ég setti Puppy upp er hún bara helv... snögg og fín, þú getur líka prófað Ubuntu bara beint af geisladiskinum
Annars er ég búinn að nota Ubuntu í nokkur ár og fer ALDREI aftur í Windows
Xubuntu er margfalt léttara en ubuntu.. en maður finnur vart fyrir því nema á þegar maður er kominn í p2 tölvurnar

Re: hvaða linuxkerfi fyrir gamlan lappa?
Sent: Sun 05. Okt 2008 23:53
af coldcut
takk fyrir svörin piltar
en ég fékk að fikta aðeins í Ubuntu hjá frænda mínum í kvöld og verð að segja að ég kolféll fyrir því. En haldiði að það sé rétta stýrikerfið fyrir tölvuna mína (specs í undirskrift) eða er eitthvað annað sem hentar henni betur?
Ég vil ekki að stýrikerfið sé það flókið að ég geti ekki byrjað að nota það strax en ekki heldur það einfalt að ég geti ekkert fiktað í því.
og hefur einhver ykkar reynslu af compiz dæminu?
Re: hvaða linuxkerfi fyrir gamlan lappa?
Sent: Mán 06. Okt 2008 16:04
af coldcut
http://ubuntu.hugi.is/releases/kubuntu/8.04/á ég ekki að taka niðurhalsmöguleika nr.2 /64-bit PC (AMD64) desktop CD?