Síða 1 af 1

Hvaða ISP?

Sent: Fös 27. Jún 2008 18:14
af SteiniP
Sælir

Nú voru Vodafone svo snjallir að cappa utanlandshraðann minn niður í sama og ekki neitt vegna þess að ég fór eitthvað yfir þessi "ótakmörkuðu" 80 GB hjá þeim.
Ég hringdi í þjónustuverið og þá var mér boðið að borga 1300 kr fyrir hvert GB eftir 80 gig og þá yrði ekkert cappað. Ég afþakkaði og skellti á.

Þá er spurning hvort að maður ætti að fara yfir í annað netfyrirtæki eða eru þau öll að gera þetta?

Re: Hvaða ISP?

Sent: Fös 27. Jún 2008 21:10
af TechHead
LoL hringdi til að kanna hvaða hraða maður fengi ef maður færi yfir 80gb á mánuði... 32 kb/s fram að næstu mánaðarmótum!

Come on, 32 kb/s er hægara en EDGE tengingin í símanum mínum, ég myndi kasta gratis rúternum útum gluggann á þeim hraða :lol:

Eins gott að maður er hættur að stunda bitme.tv :roll:

Re: Hvaða ISP?

Sent: Mið 02. Júl 2008 23:58
af Harvest
Ég er hjá símanum og þeir eru að cappa ef ég fer fyrir ofan þetta.

Hef lent nokkrum sinnum í þessu. Mjög pirrandi.