Síða 1 af 1

Skipta um Router

Sent: Þri 17. Jún 2008 21:46
af machinehead
Er orðinn frekar þreyttur á netinu hérna heima, það er hægt, nýtir ekki alla bandvíddina sem er í boði og svo á það til að "go 56kb".

Oftast dugir að restarta routernum og það er frekar pirrandi séstaklega þar sem ég er með sjónvarpið í gegnum netið...
Getur ekki verið bara að þessi router sé drasl, þetta er þessi sem fylgir frá Símanum, Speedtouch 585...
Hvaða router mæli þið þá helst með að maður kaupi sér í staðinn?

P.s. Orðið ROUTER kom fram 5 sinnu í þessum stutta korki.

Re: Skipta um Router

Sent: Lau 21. Jún 2008 23:04
af depill
Cisco :) En annars þarftu nú líka að pæla í því að þú þarft að fá réttar stillingar frá Símanum vegna IPTV til þess að geta notað þinn eigin búnað. Gefur Síminn einu sinni upp þær stillingar ?

Re: Skipta um Router

Sent: Lau 21. Jún 2008 23:08
af eeh
Sæll
Lenti í þessu fyrir svona 2 mánuðum og það sem kom útur því var að routerin var bilaður og ég fékk nýja, hann hefur verið til friðs síðan sá nýi!

Kveðja EEH