Síða 1 af 1

Var að seeda torrent og internetið var ómögulegt að nota

Sent: Mið 27. Feb 2008 00:58
af Heliowin
Ég var að seeda af mestu umhyggju fyrir öðrum einum torrent en internetið var alveg stopp á meðan.

Hver skyldi ástæðan hafa verið spyr ég í fáfræði minni?

Upload hraðinn var ca. 15KB/s og er ég með 12Mb áskrift.

Ég pásaði upphlöðunina á torrentinum og þá varð allt eins og það á að vera.

Sent: Mið 27. Feb 2008 01:00
af Dazy crazy
Vá, mér finnst nú ekki að 15kbps eigi að gera einhvern mun. Ertu hjá Hive?

Sent: Mið 27. Feb 2008 01:02
af Heliowin
Já ég er hjá Hive.

Edit: Þess má geta að ég hef ekki upplifað þetta áður jafnvel þó ég sé með nokkra torrenta í gangi.

Update: Ég startaði torrentinum aftur og get nú vafrað um á netinu, skrítið.

Sent: Mið 27. Feb 2008 09:20
af Halli25
Heliowin skrifaði:Já ég er hjá Hive.

Edit: Þess má geta að ég hef ekki upplifað þetta áður jafnvel þó ég sé með nokkra torrenta í gangi.

Update: Ég startaði torrentinum aftur og get nú vafrað um á netinu, skrítið.

Ertu þá á sömu tölvu með torrent í gangi? Ég var að lenda í því að internetið dó á torrentvélinni ef ég var að deila með Torrent. Spurning hvort netkortið sé að höndla torrent umferðina þar sem hún er mjög krefjandi, einnig getur routerinn verið vandamálið af sömu ástæðu.

Sent: Mið 27. Feb 2008 09:54
af urban
ég mundi limita tengingarnar sem að torrent forritið reynir að tengjast.

semsagt heildar tengingar og tengingar á hvert torrent.


ég lennti í þessu nokkrum sinnum áður en að ég gerði það

netið virkaði frekar illa þrátt fyrir það að upload og download hraði væri ekkert mikill, þá voru tengingar bara einfaldlega það margar að það var að "drepa" routerinn

Sent: Mið 27. Feb 2008 10:50
af Heliowin
faraldur skrifaði:Ertu þá á sömu tölvu með torrent í gangi?


Já!


urban- skrifaði:ég mundi limita tengingarnar sem að torrent forritið reynir að tengjast.

semsagt heildar tengingar og tengingar á hvert torrent.


Ég er alveg nýr þegar kemur að torrent þannig að ég veit ekki alveg hvað ég á að gera.

Er það ekki hérna sem maður á að stilla þetta og hverju er hægt að mæla með og hvar nákvæmlega breyti ég því. :oops:

Mynd

Sent: Mið 27. Feb 2008 13:45
af urban
global maximum er ég með í 450 og næsta fyrir neðan það í 300

síðan mundi ég minnka number of uploads slots per torrent í ca 5 (semsagt það er hversu margir þú getur uploadað til á hverju torrenti, enginn tilgangur í að hafa það fleyri en 5)

setja síðan protocal encryption í enabled (eða forced)


síðan skalltu limita upload hraðann við ca 75 - 80% af heildar upload hraðanum á tengingunni

Sent: Mið 27. Feb 2008 14:29
af Heliowin
Frábært maður, takk fyrir þetta urban.

Sent: Mið 27. Feb 2008 15:04
af urban
það var ekkert.

vona að þetta hjálp þér eitthvað.