Síða 1 af 1
Outlook póstur horfinn?
Sent: Sun 24. Feb 2008 16:29
af zaiLex
Ég var að formata tölvu vinkonu minnar og fattaði ekki að taka backup af Program Files. Vissi ekki að mailinn sem kæmi í outlook væri bara vistað á tölvuna. Ég hef alltaf bara verið með net mail svo að ég hef aldrei kynnst þessu concepti. En allavega vantar mig þessa .mdx fæla (outlook express) og ég er búinn að prófa get data back for NTFS forritið en ég fann ekki gögnin í gegnum það. En átti ég ekki annars að við ræsingu forritsins að velja "Systematic file system damage, e.g. Format or FDisk" en ekki "I want to recover deleted files" ? Hins vegar finst mér líka ólíklegt að ég geti fengið gögnin til baka svona því að diskurinn er eiginlega fullur af gögnum. Og ætti pósturinn ekki annars að hafa verið geymdur í Program Files? Það er sko þannig að ég náði að recovera einhvern smá póst í gegnum my documents (það sem ég bakkaði upp) en sá póstur nær bara frá 1997-2004 en það vantar restina, semsagt póstinn sem hún hefur verið að fá meðan hún hefur átt núverandi tölvu. Hafið þið einhver úrræði?
Þessi póstur var sko GRÍÐARLEGA mikilvægur

Sent: Sun 24. Feb 2008 19:01
af Dazy crazy
Er ekki hægt að finna bara sendandann? hann á yfirleitt afrit líka.
Sent: Mán 25. Feb 2008 23:42
af Gúrú
Bara ég eða?
Formattaðir diskinn og vilt fá office outlook póst aftur?
Ehh?
Væri dáldið pissed ef ég formattaði tölvuna mína áður en ég seldi hana og gæjinn væri að skoða öll emailin mín :S
Sting upp á:
Hringja í sendandann eins og dagur :S
Sent: Þri 26. Feb 2008 10:42
af zaiLex
Málið er að sendandinn myndi ekki vilja senda póstinn aftur því að þetta er póstur sem hún ætlar t.d. að nota til að fara í mál gegn honum. + það að fullt af contacts eru glataðir sem er mjög erfitt að grafa upp aftur.
EDIT: og btw vitiði um einhverja sem sérhæfa sig í að bjarga gögnum?
Sent: Þri 26. Feb 2008 13:53
af Gúrú
Skil ekki hvar vandamálið liggur....
Formattaðir diskinn, allt farið útaf honum.
En á þessu litla landi okkar efast ég um að það sé einhver markaður til þess að sérhæfa sig í að bjarga gögnum útaf hörðum diski, hringdu bara í Tölvutek eða Kísildal eða bara hvern sem það er sem er með umboðið fyrir þessa diska og spurðu hvort þeir geti gert eitthvað.
Sent: Þri 26. Feb 2008 17:38
af corflame
Það eru til fyrirtæki sem sérhæfa sig í því að ná gögnum af skemmdum diskum, örugglega einhver til sem geta fundið eitthvað.
Veit samt ekki um neitt slíkt hérlendis, þannig að það væri þá bara Google fyrir þig