Er bara að spá..Skjárinn hjá símanum....???


Höfundur
goggi79
Nýliði
Póstar: 19
Skráði sig: Þri 22. Jan 2008 00:40
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Er bara að spá..Skjárinn hjá símanum....???

Pósturaf goggi79 » Mið 20. Feb 2008 22:58

Er hægt að komast inn í myndlykilinn og opna sjónvarpsrásir frítt þar. Er bara að spá hvort þetta sé hægt??

Veit einhver það.?


Core 2 E8400-3.6Ghz@1,250v * DDR2 Exceleram 5-5-5-15 4x2048 * ASUS P5ND 750i * MSI 8800GT * FX Extreme HDAudio * Samsung Syncmaster T240HD 24" * Windows 7 Ultimate 64bit * Aflgjafi 560w High-Power * Kassi ATX m/LCD skjá * ca 2 Terabite HDD

Skjámynd

beatmaster
Besserwisser
Póstar: 3071
Skráði sig: Fös 14. Jan 2005 15:46
Reputation: 42
Staðsetning: Við hliðina á nýju tölvunni minni
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf beatmaster » Mið 20. Feb 2008 23:08

Reglurnar

Guð skrifaði:9. gr.

Notendum ber að fara eftir lögum þegar þeir skrifa bréf.
Þetta er gert til að tryggja langlífi vaktarinnar. Þessi regla er ekki bara
formsatriði eins og sumstaðar, henni er fylgt eftir eins og öðrum reglum.


Menn rugla saman tveimur orðum, víst og fyrst. Hið fyrrnefnda er komið af orðinu vissa en hitt er úr talmáli og haft í merkingunni: úr því að, þar sem (um orsök). Dæmi: Fyrst að ég get þetta þá getur þú þetta, þ.e.a.s: Þar eð ég get þetta þá getur þú þetta. En víst er notað um vissu: Það er nokkuð víst að ég geti gert þetta.


Bjosep
Geek
Póstar: 880
Skráði sig: Þri 16. Maí 2006 17:48
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Pósturaf Bjosep » Mið 20. Feb 2008 23:10

Þú getur beðið og vonað að síminn uppfæri hjá sér á næstunni, þá koma allar stöðvarnar inn frítt og haldast inni svo fremi að þú takir ekki myndlykilinn úr sambandi. Það er væntanlega einfaldara og gáfulegra en að ætla að eiga við myndlykilinn!



Skjámynd

Fumbler
spjallið.is
Póstar: 490
Skráði sig: Mið 23. Apr 2003 17:15
Reputation: 25
Staðsetning: Vestfirðir
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Fumbler » Mið 20. Feb 2008 23:14

Það mætti orða spurninguna betur. eins og t.d hvernig virkar sjónvarp símans? eða eitthvað þannig.

Eftir því sem mér var sagt þá er myndlykilinn í raun bara eins og loftnet, enginn afruglunnar né læsingar hugbúnaður, heldur bara mótakari þar sem öllum læsingum er stjórnað frá miðlægum server.
Þannig að það er lítið að græða á því að "hakka" boxið, eða setja annað box.

Heyrði líka af því að hægt væri að horfa á sjónvarp símans án myndlykils með því að tengja kapalinn í tölvu og tengjast við einhverja IP og port með VNC viewer, að vísu ekki hægt að skipta um stöðvar þar :P

bara my 5 cents.




Höfundur
goggi79
Nýliði
Póstar: 19
Skráði sig: Þri 22. Jan 2008 00:40
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Var bara spurning..

Pósturaf goggi79 » Mið 20. Feb 2008 23:19

Ég er bara að spurja því það sagði einhver við mig að einhver sem hann þekkti hefði gert þetta, ég bara trúði því ekki þannig að ég er bara að reyna að fá staðfestingu á því.


Core 2 E8400-3.6Ghz@1,250v * DDR2 Exceleram 5-5-5-15 4x2048 * ASUS P5ND 750i * MSI 8800GT * FX Extreme HDAudio * Samsung Syncmaster T240HD 24" * Windows 7 Ultimate 64bit * Aflgjafi 560w High-Power * Kassi ATX m/LCD skjá * ca 2 Terabite HDD