Síða 1 af 1

Windows Vista setup vandamál

Sent: Sun 23. Sep 2007 19:11
af Selurinn
Ég næ ekki að setja Windows Vista á nýja Seagate 500gb Sata diskinn minn.

Þetta er eini harði diskurinn í vélinni.


Specs:

GA-P35-DS4
Q6600
NX8600GTS
2048 Geil Black Dragon 800mhz 4-4-4-12

Það er eins og hann þurfi einhverja drivera til þess að setja þetta upp?

Svona lítur þetta út:

Select the driver to be installed.....

Og þegar ég browsa sé ég bara X:\ sem er væntanlega CD og svo USB minnislykilinn sem er alltaf tengdur....


What should i do!? :(

USB

Sent: Sun 23. Sep 2007 19:27
af Gets
Taka USB minnislykilinn úr sambandi

Sent: Sun 23. Sep 2007 19:53
af Selurinn
Tók USB lykilinn, virkaði ekkert :(

Sér núna bara X:\ í My Computer.

Ég geri rescan á fullu og það kemur no device drivers found :(

Týpan á HDD er ST3500630AS


Ekki þarf diskurinn að vera formateraður fyrirfram!?

*Bætt*

Helvítis kjaftæði, ég setti upp tvær eins vélar með eins setup nema það er bara skjákortið sem er munurinn.

Ég næ að setja VISTA á aðra vélina þar sem allir diskar formateraðir fyrirfram, en þessi diskur sem ég er með í hinni sem var ekki formateraður fyrirfram, (ÞAÐ Á EKKI AÐ ÞURFA) virkar ekki.

Ég meina Windowsið kemur STRAX með þessa villu upp, ekki einu sinni búinn að biðja mig um hvort ég vilji clean install eða það dót og EULA dótið sem þú samþykkir.

Kemur strax upp þessi device villa þegar ég ýti á INSTALL NOW.

Diskurinn sést í BIOS undir codeinu ST3500630AS og er First Hard Disk boot ef þið eruð að pæla í því, svo þetta er eitthvað annað!


Hvað er að ske?

Sent: Mán 24. Sep 2007 16:10
af Stebet
Ertu ekki með hann í vitlausu SATA porti bara, þ.e.a.s einhverju SATA porti sem er bara ætlað fyrir RAID eða átt eftir að breyta SATA RAID portunum í IDE mode?