Ég er með 14 meg línu hjá Vodafone og næ alltaf að maxa hana á usenet, er með account hjá Giganews, næ reyndar næstum engum hraða í gegnum 119, en í gegnum port 80 og 23 næ ég fullum hraða ( 1.4 Mbps + ), þarf að hafa svona 5 connections opin til þess að ná því.
Er samt alltaf með 10 connections opin þegar ég er að downloada þannig þarf ekkert að hafa áhyggjur af því. Svo virkar líka fínt að downloada frá Giganews af hotspotunnum
En með torrentið, ég er ekki að segja að það sé eithvað frábært hjá Vodafone, en með protocol encryption á, og á vel seeduðum torrent næ ég yfirleitt mjög góðum hraða, venjulega samt ekkert mikið meira en 20 -30 kb/s á hverjum seedara þótt einstaka sinnum að maður poppi upp í 100 kb/s.
Gæti verið að HIVE sé ekki búið að stækka umferðina sína nóg á FARICE-1, Vodafone hefur aukið afköstin meðað við það sem var áður en að CANTAT-3 rauf, en hins vegar er Bandaríkjaumferð aðeins hægari en hún ætti að vera.
Ég vill samt fara að sjá sæstreng nr. 2