Síða 1 af 1
Seinkomið Linux Format tímarit
Sent: Fös 30. Jún 2006 20:25
af Heliowin
Ég vona að það sé í lagi að pósta þessu hérna
Ég nefnilega er að verða meira en smávitlaus vegna þessa tímarits sem eins og aldrei ætlar að berast til landsins.
Í dag er 30 júní og tölublað 81 (júlí) er enn ekki komið í hilllurnar í Reykjavík (seinni partinn). Það kom fyrst út 1. júní í Englandi þar sem tölublað 82 (ágúst) er nú nýkomið út.
Svona lagað er óásættanlegt.
Ég vildi því forvitnast og spyrja hvort einhver hérna hafi reynslu af áskrift að sama blaði og hvort það berist fljótar með því.
Sent: Lau 08. Júl 2006 17:57
af pjesi
félagi minn er áskrifani og hef ég ekki heyrt hann kvarta ennþá
Sent: Lau 08. Júl 2006 21:48
af Heliowin
Það var ágætt!
Annars hef ég orðið var við að dreifingin á þessu gangi fremur treglega, allavega eins og stendur fyrir bæði áskrifendur og ekki, jafnvel í útgáfulandinu.
Sent: Sun 09. Júl 2006 13:58
af Taxi
pjesi skrifaði:félagi minn er áskrifani og hef ég ekki heyrt hann kvarta ennþá
Hann félagi þinn er í áskrift,SEM munar 5-9 dögum eftir minni reynslu.
Ég mæli með því að menn gerist áskrifendur að fagblöðum sem þeir kaupa því að þá spara menn bæði tíma og peninga.
Visa eða Mastercard er það sem þarf og blaðið kemur 3 dögum eftir útgáfu.
Sent: Sun 09. Júl 2006 14:02
af Heliowin
Já einmitt!
Fyrst ætla ég að fara í austurstrætið og segja þeim frá því

Sent: Þri 11. Júl 2006 22:10
af pjesi
Við hérna fyrir norðan erum frekar melló á svona löguðu. Enda lifum við lengur, ekki alltaf þetta stress

Sent: Fim 13. Júl 2006 13:48
af JReykdal
ég er með áskrift og það gengur bara ágætlega. Var að vísu seinn til að endurnýja núna um daginn og hef verið í útlöndum þannig að ég get ekki svarað fyrir sl. 2 tölublöð eða svo

Sent: Lau 05. Ágú 2006 11:15
af pjesi
Ég mæli reyndar með Linux Journal, flott blað.
Sent: Mán 07. Ágú 2006 16:47
af JReykdal
pjesi skrifaði:Ég mæli reyndar með Linux Journal, flott blað.
Finnst það oft þungt og leiðinlegt. Bresk blöð eru fyrir mig takk

Sent: Mán 07. Ágú 2006 19:59
af Heliowin
Ég athuga með Linux Journal!
Hinsvegar þá kann ég ágætlega við ferska og breska Linux Format og líkar að fá meðfylgjandi DVD diska.
Annað er að ég hef enn ekki séð júlí, ágúst og hvað þá september blað (27. júlí) Linux Format í neinni hillu í Reykjavík.
Sent: Mán 07. Ágú 2006 20:46
af pjesi
JReykdal skrifaði:pjesi skrifaði:Ég mæli reyndar með Linux Journal, flott blað.
Finnst það oft þungt og leiðinlegt. Bresk blöð eru fyrir mig takk

Einmitt það sem maður vill! Alveg óþolandi leiðinlegt að lesa greinar um hvernig forrit X er uppsett á Y og hvaða fersku forrit fylgja með nýjasta Knoppix og svo framvegis.
Ég þarf að geta lært eitthvað af tímaritunum til þess að ég nenni að lesa þau, ég þarf ekki að vita hvað einhverjum finnst frábærast við nýjasta Ubuntu höfðingjann

Sent: Fim 24. Ágú 2006 11:57
af Heliowin
Hahahha!
Ég hafði samband við Pennan og kveinaði yfir þessu.
Eins og ég hélt, þá var orsökin tengd því að Linux Format skipti alveg yfir í meðfylgjandi DVD diska.
Mér skilst þannig að nýtt strikanúmer hafi komið sem gerði það að verkum að verslunin datt af listanum og dreifandinn hætti að senda þeim.
Penninn hefur reddað málunum, svo þá þarf ég ekki að veifa kortinu á netinu í leit að áskrift.
Sent: Fim 24. Ágú 2006 13:25
af JReykdal
Sent: Fim 24. Ágú 2006 13:47
af Heliowin
JReykdal skrifaði:http://www.myfavouritemagazines.co.uk/home/mpurchase.asp?m=793&src=W019
Þarft ekki að leita

Já ég veit, bara að ég sé ekki að veifa greiðslukorti hjá þeim!
Sent: Fim 24. Ágú 2006 23:51
af Taxi
Heliowin skrifaði:JReykdal skrifaði:http://www.myfavouritemagazines.co.uk/home/mpurchase.asp?m=793&src=W019
Þarft ekki að leita

Já ég veit, bara að ég sé ekki að veifa greiðslukorti hjá þeim!
Fáðu þér bara fyrirframgreitt kreditkort.
Ég gerði það og millifæri á kortið áður en ég versla á netinu.
Ég hef aldrei lent í veseni eftir að versla með kreditkorti á netinu.

7-9-13
Sent: Fös 25. Ágú 2006 00:19
af Heliowin
Taxi skrifaði:Heliowin skrifaði:JReykdal skrifaði:http://www.myfavouritemagazines.co.uk/home/mpurchase.asp?m=793&src=W019
Þarft ekki að leita

Já ég veit, bara að ég sé ekki að veifa greiðslukorti hjá þeim!
Fáðu þér bara fyrirframgreitt kreditkort.
Ég gerði það og millifæri á kortið áður en ég versla á netinu.
Ég hef aldrei lent í veseni eftir að versla með kreditkorti á netinu.

7-9-13
Já ég hef hugsað um það og ég held líka að bankinn fari bráðum að þvinga mig til að skipta alfarið yfir í það
