Síða 1 af 1

Skrá nýjan router hjá hringdu.

Sent: Fös 27. Feb 2026 22:39
af einarn
Var að kaupa nýjan router og ég var að velta fyrir mér hvort ég þurfi að skrá hann sérstaklega hjá hringdu þ.e.a.s hringja og láta þá whitelista eða er þetta automatic hjá þeim? Er að spurja útaf því að ég held að þjónustuverið hjá þeim er ekki opið yfir helgar.

Re: Skrá nýjan router hjá hringdu.

Sent: Fös 27. Feb 2026 22:54
af marijuana
Þegar ég stofnaði til viðskipta hjá þeim þá var ég með eigin router og þurfti að hringja í þá og fá þá til að samþykkja hann á sínum enda. Þurfa held ég að skrá MAC addressu á router inn í ljósleiðarakerfið. Var allavega þannig þegar ég hafði aðgang að því hjá TAL þegar það var til.

Re: Skrá nýjan router hjá hringdu.

Sent: Fös 27. Feb 2026 23:03
af Snaevar
Þegar ég vann í þjónustuverinu hjá Hringdu þá þurftum við að skrá Mac addressuna á nýjum routerum hjá viðskiptavinum

Re: Skrá nýjan router hjá hringdu.

Sent: Lau 28. Feb 2026 07:18
af slapi
Það er opið hjá þeim um helgar og alltaf frábær þjónusta þegar maður hringir inn til þeirra.

Þjónustuver 537 7000
hringdu@hringdu.is

Mán-Fös: 09-20
Lau: 10-16
Sun: 12-16