oliuntitled skrifaði:Benz skrifaði:Ekki rétt
, Síminn á talsimakerfið (AXE símerfið) sem Síminn er að leggja niður. Míla á hina vegar xDSL kerfi sem tengjast koparheimtaugakeffinu (pots-inu).
Síminn hefur verið að leggja niður sveitakerfi sem hafa ekki verið með xDSL frá Mílu. Míla tapar sjálfsagt á þessu, fá ekki lengur leigu af koparheimtaugum (komnar á ljósleiðara) sem og leigu fyrir hýsingu og gagnasamband að hýsingarstaðnum.
Frá því Míla var slitin frá Símanum að þá var rekstur og eign alls grunnbúnaðar færður yfir til Mílu.
Þetta er samt búin að vera stefna samstæðunnar (þar sem Síminn er hausinn) í um áratug.
Míla er að hætta rekstri þessa hluta símstöðva þar sem það svarar ekki lengur kostnaði að halda þessu gangandi þó að upphaflega ákvörðunin sé tekin efst í samstæðunni
Talsímakerfið (kallast AXE hjá Símanum) var aldrei fært til Mílu enda partur af þjónustuframboði Símans. xDSL og GPON var hins vegar flutt frá Símanum til Mílu (þó ekki strax) enda eðlilegra að slík þjónusta væri í boði þar í heildsölu.
Míla er ekki með neinar símstöðvar heldur aðstöðuleigu (tækjahús) en aðstöðuleigan var auðvitað kölluð símstöð á einokunartíma Símans enda upphaflega eina þjónustan sem var í boði
Í aðstöðuleigunni hefur Síminn, Vodafone, Nova, Neyðarlínan, og fleiri fjarskiptafyrirtæki, verið að leigja pláss fyrir þá þjónustu sem fyrirtækin eru að veita á svæðinu (auðvitað mismunandi milli staða/svæða). Það að húsnæði sé kallað símstöð er einfaldlega barn síns tíma og ekki lýsandi fyrir þá þjónustu sem veitt er þaðan. Ef viðskiptavinir Mílu segja upp aðstöðunni er bara eðlilegt að Míla hætti rekstri húsnæðisins enda ljóst að engin sé þörf á því til framtíðar.
Í dreifbýli þar sem búið er að leggja ljósleiðara er engin þörf fyrir gamla talsímakerfið og því eðlileg þróun að það sé lagt niður. Sama gildir í raun í þéttbýli og myndi ég reikna með að Síminn muni leggja niður símstöðvar sínar þar fyrr en síðar enda sjálfsagt flestir þeir sem eru enn með "gamla snúrusímann" komnir með hann á VoIP í gegnum routerana sína þar sem það er hægt.
Tek það fram að ég þekki ágætlega til þessa málaflokks, vann einu sinni hjá Landssímanum og hef undanfarna áratugi starfað sem ráðgjafi til fyrirtækja í fjarskipta- og upplýsingatæknimálum.