Síminn setur verðþak á internetþjónustu frá áramótum
Um síðustu áramót urðu veigamiklar breytingar á verðskrá internetþjónustu Símans sem fela í sér að verð fyrir ADSL internetþjónustu fer ekki yfir tiltekin mörk, óháð því hve mikið af gögnum er halað niður. Breytingarnar veita viðskiptavinum Símans stóraukið öryggi þegar þeir hala niður gögnum af erlendum vefsíðum. Fyrir fjölmarga viðskiptavini fela breytingarnar jafnframt í sér einhverja verðlækkun.
Áskrifendur að ADSL internetþjónustu hjá Símanum greiða annars vegar fast mánaðargjald og hins vegar ákveðið einingarverð fyrir niðurhal gagna frá útlöndum umfram það magn sem er innifalið í fasta gjaldinu. Með breytingunum er tryggt að heildarverð þjónustunnar fer ekki yfir ákveðna upphæð en þakið er mismunandi eftir því um hvaða áskriftarleið er að ræða. Verðþakið veitir ákveðinn sveigjanleika en jafnframt tryggingu gegn hámarksupphæð reiknings. Þetta þýðir að viðskiptavinur greiða áfram sitt fasta mánaðargjald sem inniheldur innifalið gagnamagn, og svo 2,50 kr fyrir hvert MB umfram það þar til upphæð verðþaksins er náð.
Internetþjónustan mun þó áskilja sér þann rétt að bregðast við ef ítrekuð notkun einstakra viðskiptavina fer að hafa truflandi áhrif á gæði tenginga annarra viðskiptavina. Síminn mun aðvara þá viðskiptavini áður en gripið verður til þess ráðs að takmarka þjónustuna við þá tímabundið.
Sem dæmi um hvað breytingarnar þýða má nefna að áskrifendur ADSL1000 internetþjónustu hjá Símanum, sem hafa 100 MB niðurhal innifalið í fasta gjaldinu, munu ekki greiða meira en kr. 8.500 á mánuði fyrir þjónustuna, óháð því hve miklu gagnamagni þeir hala niður. Áskrifendur ADSL3000 internetþjónustunnar, sem hafa einnig 100 MB innfalið í fasta gjaldinu, munu ekki greiða meira en kr. 10.500 á mánuði fyrir þjónustuna.
Ítarlegra ( Getið séð verðtöfluna )