Var að flytja í nýtt húsnæði og ætla að taka netkerfið í gegn og setja upp nokkrar myndavélar.
Innkaupalistinn so far:
1x Dream Machine Pro
1x 24 porta PoE switch
2x U7 Pro AP
3x G5 Turret Ultra myndavélar
Allur þessi pakki kostar 308,000 isk hér heima.
Beint frá Ubiquiti eru þetta 1288 evrur eða 186,938 isk með sendingu. (sirka 234,607 með vask)
Ef þetta væru nokkrir þúsundkallar myndi ég bara versla þetta hérna heima en mér finnst þetta heldur mikill munur.
Hefur einhvern reynslu að panta beint frá Ubiquiti Store?
Hefur einhver verslað beint af Ubiquiti Store?
Re: Hefur einhver verslað beint af Ubiquiti Store?
Já, ég keypti allt mitt af þeim. Fljótir að senda, ekkert vesen.
-
- Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 326
- Skráði sig: Þri 05. Ágú 2014 12:11
- Reputation: 66
- Staða: Ótengdur
Re: Hefur einhver verslað beint af Ubiquiti Store?
Jamm, panta allt mitt beint frá þeim. Aldrei neitt vesen, komið heim á nokkrum dögum.
-
- Gúrú
- Póstar: 501
- Skráði sig: Mán 04. Okt 2010 16:42
- Reputation: 4
- Staðsetning: 6° norðar en helvíti
- Staða: Ótengdur
Re: Hefur einhver verslað beint af Ubiquiti Store?
viewtopic.php?f=11&t=99712 - Gætir sparað þér nokkra þúsara að taka DMP af Mercury. Alltaf allt upp á 10 hjá honum get mælt með.
(\/) (°,,°) (\/) WOOBwoobwoobwoob!
Re: Hefur einhver verslað beint af Ubiquiti Store?
fannar82 skrifaði:https://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=11&t=99712 - Gætir sparað þér nokkra þúsara að taka DMP af Mercury. Alltaf allt upp á 10 hjá honum get mælt með.
Ég einmitt kommentaði á póstinn hans í gær, en ég held ég taki þetta bara allt nýtt ef maður er að panta frá þeim á annað borð.
Búinn að vera leita að notuðum búnaði líka en finnst ekki muna það miklu að það borgi sig.
Svo vil ég fá 6ghz wifi og U7 línan er það ný að það er ekkert í boði notað ennþá. (þessvegna tek ég pro en ekki lite)
-
- has spoken...
- Póstar: 186
- Skráði sig: Mið 13. Maí 2009 19:58
- Reputation: 31
- Staða: Ótengdur
Re: Hefur einhver verslað beint af Ubiquiti Store?
Já hef verslað beint af þeim og mæli með því. Pantaði seinast Unifi U7 Pro XGS á sunnudagskvöldi og var kominn í hendur á mér á hádegi á þriðjudegi. DHL að standa sig vel. 

Re: Hefur einhver verslað beint af Ubiquiti Store?
Takk fyrir svörin, ég panta þá bara beint frá þeim.
Bætti við einni G4 Pro dyrabjöllu líka og er að melta hvort ég eigi að taka eins og eina eða tvær fleiri myndavélar.
Bætti við einni G4 Pro dyrabjöllu líka og er að melta hvort ég eigi að taka eins og eina eða tvær fleiri myndavélar.