Sniðugar leiðir við að nota Gervigreind til að leysa verkefni

Skjámynd

Höfundur
Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3250
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 590
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Sniðugar leiðir við að nota Gervigreind til að leysa verkefni

Pósturaf Hjaltiatla » Sun 24. Sep 2023 13:57

Ákvað að hefja þráð hvernig hægt er að nota gervigreind til að leysa verkefni á frumlegan og skemmtilegan máta.

Oft fáum við góðar hugmyndir sem aðrir geta "Remixað" og notfært sér í sínu daglega lífi.

T.d er Google Photos Editor gott dæmi um hugbúnað sem er hægt að nota gervigreind til að edita myndir og einfalda þér vinnuna við að framleiða mynd sem hentar þér.

https://blog.google/products/photos/google-photos-magic-editor-pixel-io-2023/

Ef þið eruð notfæra ykkur gervigreindar tól og sniðugar aðferðir sem þið viljið deila með öðrum þá megið þið endilega bæta því inní þennan þráð.
Síðast breytt af Hjaltiatla á Sun 24. Sep 2023 13:59, breytt samtals 2 sinnum.


Just do IT
  √

Skjámynd

Höfundur
Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3250
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 590
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Sniðugar leiðir við að nota Gervigreind til að leysa verkefni

Pósturaf Hjaltiatla » Mán 25. Sep 2023 08:44

Sjálfur nota ég þetta Chrome Plugin annað slagið til að taka saman transcript Texta úr Youtube myndböndum. Nota Chatgpt summary fídusinn ef ég er ekki viss hvort Youtube Video er þess virði að horfa á.

YouTube Summary with ChatGPT & Claude
https://chrome.google.com/webstore/detail/youtube-summary-with-chat/nmmicjeknamkfloonkhhcjmomieiodli


Just do IT
  √

Skjámynd

Höfundur
Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3250
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 590
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Sniðugar leiðir við að nota Gervigreind til að leysa verkefni

Pósturaf Hjaltiatla » Sun 08. Des 2024 12:10

Var að prófa að vinna með CSV skrá í ChatGPT Pro og það kom mér skemmtilega á óvart hvað þetta virkar vel.
Ákvað að nota þessa CSV skrá frá HMS sem er rúmlega 40 MB á stærð :https://fasteignaskra.is/gogn/grunngogn-til-nidurhals/kaupskra-fasteigna/


Kaupskrá fasteigna inniheldur upplýsingar sem HMS skráir upp úr þinglýstum kaupsamningum. Þar má meðal annars finna upplýsingar um kaupverð, dagsetningu kaupsamnings og staðsetningu fasteignar. Kaupsamningar geta verið um íbúðarhúsnæði, sumarhús eða atvinnuhúsnæði.


Chatgpt stillti upp skránni svo hún gæti unnið með gögnin
Mynd

Fínt fyrir meðalljón eins og mig að greina flókin gögn :)
Mynd
Mynd


Just do IT
  √


jardel
Of mikill frítími
Póstar: 1808
Skráði sig: Þri 26. Jan 2010 01:37
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Re: Sniðugar leiðir við að nota Gervigreind til að leysa verkefni

Pósturaf jardel » Sun 15. Des 2024 20:57

Langar að endurlífga þennan þráð að nýju.
Ég er að leita af fríu chatgpt forritum og ai fyrir windows er einhver sem getur bent mér hvar ég get fundið þau?




jardel
Of mikill frítími
Póstar: 1808
Skráði sig: Þri 26. Jan 2010 01:37
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Re: Sniðugar leiðir við að nota Gervigreind til að leysa verkefni

Pósturaf jardel » Lau 15. Feb 2025 22:12

Er ekki um að gera og endurlífga þennan þráð.
Hvernig er dreepseek að koma út hjá ykkur?
Betri kostur en chatgpt 4 ?



Skjámynd

olihar
ÜberAdmin
Póstar: 1330
Skráði sig: Mán 13. Ágú 2007 13:23
Reputation: 305
Staða: Ótengdur

Re: Sniðugar leiðir við að nota Gervigreind til að leysa verkefni

Pósturaf olihar » Lau 15. Feb 2025 23:14

Þú getur allavegana keyrt DeepSeek locally, þarf mjög öflugar tölvur fyrir stærsta módelið.



Skjámynd

Höfundur
Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3250
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 590
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Sniðugar leiðir við að nota Gervigreind til að leysa verkefni

Pósturaf Hjaltiatla » Sun 16. Feb 2025 10:10

jardel skrifaði:Er ekki um að gera og endurlífga þennan þráð.
Hvernig er dreepseek að koma út hjá ykkur?
Betri kostur en chatgpt 4 ?


Ég nota ekki Deepseek Public útgáfuna. Hins vegar er ég búinn að prufa Deepseek R1 á fartölvunni minni með 4070 RTX GPU og vildi athuga möguleikana sem eru í boði að keyra Deepseek locally. Ágætt að fyrirtæki utan Bandaríkjanna heldur upprunalegu hlutverki OpenAI á lífi með að opna á að leyfa fólki að Sækja þetta Deekseek R1 módel undir MIT leyfi. Það er alls konar möguleikar í boði að forrita á móti þessu t.d ef þú myndir vilja keyra Deepseek R1 á Jetson Orin Nano Super á heimanetinu og framkvæma aðgerðir fyrir þínar þarfir.


Just do IT
  √


jardel
Of mikill frítími
Póstar: 1808
Skráði sig: Þri 26. Jan 2010 01:37
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Re: Sniðugar leiðir við að nota Gervigreind til að leysa verkefni

Pósturaf jardel » Sun 16. Feb 2025 10:30

Hjaltiatla skrifaði:
jardel skrifaði:Er ekki um að gera og endurlífga þennan þráð.
Hvernig er dreepseek að koma út hjá ykkur?
Betri kostur en chatgpt 4 ?


Ég nota ekki Deepseek Public útgáfuna. Hins vegar er ég búinn að prufa Deepseek R1 á fartölvunni minni með 4070 RTX GPU og vildi athuga möguleikana sem eru í boði að keyra Deepseek locally. Ágætt að fyrirtæki utan Bandaríkjanna heldur upprunalegu hlutverki OpenAI á lífi með að opna á að leyfa fólki að Sækja þetta Deekseek R1 módel undir MIT leyfi. Það er alls konar möguleikar í boði að forrita á móti þessu t.d ef þú myndir vilja keyra Deepseek R1 á Jetson Orin Nano Super á heimanetinu og framkvæma aðgerðir fyrir þínar þarfir.



Þarft þú að greiða fyrir r1?



Skjámynd

Höfundur
Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3250
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 590
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Sniðugar leiðir við að nota Gervigreind til að leysa verkefni

Pósturaf Hjaltiatla » Sun 16. Feb 2025 10:34

jardel skrifaði:
Hjaltiatla skrifaði:
jardel skrifaði:Er ekki um að gera og endurlífga þennan þráð.
Hvernig er dreepseek að koma út hjá ykkur?
Betri kostur en chatgpt 4 ?


Ég nota ekki Deepseek Public útgáfuna. Hins vegar er ég búinn að prufa Deepseek R1 á fartölvunni minni með 4070 RTX GPU og vildi athuga möguleikana sem eru í boði að keyra Deepseek locally. Ágætt að fyrirtæki utan Bandaríkjanna heldur upprunalegu hlutverki OpenAI á lífi með að opna á að leyfa fólki að Sækja þetta Deekseek R1 módel undir MIT leyfi. Það er alls konar möguleikar í boði að forrita á móti þessu t.d ef þú myndir vilja keyra Deepseek R1 á Jetson Orin Nano Super á heimanetinu og framkvæma aðgerðir fyrir þínar þarfir.



Þarft þú að greiða fyrir r1?

Nei, ekki í það sem ég er að gera allavegana.
Síðast breytt af Hjaltiatla á Sun 16. Feb 2025 10:35, breytt samtals 1 sinni.


Just do IT
  √


mikkimás
Tölvutryllir
Póstar: 616
Skráði sig: Mán 03. Feb 2014 18:02
Reputation: 125
Staða: Ótengdur

Re: Sniðugar leiðir við að nota Gervigreind til að leysa verkefni

Pósturaf mikkimás » Sun 16. Feb 2025 16:19

Þessi grein á erindi í þennan þráð:


Artificial intelligence may one day make humans obsolete—just not in the way that you’re thinking. Instead of AI getting so good at completing tasks that it takes the place of a person, we may just become so reliant on imperfect tools that our own abilities atrophy. A new study published by researchers at Microsoft and Carnegie Mellon University found that the more humans lean on AI tools to complete their tasks, the less critical thinking they do, making it more difficult to call upon the skills when they are needed.

The researchers tapped 319 knowledge workers—a person whose job involves handling data or information—and asked them to self-report details of how they use generative AI tools in the workplace. The participants were asked to report tasks that they were asked to do, how they used AI tools to complete them, how confident they were in the AI’s ability to do the task, their ability to evaluate that output, and how confident they were in their own ability to complete the same task without any AI assistance.

Over the course of the study, a pattern revealed itself: the more confident the worker was in the AI’s capability to complete the task, the more often they could feel themselves letting their hands off the wheel. The participants reported a “perceived enaction of critical thinking” when they felt like they could rely on the AI tool, presenting the potential for over-reliance on the technology without examination. This was especially true for lower-stakes tasks, the study found, as people tended to be less critical. While it’s very human to have your eyes glaze over for a simple task, the researchers warned that this could portend to concerns about “long-term reliance and diminished independent problem-solving.”

By contrast, when the workers had less confidence in the ability of AI to complete the assigned task, the more they found themselves engaging in their critical thinking skills. In turn, they typically reported more confidence in their ability to evaluate what the AI produced and improve upon it on their own.

Another noteworthy finding of the study: users who had access to generative AI tools tended to produce “a less diverse set of outcomes for the same task” compared to those without. That passes the sniff test. If you’re using an AI tool to complete a task, you’re going to be limited to what that tool can generate based on its training data. These tools aren’t infinite idea machines, they can only work with what they have, so it checks out that their outputs would be more homogenous. Researchers wrote that this lack of diverse outcomes could be interpreted as a “deterioration of critical thinking” for workers.

The study does not dispute the idea that there are situations in which AI tools may improve efficiency, but it does raise warning flags about the cost of that. By leaning on AI, workers start to lose the muscle memory they’ve developed from completing certain tasks on their own. They start outsourcing not just the work itself, but their critical engagement with it, assuming that the machine has it handled. So if you’re worried about getting replaced by AI and you’re using it uncritically for your work, you just might create a self-fulfilling prophecy.

- https://gizmodo.com/microsoft-study-fin ... 2000561788




KristinnK
Gúrú
Póstar: 583
Skráði sig: Sun 03. Apr 2011 00:28
Reputation: 111
Staða: Ótengdur

Re: Sniðugar leiðir við að nota Gervigreind til að leysa verkefni

Pósturaf KristinnK » Mán 17. Feb 2025 09:35

mikkimás skrifaði:Þessi grein á erindi í þennan þráð:


Artificial intelligence may one day make humans obsolete—just not in the way that you’re thinking. Instead of AI getting so good at completing tasks that it takes the place of a person, we may just become so reliant on imperfect tools that our own abilities atrophy. A new study published by researchers at Microsoft and Carnegie Mellon University found that the more humans lean on AI tools to complete their tasks, the less critical thinking they do, making it more difficult to call upon the skills when they are needed. .....


Þetta rímar við mína upplifun af notkun tauganetahjálpartækja í mínu nærumhverfi. Þetta eru mjög öflug tól, sérstaklega í forritun, og verða líklega nauðsynleg héðan í frá fyrir þá sem vinna við slíkt til að halda uppi sömu afköstum og aðrir, en mín upplifun er sannarlega að þeir sem nota þetta mikið fara mjög fljótt að treysta á þessi hjálpartæki, svo að jaðri við ofurtrú. Sumir eru farnir að spyrja þessi hjálpartól að nánast öllu sem þeir gera eða hugsa um í sínu daglegu lífi áður en þeir reyna fyrst að nota eigin gagnrýna hugsun og innsæi!


AMD Ryzen 5 5600X | 2x16GB DDR4 | 1TB Sata SSD | AMD Radeon RX 580


netkaffi
1+1=10
Póstar: 1153
Skráði sig: Þri 25. Apr 2017 17:21
Reputation: 100
Staða: Ótengdur

Re: Sniðugar leiðir við að nota Gervigreind til að leysa verkefni

Pósturaf netkaffi » Lau 01. Mar 2025 16:03

Hafði aldrei heyrt um Google Photos Editor, takk fyrir þetta.
Erum við að tala um "Magic Editor
Welcome to the future of photo editing.1 Reimagine all your favorite moments with the help of generative AI. Try it for yourself."?
https://www.google.com/intl/en/photos/editing/



Skjámynd

Höfundur
Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3250
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 590
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Sniðugar leiðir við að nota Gervigreind til að leysa verkefni

Pósturaf Hjaltiatla » Fös 25. Apr 2025 09:11

Fannst kominn tími til að kafa aðeins dýpra frá því að nota gervigreind sem einhver annar er búinn að stilla upp og aðlaga að mínum þörfum. Ákvað að byrja að fikta með Microsoft Copilot Studio því ég á nú þegar Microsoft business premium áskrift og það er í boði að prófa Free trial til að búa til sinn eigin AI Agent (Copilot). Fyrsti AI Agentinn verður líklega persónulegur aðstoðarmaður sem hjálpar mér að læra nýtt námsefni og ég þjálfa þennan AI Agent með þeim glósum og námsefni sem ég er að læra hverju sinni.

Hjálplegir linkar

Microsoft Copilot Studio documentation
https://learn.microsoft.com/en-us/microsoft-copilot-studio/

Copilot Studio pricing
https://www.microsoft.com/en-us/microsoft-copilot/microsoft-copilot-studio/#pricing

Create and publish agents with Microsoft Copilot Studio
https://learn.microsoft.com/en-us/training/paths/work-power-virtual-agents/


Copilot Studio er nokkuð vinalegt no-code viðmót.
Mynd


Just do IT
  √

Skjámynd

Höfundur
Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3250
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 590
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Sniðugar leiðir við að nota Gervigreind til að leysa verkefni

Pósturaf Hjaltiatla » Fim 01. Maí 2025 09:39

Ánægjulegt að heyra að Copilot byrjar að styðja formlega við Íslensku í Júní 2025.

https://kpmg.com/is/is/home/events/2025/04/copilot-laerir-islensku.html


Just do IT
  √


Omerta
has spoken...
Póstar: 179
Skráði sig: Fim 01. Nóv 2007 01:49
Reputation: 20
Staða: Ótengdur

Re: Sniðugar leiðir við að nota Gervigreind til að leysa verkefni

Pósturaf Omerta » Fim 01. Maí 2025 23:08

Hef verið að gera þýðingar á íslenskum texta yfir á ensku. Geri allt sjálfur en ber svo undir ChatGPT til að fá hugmyndir að ólíku málfari. T.d. þessi karakter er ekki vel menntaður, geturu gefið mér hugmyndir að slangur orðum sem svona persóna væri líklega til að nota. Orðabók á sterum, mjög hentugt.

Varðandi að treysta of mikið á þessi tól þá hefur það ekki enn komist nálægt því að valda sama tjóni og enskan mín hefur orðið fyrir þökk sé auto correct og suggestions í snjallsímum. Ég hef ekki þurft að muna hvernig á að skrifa sum orð í háa herrans tíð og finn hvernig það versnar hjá mér.



Skjámynd

Höfundur
Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3250
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 590
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Sniðugar leiðir við að nota Gervigreind til að leysa verkefni

Pósturaf Hjaltiatla » Fim 29. Maí 2025 10:58

Finnst þetta ansi sniðugt tól AI recorder + Power automate Desktop. Einfaldar til muna að sjálfvirknivæða aðgerðir sem þú hannar eftir eigin höfði með að spjalla við Copilot sem hannar scriptu í Power Automate desktop sem framkvæmir aðgerðina sem þú vilt láta Power automate desktop endurtaka.

https://learn.microsoft.com/en-us/power-automate/desktop-flows/create-flow-using-ai-recorder



Just do IT
  √


falcon1
vélbúnaðarpervert
Póstar: 911
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
Reputation: 110
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Sniðugar leiðir við að nota Gervigreind til að leysa verkefni

Pósturaf falcon1 » Fim 29. Maí 2025 15:14

Hef verið að prófa mig áfram að nota ChatGpt til að hjálpa mér að læra. Virðist vera fínt í efnafræði en ekki alveg óskeikult, alveg verið dæmi þar sem ég þurfti að hafa vit fyrir gervigreindinni. Kosturinn er að stundum "kennir" eða útskýrir gervigreindin eitthvað viðfangsefni á öðruvísi og stundum skiljanlegri máta en kennarinn. :) Einnig gott að nota gervigreindina til að búa til fleiri æfingadæmi.
Er að fara í eðlisfræði á næstu önn og mun halda áfram að prófa mig áfram og sjá hvort að gervigreindin geti hjálpað mér að læra og skilja eðlisfræðina betur.



Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5780
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1078
Staða: Ótengdur

Re: Sniðugar leiðir við að nota Gervigreind til að leysa verkefni

Pósturaf appel » Lau 31. Maí 2025 00:29

Ég keypti mér notaða dslr myndavél fyrir stuttu síðan (fyrsta alvöru myndavélin mín), og ég notaði alfarið gervigreindina til að researcha hvaða myndavél ég ætti að fá mér, og svo notaði ég gervigreindina til að læra á hana, hvernig myndavélin virkaði, allar stillingar og hnappar á henni, hvaða linsur hentuðu, hvernig ætti að nota hana, undirstöðuatriðin í ljósmyndun og allt slíkt. Þetta hefði ég annars þurft að fara á eitthvað námskeið og fá einhvern til að sýna mér og útskýra. En maður getur spurt gervigreindina heimskra spurninga og maður fær einföld skýr svör.

Svo lengi sem þú hefur metnað og vilja, þá held ég að það sé voða lítið sem þú getur ekki lært með því að fá gervigreind með því að kenna þér. Sérstaklega varðandi hluti sem eru vel skilgreindir einsog forritun, efnafræði, verkfræði, og annað sem er bara vitað hvernig virkar.

Þjálfun er auðvitað sem þú færð ekki í gegnum gervigreind, en þetta er án efa besti prívat kennari sem þú getur fengið, allt til reiðu, svarar fullkomlega, bestu svörin,

Menntakerfið einsog það leggur sig er úrelt, sérstaklega menntakerfi einsog á íslandi þar sem ofuráhersla er á bóklegt nám.

Gervigreindarfræðingur er líklega nýtt sérfræðigrein í framtíðinni, einstaklingar sem þjálfa sig í að notfæra sér gervigreind til að gera allan fjandann.

Allir munu geta lært hvað sem er án mikillar fyrirhafnar.


*-*


fhrafnsson
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 306
Skráði sig: Sun 26. Sep 2010 14:00
Reputation: 55
Staða: Tengdur

Re: Sniðugar leiðir við að nota Gervigreind til að leysa verkefni

Pósturaf fhrafnsson » Lau 31. Maí 2025 08:41

Menntakerfið einsog það leggur sig er úrelt, sérstaklega menntakerfi einsog á íslandi þar sem ofuráhersla er á bóklegt nám.


Ekki beintengt upprunalega innlegginu en ég verð að koma því að að íslenska menntakerfið er alls ekki með ofuráherslu á bóklegt nám miðað við önnur vestræn lönd. Mæli með því að kíkja til t.d. Hollands, Spánar eða bara næstum því hvaða lands sem er til að sjá muninn.




sigurdur
Ofur-Nörd
Póstar: 238
Skráði sig: Lau 16. Jan 2010 12:37
Reputation: 39
Staða: Ótengdur

Re: Sniðugar leiðir við að nota Gervigreind til að leysa verkefni

Pósturaf sigurdur » Lau 31. Maí 2025 13:42

falcon1 skrifaði:Hef verið að prófa mig áfram að nota ChatGpt til að hjálpa mér að læra. Virðist vera fínt í efnafræði en ekki alveg óskeikult, alveg verið dæmi þar sem ég þurfti að hafa vit fyrir gervigreindinni. Kosturinn er að stundum "kennir" eða útskýrir gervigreindin eitthvað viðfangsefni á öðruvísi og stundum skiljanlegri máta en kennarinn. :) Einnig gott að nota gervigreindina til að búa til fleiri æfingadæmi.
Er að fara í eðlisfræði á næstu önn og mun halda áfram að prófa mig áfram og sjá hvort að gervigreindin geti hjálpað mér að læra og skilja eðlisfræðina betur.


Ég er kennari í Kvennó og hef horft yfir öxlina á nemendum mínum síðustu 2-3 árin meðan þeir nota ChatGPT við námið. Hef verið að prófa mig áfram við að útbúa GPT fyrir þau sem eru "grounduð" í námsefninu sem þau nota og með skýrar leiðbeiningar um hvað og hvernig á að aðstoða þau við námið. Það er margt sniðugt sem er að koma út úr þeim tilraunum.

Eitt af því sem ég hef reynt að leiðbeina þeim við er að setja gervigreindinni ramma í upphafi samtals, t.d.:
"Þú ert íslenskur kennari í efnafræði. Ég er að undirbúa mig fyrir inntökupróf í læknisfræði við Háskóla Íslands og þarf aðstoð við að læra grundvallaratriðin í rafefnafræði (electrochemistry). Þú átt að aðstoða mig við að skilja hugtök á borð við anóður, katóður, jöfnu Nernst, stillingu á oxunar-/afoxunarhvörfum og fleira."

Ég hef líka útbúið botta sem aðstoða þau við verkefni á borð við að skrifa skýrslur fyrir verklegar æfingar, þar sem "instant feedback" virkar mun betur en skil og svo bið eftir "manual" endurgjöf frá kennara sem getur tekið nokkra daga eftir því hvað er mikið að gera hjá manni.

Skólakerfið þarf að fara í grundvallar endurskoðun á tilgangi og eðli náms og leggja áherslu á gagnrýna hugsun frekar en utanbókarlærdóm og handavinnu. Þá á allt námsmat eftir að breytast mjög hratt. Munnlegt námsmat og samtal við nemendur á eftir að verða ráðandi að mínu mati.




Viggi
FanBoy
Póstar: 792
Skráði sig: Fim 26. Apr 2007 02:04
Reputation: 125
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Sniðugar leiðir við að nota Gervigreind til að leysa verkefni

Pósturaf Viggi » Lau 31. Maí 2025 13:58

Er í kerfistjóranámi hjá NTV og gerfigreindin er búin að vera algjör lifesaver. tæki svo mikklu lengri tíma að gera allt ef maður væri alltaf að gúggla. fær barra nákvæm svör við öllu og útskýringar. Þetta er algjör bylting


B450M Steel Legend (AM4). AMD Ryzen 5 3600X. TEAM TM8FP4512G (SSD). 2 tb HDD. 3 tb HDD. 4 tb HDD GeForce RTX 2060 SUPER. 16 gb 3600 mhz RAM.